Tölvumál - 01.10.2000, Blaðsíða 25

Tölvumál - 01.10.2000, Blaðsíða 25
Rafrænir viÖskiptahættir Aílir hafa þær upp- lýsingar sem þeir þurfa til þess að tryggja skilvirka þjónustu, arðbæran rekstur og samkeppnishæfni um skilningi nema hvað notandinn get- ur ,,flett“ sjálfur eða valið þær síður sem hann hefur áhuga á. 2. Tvíhliða samskipti við notendur, hægt að skiptast á hugmyndum: A öðru stigi eru notendurnir virkir þátt- takendur. Fyrirtækið aflar sér upplýs- inga um notandann, sérþarfir hans og smekk. Notandinn getur verið við- skiptavinur, birgir eða annar samstarfs- aðili. 3. Viðskipti: Sala, greiðsla og dreifing vara og þjónustu: Auglýsingin á internetinu er orðin að búð. Nú geta viðskiptavinir valið vörurnar af „raf- rænum hillum“ og borgað með greiðslukorti. Upplýsingar um pöntun- ina fara sjálfvirkt til dreifingaraðilans sem sér um afgreiðslu og sendingu vörunnar. 4. Samhæfing Internet-tækni við bak- vinnslu3, viðskiptavini og birgja: Nú nýtir fyrirtækið eða stofnunin sér kosti rafrænna viðskiptahátta til fullnustu. Nú eru kerfi og ferli - sala, markaðs- starf, viðskiptamannabókhald, fjárhags- bókhald, framleiðsla, flutningar, lager, dreifíng, birgjar o.s.frv. - samþætt í eina heild. Gögn urn viðskiptavini, sölutöl- ur, framleiðslu, birgðir o.s.frv. eru alltaf uppfærð og aðgengileg þeim sem nota þau. Allir hafa þær upplýsingar sem þeir þurfa til þess að tryggja skilvirka þjónustu, arðbæran rekstur og sam- keppnishæfni. Þeir geta líka brugðist hratt og markvisst við breytingum - á markaðnum, í aðfangakeðjunni eða innan fyrirtækisins. Þetta breytingaferli er ekki auðvelt. Fyr- irtækið sem er orðið fyrirtæki sem nýtir rafræna viðskiptahætti hefur þurft að breyta miklu til þess að laga sig að þessu nýja skipulagi. En það verður líka að vera tilbúið til að ganga í gegnum enn meiri breytingar í framtíðinni til þess að halda stöðu sinni á síbreytilegum markaði, því fyrirtæki sem nota rafræna viðskiptahætti eru í stöðugri þróun. Rafrænir viðskiptahættir - ekki spurn- ing hvort heldur hvenær Spurning er ekki Irvort fyrirtæki fara yfir í rafræna viðskiptahætti heldur ein- göngu hvenær það gerist. Verða þau fyrst eða síðust? Gera þau það á sínum forsend- um eða á forsendum þeirra samkeppnisað- ila sem voru fyrri til? Nú er rétti tíminn fyrir fyrirtæki til að huga að þessari nýj- ustu þróun í rekstri og starfrækslu fyrir- tækja. Víða erlendis er þróunin komin vel á veg en hér á landi eru fyrirtæki að taka sín fyrstu skref. Nokkur fyrirtæki hér á landi gefa sig út fyrir hafa á boðstólnum lausnir fyrir rafræna viðskiptahætti. Þar á meðal er Teymi hf. sem er umboðsaðil Oracle á Islandi. Lausn sú sem Teymi býður upp á ber heitið Oracle e-business suite og á efni þessarar greinar fyllilega við um þá lausn því Oracle e-business suite er heildarlausn fyrir öll þau fyrirtæki sem vilja svara kalli tímans og verða „e-business“ fyrirtæki. Jón Sigurðsson og Per Christiansen. Höfundar eru sölustjórar Oracle e-business suite hjá Teymi hf. 1 PriceWaterhouseCoopers: Inside the Mind of the CEO. (í huga forsljórans). The 1999 Global CEO Survey. World Economic Forum 1999. Annual Meet- ing Davos Switzerland. 2 Peter Söndergaard managing Vice President, Gartner Group. GG European Symposium í Cannes, Nóvember 1999 3 Bakvinnsla (e. Back office) er allt það sem fer fram að tjaldabaki, meðhöndlun pantana, útskrift reikninga, framleiðsla, lager o.s.frv. Framlínan (e. front office) snýr beint að viðskiptavininum. Báðar hliðar þurfa að vera skilvirkar og vinna vel saman til þess að viðskiptavinurinn leiti aftur til fyrirtækisins. Tölvumál 25

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.