Tölvumál - 01.03.1997, Qupperneq 27
TOLVUMAL
íslensk uppboðsþekking
seld til Bandaríkjanna
Eftir Inavar Óiri Guðónsson
Um þessar mundir er verið að
taka í notkun íslenskt rauntíma
uppboðs- og sölukerfi í Banda-
ríkjunum. Tölvukerfið, sem er í
eigu Reiknistofu fiskmarkaða hf.
(RSF) í Njarðvík, mun með fjar-
skiptum tengja saman þarlenda
fiskmarkaði (uppboðsmarkaði) í
eitt markaðssvæði og auðvelda
þannig fiskverkendum aðgang að
hráefni og seljendum hæsta mögu-
lega verð. Bandaríska útgáfan,
sem heitir CASS (Computerized
Auction and Sales System), var
þróuð út frá tölvukerfinu Tengli
sem verið hefur í notkun hér á landi
síðastliðin 5 ár.
Uppboðsfyrirtækið Buyers
And Sellers Exchange (BASE),
sem er í Massachusetts fylki,
keypti einkaleyfi á notkun og dreif-
ingu kerfisins í Norður-Ameríku
og Kanada. Er það sameiginlegt
markmið beggja fyrirtækjanna að
þeir selji afnotarétt af kerfinu
áfram til annarra uppboðsfyrir-
tækja. BASE er starfrækt með
svipuðu sniði og RSF hér á landi,
þ.e. tölvutengir fjarlæga fisk-
markaði í eitt uppboðskerfi og sér
um öll uppgjör milli kaupenda,
seljenda og fiskmarkaða.
Hugtakið fjarskiptauppboð
þýðir að fiskverkandi, sem staddur
er á fiskmarkaði A, getur boðið í
fisk í rauntíma sem er til sölu á A
og einnig á fiskmörkuðum B og C
sem bjóða upp sinn fisk á sama
tíma og A. Þannig getur fiskverk-
andi verið þátttakandi í mörgum
uppboðum í einu og hefur aðgang
að meira rnagni en ef hann gæti
bara boðið í fisk á markaði A.
Með fjarskiptauppboði er
einnig hægt að selja fisk sem ekki
er búið að landa og hringja þá
skipin í fiskmarkaðina og tilkynna
aflasamsetningu og löndunartíma.
I sumum tilfellum eru kaupendur
að bjóða í fisk sem ekki er búið að
veiða og ferskari getur varan ekki
orðið á uppboðinu! Hjá fisk-
mörkuðum tengdum RSF er um
50% aflans seldur áður en honum
er landað.
Vissulega eru til önnur upp-
boðskerfi erlendis en þau eru flest
öll fyrir staðbundin uppboð.
Einnig eru komin fram sölukerfi á
Internetinu en þau flokkast frekar
undir tilboðskerfi þar sem vara er
til sölu, kaupendur leggja inn
tilboð í ákveðið magn og fá svo úr
því skorið eftir e-a klukkutíma eða
daga hvort þeirra tilboði hafi verið
tekið.
íslenska
uppboðskerfið Tengill
Þó svo að uppboðrekstur sé
ekki gömul og rótgróin atvinnu-
grein hér á landi hafa íslendingar
staðið fremstir í flokki í heiminum
við að reka fjarskiptauppboðs-
markaði. Fiskmarkaður Suður-
nesja, sem hóf göngu sína fyrir
tæpum tíu árum, hefur ætíð boðið
upp fisk í fjarskiptum og núna eru
alls um 15 fiskmarkaðir hér á landi
sem tengdir eru inn á fjarskipta-
sölukerfi.
Reiknistofa fiskmarkaða hf
hefur starfrækt tölvukerfið Tengil,
sem er sérhannað fyrir íslenska
fjarskiptafiskmarkaði, síðan í
ársbyrjun 1992. Nú tengir RSF 8
fiskmarkaði á 13 stöðum í kringum
landið í eitt sölukerfi.
Verk- og kerfisfræðistofan hf.
(VKS) í Reykjavík hannaði og
forritaði kerfið í samstarfi við
Fiskmarkað Suðurnesja 1990-91
og var það tekið í notkun í árs-
byrjun 1992. Við afhendingu kerf-
isins var áætlað að fimm mannár
hefðu farið í hönnun kerfisins.
Tengill er skrifaður í C++ og SQL,
keyrir á HP9000/D250 Unix vél
og notar Informix gagnagrunn.
Reiknistofan á og rekur kerfið og
sér um allt viðhald og nýsmíði.
Tengill er í raun tvö kerfi:
1. Uppboðskerfi sem tengir fisk-
markaði í kringum landið í eitt
uppboð þar sem fiskkaupendur
hvar sem er á landinu geta
keypt fisk á öllum tengdum
fiskmörkuðum
2. Sölukerfi sem
a) útbýr reikninga á fiskkaup-
endur og innheimtir fyrir selj-
endur (bátana)
b) heldur utan um lögboðnar
ábyrgðir kaupenda og passar
að kaupendur kaupi ekki fisk
fyrir meiri verðmæti en trygg-
ing þein-a nær yfir.
c) gerir upp fisksölu við seljendur.
d) gerir skil á opinberum gjöldum
seljenda, svo sem lögbundna
sjóði, hafnargjöld, o.s.frv.
e) gerir skil á gjöldum kaupenda
og seljenda til fiskmarkaðanna
fyrir veitta þjónustu.
Tölvukerfið er miðlægt og
tengjast starfsmenn fiskmark-
aðanna RSF í gegnum módem og
undirbúa þar framboðs- og sölu-
MARS 1997 - 27