Tölvumál - 01.10.2000, Side 21

Tölvumál - 01.10.2000, Side 21
Persónuvernd Persónuvernd í viðskiptum og stjórnsýslu - s/ð/eys/, sióareglur, tilskipun og staðlar Þorgeir Sigurðsson formlegri löggjafar. Evrópa hefur ekki viljað bíða. ESB hefur samþykkt tilskipun um per- sónuvernd og meðferð persónuupplýsinga með það að markmiði að setja ramma um hvaða kröfur skuli gera um meðferð per- sónuuppplýsinga en einnig hvaða kröfur skuli teljast fullnægjandi þannig að við- skipti milli landa séu ekki hindruð með misströngum kröfum. Tilskipunin er frem- ur einföld og flest í henni eru sjálfsagðir hlutir. Megininntakið er að upplýsingum skuli ekki safna nema fyrir því sé gild ástæða og samþykki þess sem lætur upp- lýsingar í té. Öll aðildarlönd Evrópska efnahags- svæðisins eru skyldug til að innleiða um- rædda tilskipun í löggjöf sína, þar á rneðal Island. Alþingi samþykkti lög um þessi mál síðastliðið vor og setti meðal annars á fót nýja stofnun, Persónuvernd, til að fylgjast með framgangi laganna og ákveða nánar um ýmis svið sem lögin tiltaka. Þessi nýja stofnun leysir af hólmi Tölvu- nefnd. Staðlar og tilskipanir Hefðbundnar tilskipanir ESB eru almennt orðaðar og þeim hefur fylgt mikið starf þar sem hagsmunaaðilar hafa unnið að nánari útfærslu þeirra með stöðlum. Til dærnis er til ESB-leikfangatilskipun sem segir að ‘leikföng skuli ekki skaða börn’ en staðlar útfæra nánar hvað þetta þýðir varðandi hönnun leikfanga; t.d. þannig að þau leiði ekki út rafmagn, séu ekki eitruð, valdi ekki köfnun, bruna o.s.frv. Slíkt staðlastarf hefur hins vegar ekki verið sett af stað fyrir persónverndartilskipunina enn sem komið er. Hins vegar hefur verið stofnaður sérstakur stýrihópur hjá evr- ópsku staðlasamtökunum CEN sem kall- aður er IPSE (Initiative for Privacy Stand- ardization in Europe), sem hefur það hlut- verk að kanna þörf á slíku samræmingar- starfi í Evrópu (sjá nánar: Tækniframfarir hafa verið of örar til að eðilegar viðskipta- siðareglur hafi náð að verða til sem geti orðið grundvöllur lagasetningar ESB hefur samþykkf tilskipun um persónu- vernd og meðferð persónupplýsinga með það að mark- miði að setja ramma um hvaða kröfur skuli gera um meðferð persónuuppplýsinga en einnig hvaða kröfur skuli teljast fullnægjandi þannig að viðskipti milli landa séu ekki hindruð með mis- ströngum kröfum Gömul bókasöfn í Evrópu eiga skrár sem sýna hverjir hafa fengið bækur þeirra að láni. Þetta hefur sagnfræðingum þótt vera gagnlegt. Þeir hafa meðal annars getað gáð hvaða bækur frægir hugsuðir hafa fengið lánaðar, eins og t.d. Gauss um 1800, og þannig getað giskað á hvaðan þeir fengu hugmyndir sínar þegar þeir unnu þrekvirkin sem þeir eru frægir fyrir. Núna, við upphaf 21. aldar, væri hægt að ganga miklu lengra í vöktun hugsana. Við gætum t.d. látið leitarvélar á Intemeti geyma upplýsingar um hvaða leitarorð all- ir notendur þeirra nota; og það hefur verið gert. Seljendur vöru og þjónustu gætu líka skráð hvaða vörur notendur kaupa á Inter- netinu,og það hefur verið gert. Utgefendur dagblaða gætu fylgst með hvaða greinar hver maður les á netinu en með upplýsing- um um slíkt má komast mjög nærri því að Tesa hugsanir okkar’. Hins vegar eru rétt- indi okkar til einkalífs stjórnarskrárbund- in, og hugsanir okkar hljóta að teljast einkamál. Evrópa setur rammalög Tækniframfarir hafa verið of örar til að eðilegar viðskiptasiðareglur hafi náð að verða til sem geti orðið grundvöllur laga- setningar. Við gætum beðið og vonað að slíkt siðferði skapaðist af sjálfu sér. Við gætum hugsanlega vænst þess að þekkt vörumerki ættu þátt í því, í þeim tilgangi að viðskiptavinir treystu þeirn fremur en öðrum. Við sjáum þetta gerast á þann hátt að mörg leiðandi stórfyrirtæki birta á vef- síðum sínurn upplýsingar um reglur sem þau fylgja um skráningu upplýsinga ásamt hvatningu til annarra um að gera slíkt hið sama. (t.d. Intel http://developer.in- tel.com/sites/developer/privacy.htm). Venjulega er því heitið að selja ekki slíkar upplýsingar þriðja aðila. Bandaríkjamenn hafa viljað sjá til hvort slfk sjálfreglun (self-regulation) geti ekki komið í stað Tölvumál 21

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.