Tölvumál - 01.10.2000, Side 9

Tölvumál - 01.10.2000, Side 9
Schengen samkomulagið Yfirvöld sem eru ábyrg fyrir lögreglu- málum, landamæra- vörslu, tollamálum, vegabréfsáritunum og dvalarleyfum hafa aðgang að kerfinu Um er að ræða upp- lýsingar um einstak- linga sem yfirvöld vilja hafa upp á og einstaklinga sem ekki fá að koma inn á Schengensvæðið Schengen upplýsingakerfið (SIS) Eins og áður sagði er landamæraeftirliti á milli Schengenlandanna hætt og komið á sameiginlegum vegabréfsáritunum með Schengen samningnum. Ein af forsendum þess að þetta geti gengið er að það minnki ekki öryggi einstakra landa. Til þess að tryggja þetta var komið á fót sameiginlegu upplýsingakerfi til þess að gera yfirvöld- um mögulegt með aðstoð tölvu að hafa aðgang að upplýsingum um fólk og hluti vegna landamæravörslu og annarrar lög- og tollgæslu, auk aðgangs að upplýsingum sem nota þarf við útgáfu vegabréfsáritana og dvalarleyfa. Yfirvöld í aðildarlöndun- um sameinast um rekstur kerfisins og hafa öll aðgang að því. I kerfinu eru upplýsing- ar um einstaklinga sem yfirvöld vilja hafa upp á og einstaklinga sem ekki fá að koma inn á Schengen svæðið auk upplýsinga um hluti sem hugsanlega tengjast afbrotum. Yfirvöld sem eru ábyrg fyrir lögreglumál- um, landamæravörslu, tollamálum, vega- bréfsáritunum og dvalarleyfum hafa að- gang að kerfinu. Upplýsingakerfum Schengen má skipta í 3 meginhluta þ.e. Schengen Information System (SIS), Supplementary Information Request at National Entry (SIRENE) og Visa Inquiry Open border Network (VISION). Dómsmálaráðuneytið fer fyrir Islands hönd með framkvæmd Schengen samn- ingsins og hefur ráðuneytið samið við Skráningarstofuna hf. (SKS) um að sjá um undirbúning, þróun, uppsetningu og rekstur tölvuvæddra upplýsingakerfa vegna Schengen samstarfsins. Dagrétt út- gáfa af SIS gagnagrunninum verður stað- sett hjá Skráningarstofunni hf. Helstu aðilar aðrir, sem koma að uppbyggingu og rekstri Schengen upplýsingakerfa eru Ríkislögreglustjórinn (SIRENE) og Út- lendingaeftirlitið (VISON). Uppflettinot- endur kerfanna verða einnig hjá framan- greindum aðilum, lögregluembættum og við landamceravörslu, aðallega í Leifs- stöð. Norðurlöndin fimm létu vinna ákveðinn hluta upplýsingakerfisins sameiginlega í samstarfi sem hefur verið nefnt NoCop. Þessi hluti upplýsingakerfisins kallast N.SIS. N.SIS hlutinn sér um öll samskipti við hinn miðlæga hluta, sem kallast C.SIS og er staðsettur í Strasbourg í Frakklandi. Var samið um þann hluta við IBM í Dan- mörku. Byggir sá sameiginlegi hluti á lausn, sem IBM í Austurríki vann fyrir Austurríkismenn, sem tengdust SIS 1997 og hefur reynst vera góð og sveigjanleg. Norðurlöndin og Austurríki hafa nú mynd- að sameiginlegan notendahóp til þess að vinna að hagsmunamálum sínurn og áframhaldandi þróun. IBM í Danmörku afhenti N.SIS hugbúnaðinn og tilheyrandi vélbúnað til Norðurlandanna í apríl sl. Þjóðlegi hlutinn, þ.e. forritið sem sér um notendaskilin við hina íslensku not- endur og samskipti við N.SIS, er hins vegar kallaður ISIS. Sambærileg þjóðleg kerfi eru langt kornin í þróun á hinum Norðurlöndunum. Hvað er SIS ? Tilgangur Schengen Information System, SIS, er að gera yfirvöldum mögulegt með aðstoð tölvukerfis að hafa aðgang að upp- lýsingum um fólk og hluti vegna iandamæravörslu og annarrar lög- og toll- gæslu auk aðgangs að upplýsingum sem nýta þarf við útgáfu vegabréfsáritana og dvalarleyfa. Schengenlöndin annast sam- eiginlega rekstur á þessu kerfi. Um er að ræða upplýsingar um einstaklinga sem yf- irvöld vilja hafa upp á og einstaklinga sem ekki fá að koma inn á Schengensvæðið ásamt upplýsingum um hluti sem hugsan- lega tengjast afbrotum. Schengen upplýs- ingakerfið á að vera aðgengilegt fyrir þá sem annast: a) Landamæraeftirlit b) Annars konar eftirlit lögreglu og toll- gœslu innan aðildarríkis c) Utgáfu á vegabréfsáritunum, dvalar- leyfum og öðrum leyfum til útlendinga. Grunnuppbygging SIS, C.SIS og N.SIS SIS er byggt upp kringum miðlægan gagnagrunn, Central SIS (C.SIS), sem staðsettur er í Strasbourg í Frakklandi. í hverju Schengen þátttökulandi eru síðan svokölluð National SIS (N.SIS), sent hafa afrit af C.SIS gagnagrunninum. Aðilar í hverju landi leita í sínum N.SIS. Nýjar Tölvumál 9

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.