Tölvumál - 01.03.1997, Page 24
TÖLVUMÁL
Kynning - EJS hf.
Microsoft hleypir Office 97
af stokkunum
Eftir Skúb Vblberg öcfeon
Microsoft hefur tilkynnt um
nýja útgáfu af Office hugbúnað-
inum sem ber nafnið Office 97.
Office 97 er uppfærsla á Office 95
hugbúnaðinum. Office er nú notað
í 55 milljónum eintaka f heiminum.
Innifalin í Office 97 eru viðföngin
Microsoft Word, Microsoft Excel,
Microsoft Access og PowerPoint
auk hins nýja upplýsingaviðmóts
Microsoft Outlook. í Office 97 er
lögð áhersla á samþáttun í eigin-
leikum viðfanganna og notkun
Internets og innranets.
Inlegg frá þúsundum
notenda
Yfir 80% af nýjungum Office
97 eru unnar samkvæmt tillögum
notenda. Þúsundir notenda lögðu
Microsoft lið þ.á.m. hópur fimm
þúsund notenda sem mættu í viðtöl
hjá Microsoft. Yfir eitt þúsund
fyrirtæki voru heimsótt og notkun-
armynstur þeirra rannsakað í því
skyni að gera nýjungarnar sem
skilvirkastar.
Outlook
upplýsingaviðmótið
vekur athygli
Einn athyglisverðast þátturinn
í Office 97 er Outlook upplýsinga-
viðmótið. Þar gefst notendum kost-
ur á að stjórna upplýsingaflæði,
fylgjast með notkun skjala og
viðhafa öll rafræn samskipti. Out-
look sameinar notkun tölvupósts
(Exchange), bókunar (Schpdule),
tengiliðalista (Contacts), verklista
(Tasks) og dagbókar (Journal) og
skráir þar notkun allra skjala, bók-
anir og öll samskipti. Outlook er
þannig einskonar miðeining Office
og um leið afar öflugt stjórntæki,
skjalastjórnun og hópvinnutól.
Gera má ráð fyrir að algengustu
viðmót tölvunotenda í nánustu
framtíð verði annars vegar Out-
look upplýsingaviðmótið til
daglegra samskipta og skipulags
og hins vegar Intemet Explorer eða
aðrir vefskoðarar.
Vefmöguleikar í öllum
viðföngum
f Office 97 er að finna mark-
verðar brey tingar á öllum viðföng-
um hugbúnaðarins. Mikil áhersla
er lögð á Internettækni og auðvelt
er að útbúa tengsl, útbúa vefskjöl
og sýsla með vefi. Þá er skjala-
stjórnun mjög öflug og nú geta
margir notendur í neti unnið við
sama skjal í einu þar sem sérstak-
lega er haldið utan um breytingar
hvers notenda. Dæmi um tengsla-
möguleika viðfanganna er að hægt
er að setja veftengsl (hyperlink) inn
í hefðbundið Excel skjal eða Word
skjal og einnig tengsl sem vísa á
önnur Excel skjöl, Word skjöl, eða
aðrar gerðir skjala. Nú má nota
Word til vefsíðugerðar og býður
það uppá fjölbreytilega möguleika
við útlit og ýmsa eiginleika til
hönnunar líflegra skjala.
Fjöldi verðlauna og
viðurkenninga
Talsmenn Microsoft telja Of-
fice 97 vera eina markverðastu út-
gáfu hjá Microsoft síðan Windows
95 kom á markað. Office 97 var
fyrst kynnt á COMDEX 96 sýn-
ingunni í Las Vegas í haust og hef-
ur það þegar hlotið fjölda verð-
launa og viðurkenninga þ.á.m.
„COMDEX 96 Best of Show“,
„PC Week Analysts Choice“ og
„BYTE Magazine 1997 Editors
Choice“.
Skúli Valberg Ólafsson er
aðstoðarforstjóri EJS hf
Punktar...
Á sjónvarpsstöðinni NBC,
sem næst hér á landi, eru
reglulega þættir um Intemet og
tölvumálefni. Þættimir hafa að
auki heimasíður en dagskrá
stöðvarinnar er á síðunni
www.nbceurope.com.
Þátturinn TheSite er með
síðuna www.thesite.com og
aðrir þættir eru með síðuna
www.pctv.com.
24 - MARS 1997