Tölvumál


Tölvumál - 01.03.1997, Side 25

Tölvumál - 01.03.1997, Side 25
TOLVUMAL Markaðssetning á Internetinu Eflr Rélur Pélursson Menn og mýs ehf liafa um nokkurt skeið dreift forritinu QuickDNS Pro á Internetinu. Hér verður greint frá kostum þess að markaðssetja og dreifaforritum á Internetinu og reynslu fyrirtœk- isins afþessari dreifileið. Aðgangurað heimsmarkaði Intemetið er alþjóðlegt net með tugum milljóna notenda. Intemetið er því alþjóðlegur markaður og í eðli sínu er enginn munur á því að eiga samskipti við fólk í næsta húsi eða næstu heimsálfu. Internetið býður upp á mikla möguleika fyrir lítið íslenskt hug- búnaðarfyrirtæki eins og Menn og mýs. Smæð fyrirtækisins og land- fræðileg einangrun skipta þar ekki máli. Internetið er e.t.v. 2000 falt stærri markaður en íslenski hug- búnaðarmarkaðurinn. Tækifærin á Internetinu eru því fleiri og stærri en á heimamarkaði. Minni kostnaðurvið dreifingu Dreifing hugbúnaðar á Inter- netinu er margfalt ódýrari en eftir öðrum leiðum. Sé forritinu dreift um Intemetið, þá sparar það hand- bækur, disklinga, pökkun og send- ingarkostnað. Dreifíng á QuickDNS Pro hófst sama dag og forritið var tilbúið. Ekki þurfti að bíða þess að hand- bækur kæmu úr prentun eða að forritið kæmist í hendur dreifíngar- aðila erlendis. Færri milliliðir Viðskiptavinurinn kaupir hug- búnaðinn beint af framleiðanda. Framleiðandi forritsins fær því 100% af andvirði hugbúnaðarins í sinn hlut. Dreifing eftir öðrum leiðum í gegnum dreifíngaraðila og smásala skilar e.t.v. einungis 5 - 25% í hlut hugbúnaðarfyrirtækis- ins. Þetta stuðlar m.a. að lægra verði á hugbúnaði. í dag er u.þ.b. 80% af sölu á QuickDNS Pro beint í hendur kaupenda. Japanskt samstarfs- fyrirtæki sér um þýðingu á forrit- inu og markaðssetningu í Japan. Um 20% sölunnar fara um þeima hendur. Betri tengsl við viðskiptavinina Það er mikils virði fyrir fyrir- tæki að þekkja viðskiptavini sína. Bein og milliliðalaus samskipti við kaupendur, yfir Internetið, auð- velda framleiðanda að sinna þörf- um markaðarins. Beint samband við viðskiptavinina gefur einnig kost á bættri þjónustu. T.d. má senda skeyti til allra kaupenda forritsins þegar ný útgáfa þess er tilbúin. Þannig má koma nýjum útgáfum hugbúnaðar nær sam- stundis í hendur notenda. Menn og mýs halda t.d. uppi góðri þjónustu í tölvupósti fyrir QuickDNS Pro. Fyrir vikið er tímamismunur og kostnaður við símtöl ekki vandamál. Markaðssetning QuickDNS Pro Menn og mýs hafa náð að markaðssetja, selja og þjónusta QuickDNS Pro í 1200 eintökum, án þess að yfirgefa nokkum tíman Vesturbæinn. Yfir 99% sölunnar er erlendis. QuickDNS Pro hefur frá upphafi verið selt í samkeppni við fría nafnamiðlara frá sam- keppnisaðilum. Forritið hefur hins vegar yfirburði í hraða og öryggi. Góðir dómar í fagtímaritum hafa einnig ýtt undir sölu forritsins. Einn helsti ávinningur okkar er þó ómetanleg reynsla í markaðssetn- ingu á Internetinu. Þá reynslu hyggjumst við nýta til frekari landvinninga. Fastir starfsmenn hjá Mönnum og músum eru þrír en fleiri hafa komið að þróun og markaðssetn- ingu forritsins. Framkvæmdastjóri er Pétur Pétursson, tölvunarfræð- ingur. Frekari upplýsingar um Quick- DNS Pro er að finna á chttp:// www.menandmice.com/> Pétur Pétursson petur@ menandmice. com MARS 1997 - 25

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.