Tölvumál - 01.03.1997, Qupperneq 35
INTERNETÞJÓNUSTA
PÓSTS OG SÍMA
PÓSTUR OG SÍMI HF
Póstur og sími býður nú upp á þjónustu þar sem
almehningi og fyrirtækjum gefst kostur á að tengjast
Internetinu. Póstur og sími hefur samið við aðila í
Bandaríkjunum um fast samband við Internetið.
Boðið er upp á innhringiþjónustu, sem getur hentað
vel fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki eða fasta
tengingu fyrir þá sem þurfa meiri flutningshraða eða
þurfa stöðugt að vera í sambandi.
Einnig geta þeir sem þegar eru tengdir háhraða-
neti Pósts og síma, fengið tengingu við Internetið.
Innhringiþ j ónusta
Með innhringiþjónustu getur notandi með lágmarks-
búnað náð tengingu um almenna símanetið með allt
að 28,8kb/s hraða, eða 64 kb/s um Samnetið (ISDN).
I þessari þjónustu er m.a. innifalið:
• Aðgangur að Internetinu (og Veraldarvefnum)
• Netfang fyrir tölvupóst
• 5MB geymslurými fyrir tölvupóst
Ef tengst er um almenna símanetið er skráningar-
gjald fyrir innhringiþjónustu kr. 623,-, fast mánaðar-
gjald er kr. 374,- og mínútugjald kr. 1,12 auk
talsímaskrefa á lágmarkstaxta (staðarsímtöl).
Föst tenging
Föst tenging gefur möguleika á meiri hraða en
innhringiþjónustan, eða á bilinu 14,4 kb/s - 512 kb/s,
og veitir fyrirtækjum einnig betri aðgang að Inter-
netinu. Tengipunktar fyrir fastar tengingar eru 20
talsins um allt land. Fyrirtæki með þessa tengingu sér
sjálft um alla almenna Internetþjónustu innan sinna
vébanda.
Upplýsingar
Hægt er að afla sér nánari upplýsinga í síma
550 6330, hjá Gagnaflutningsdeild Pósts og síma.