Tölvumál - 01.10.2000, Blaðsíða 15

Tölvumál - 01.10.2000, Blaðsíða 15
Schengen samkomulagið að var með fulltrúum dómsmálaráðuneytis og væntanlegum umsjónar- og rekstrarað- ilum kerfanna. Einnig var fundað með fulltrúum dómsmálaráðuneytis og tölvu- nefndar vegna lagalegs umhverfis per- sónuverndar á Islandi. Um svipað leyti kom einnig úttektarnefnd vegna lögreglu- samvinnu. I september fóru fram úttektir tveggja nefnda vegna landamæraeftirlits á flugvöllum og í höfnum. I febrúar á næsta ári er svo von á stórri úttektarnefnd, sem framkvæmir ítarlega úttekt á rekstrar- og öryggisþáttum SIS, SIRENE og VISION kerfanna. Þegar Island hefur staðist allar þessir úttektir er það fullgilt af Schengen samstarfinu til þess að taka við landa- mæravörslu á ytri landamærum samstarfs- ins. Gagnvart innri landamærum er þá landamæraeftirliti hætt og íslendingar geta ferðast til annarra Schengen landa án þess að sæta vegabréfaeftirliti nánast eins og um væri að ræða innanlandsferð. Vigfús Erlendsson er tæknifræðingur frá Tækniskólanum í Kaupmannahöfn og starfar hjá Skráningarstofunni hf. Vigfús er tæknilegur verkefnisstjóri vegna Schengen og fulltrúi Islands í sam- settri tækninefnd (COMIX) íslands og Noregs og ESB nefndarinnar Council Working Group on Schengen Information System - Technology (SIS-TECH), sem hittist a.m.k. á mánaðarfresti og vinnur að þróun SIS og tekur á þáttum er varða rekstur þess. ICELANDAIR. HOTELS Upplýsingar og bókanir í síma 50 50 910 www.icehotel.is • icehotel@icehotel.is

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.