Tölvumál - 01.10.2000, Side 7

Tölvumál - 01.10.2000, Side 7
Ný lög um persónuupplýsingar Hér á landi er engin reynsla af þeirri aðferð að hafa eftirlit með framkvæmd laga um persónu- upplýsingar með tilkynningarskyldu. L/'óst er að þetta fyrirkomulag hefur bæði kosti og galla ungis ef hún telur þess þörf. Það er annað einkenni tilkynningarskyldunnar að vinnsla getur hafist á ábyrgð þess sem fyr- ir vinnslunni stendur. Kostir og gallar tillcynningakerfis Hér á landi er engin reynsla af þeirri að- ferð að hafa eftirlit með framkvæmd laga um persónuupplýsingar með tilkynningar- skyldu. Ljóst er að þetta fyrirkomulag hef- ur bæði kosti og galla. Er þýðingarmikið að vanda kynningu á reglum um þetta at- riði þannig að allir þeir sem vinna með persónuupplýsingar geti gert sér glögga grein fyrir því hvenær vinnsla er tilkynn- ingarskyld og hvemig hagfelldast sé að rækja þá skyldu. Tilkynningarskyldan þjónar í fyrsta lagi þeim tilgangi að koma á sambandi milli ábyrgðaraðila og Persónuvemdar. I öðru lagi veitir hún færi á að miðla upplýsing- um til þeirra sem tilkynningarskyldir eru og getur þannig stuðlað að því að þeir geri sér betur grein fyrir skyldum sínum lögum samkvæmt. I þriðja lagi skapar þetta grundvöll fyrir Persónuvemd til að meta, á grundvelli innsendra tilkynninga, hvemig hún skipuleggur starf sitt og forgangsraðar verkefnum. I fjórða lagi þjónar reglan um skrá um innsendar tilkynningar þeim til- gangi að gera almenningi kunnugt um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í þjóðfélaginu. Samanburður ó leyfisskyldu og tilkynningaskyldu Einn helsti munur tilkynningarskyldunnar annars vegar og leyfisskyldunnar hins vegar felst í því að hinn tilkynningarskyldi þarf ekki að bíða viðbragða Persónuvernd- ar eftir að hann hefur tilkynnt um fyrir- hugaða vinnslu. Eftir að hafa fengið í hendur staðfestingu þess að Persónuvemd hafi móttekið tilkynninguna er honum heimilt að hefja vinnsluna. Mikilvægt er hins vegar að hafa í huga að móttaka til- kynningar felur hvorki í sér staðfestingu á né samþykki við því sem þar kemur fram heldur eru allar aðgerðir viðkomandi á hans eigin ábyrgð og áhættu. Eðli málsins samkvæmt hlýtur það að taka Persónu- vernd ákveðinn tíma að fara yfir innsendar tilkynningar og bregðast við þegar þess er þörf. Því getur liðið nokkur tími frá því að vinnsla hefst og þar til Persónuvernd gerir athugasemdir eða grípur til annarra að- gerða. Hvað verður áfram leyfisskylt? Þótt gert sé ráð fyrir því að draga verulega úr leyfisveitingum verður ekki horfið frá þeim með öllu. I 33. gr. laganna er mælt fyrir um leyfisskylda vinnslu. Þar segir að sé um að ræða vinnslu almennra eða við- kvæmra persónuupplýsinga sem getur falið í sér sérstaka hættu á að farið verði í bága við réttindi og frelsi manna geti Per- sónuvemd ákveðið að vinnslan megi ekki hefjast fyrr en hún hefur verið athuguð og samþykkt með útgáfu sérstakrar heimild- ar. Þó getur stofnunin ákveðið að slík leyf- isskylda falli brott þegar settar hafa verið almennar reglur og öryggisstaðlar um slíka vinnslu. Einnig er í 45. gr. laganna gert ráð fyrir því að söfnun og skráning upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni, í því skyni að miðla þeim til annarra, verði leyfisskyld. Gerð siðareglna o.s.frv. Til viðbótar því sem hér var nefnt skal þess getið að lögin gera ráð fyrir að Per- sónuvemd skuli leiðbeina þeim sem ráð- gera að vinna með persónuupplýsingar eða þróa kerfi fyrir slíka vinnslu um það hvemig standa skuli að því að tryggja ör- yggi við vinnslu persónuupplýsinga. Er í því sambandi m.a. haft í huga að stofnunin muni aðstoða við gerð starfs- og siða- reglna fyrir einstaka hópa og starfsstéttir. Sigrún Jóhannesdóttir, lögfræðingur, er forstjóri Persónuverndar Tölvumál 7

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.