Tölvumál - 01.10.2000, Side 10

Tölvumál - 01.10.2000, Side 10
Schengen samkomulagið Frakkar eru ábyrgir fyrir dagtegum rekstri. Nefndir með fulltrúum frá öllum aðildarríkj- um taka allar stórar ákvarðanir og tryggja samhæfingu á milli C.SIS og allra N.SIS upplýsingar eru færðar inn í C.SIS og uppfærðar þaðan í öll N.SIS, þ.e. skrán- ingarupplýsingar þátttökulands eru ekki færðar beint í N.SIS viðkomandi lands. Schengen upplýsingakerfið er þannig upp- byggt að aðildarlöndin geta ekki skipst á upplýsingum beint hvert til annars heldur einungis með skeytasendingum til C.SIS, sem fullgildir skráningar og varpar þeim síðan til gagnagrunns þátttökulandanna. Til þess að athuga heilleika N.SIS gagn- vart C.SIS er framkvæmdur gagnagrunns- samanburður með reglubundnu millibili. Uppfærsla á C.SIS og innganga Norð- urlandanna Schengen löndin vinna nú að uppfærslu á C.SIS kerfinu. Uppfærslan kallast C.SIS 1+ og tengdist fyrri hluti hennar endurbótum vegna ártalsins 2000 og síðari hlutinn viðbótum vegna inngöngu Norður- landanna fimm auk væntanlegri inngöngu Stóra Bretlands og Irlands. Fyrri áfangi þessarar uppfærslu var tekinn í notkun fyrir núverandi aðildarríki á síðari hluta árs 1999, en síðari hlutinn verður tekinn í notkun í nóvember árið 2000. Tenging Norðurlandanna við C.SIS til prófana átti sér fyrst stað í júní sl. Norður- Mynd 2: Þátttökuiönd í Schengen samstarfinu eftir löndin fimm, Danmörk, Finnland, Noreg- ur, Svíþjóð og Island eiga svo að hafa að fullu starfhæf N.SIS kerfi til tenginga við C.SIS 1+ í desember 2000. Framtíðaruppfærsla með algerlega nýrri högun fyrir C.SIS, svonefnd SIS II, er nú þegar á teikniborðinu, þar sem núverandi útgáfa ræður ekki við fleiri en 18 aðildar- lönd. Litið er til stækkunar ESB til austurs í þessu sambandi og reiknað með að lönd eins og Tékkland, Pólland o.fl. eigi eftir að bætast við síðar. C.SIS rekstur Frakkar eru ábyrgir fyrir daglegum rekstri. Nefndir með fulltrúum frá öllum aðildar- ríkjum taka allar stórar ákvarðanir og tryggja samhæfingu á milli C.SIS og allra N.SIS. Starfsmenn C.SIS eru um 40 tals- ins og sjá þeir meðal annars um uppsetn- ingu tenginga við N.SIS, prófanir, aðstoða við villugreiningar og ýmsa tölfræði. Rekstur C.SIS er greiddur af öllum þátt- tökulöndunum eftir ákveðinni hlutfalls- skiptingu. N.SIS N.SIS eru staðsett hjá öllum aðildarríkjum og eru þau í rekstri allan sólarhringinn inngöngu fimm Norðurianda 10 Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.