Tölvumál - 01.10.2000, Qupperneq 27

Tölvumál - 01.10.2000, Qupperneq 27
doc.is Betaprófun mun fara fram bæði á Húsavík og Akureyri lyfseðlana fyrr en allt er komið í lag. Af þessu má sjá að kerfið býður upp á mikið öryggi fyrir sjúklinga og lækna svo ekki sé minnst á að með tilkomu kerfisins verður mun erfiðara að falsa lyfseðla. mPREF Þetta kerfi er það sama og ePref nema hvað það er til notkunar á smátölvum og símum (mPref = mobile prescription form) Receptúrkerfi Receptúrkerfið er afgreiðslukerfi fyrir apótek þar sem öll öryggisforrit sem eru í ePREF verða líka. Bæði er hægt að „taxera" með venjulegum hætti og einnig tekur það á móti rafrænum lyfseðlum. Það verður gífurlegur vinnusparnaður í apó- tekunum því að lyfseðlarnir koma nánast fulltaxeraðir og lyfjafræðingurinn þarf bara að líta yfir þá og athuga hvort þeir séu ekki í lagi og hugsanlega setja inn TR kort eða gefa afslátt. Auk þeirra öryggis- forrita sem líka eru í ePREF verður örygg- isforrit í receptúrkerfmu sem athugar hvort sjúklingurinn sé að fá sama lyf frá öðrum lækni, jafnvel undir öðru sérheiti. doc.is er þegar farið að þjónusta 12 apótek á íslandi. Samstarfsaðilar Landssími íslands hf. Landssíminn er stærsti einstaki hluthafi í doc.is Hann hefur mikilvægu hlutverki að gegna í uppbyggingu kerfisins. Ströngustu öryggiskröfur þarf að uppfylla í samskipt- um gagnagrunna en öll gögn sem fara á milli frá lækni til apóteks eru dulkóðuð. Heilbrigðisstofnanir Starfsmenn doc.is hafa átt mjög gott sam- starf við lækna á Heilbrigðisstofnun Húsa- víkur. Þeir tóku þátt í þarfagreiningu ePref og þar verður kerfið prófað í nóvember á þessu ári. Betaprófun mun fara fram bæði á Húsavík og Akureyri. doc.is hefur gert viljayfirlýsingu við Heilbrigðishóp Ey- þings sem sarnan stendur af Heilbrigðis- stofnun Þingeyinga, Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri og Héraðslækninum á Norðurlandi eystra. A þessu svæði verður kerfið prófað og reynt áður en það fer á markað. Apótek Receptúrkerfi doc.is er í lokaprófun í þremur apótekum. Þetta kerfi hefur það umfram önnur kerfi sem eru í notkun í apótekum á íslandi í dag, að í því verða lyfjaupplýsingar og öryggisforrit fyrir apótekin. Einnig getur það tekið á móti rafrænum lyfseðlum. doc.is stefnir á það að aðlaga receptúrinn að öðrum kerfum sem fyrir eru í apótekum s.s. birgða- og bókhaldskerfum. Framtíðarsýn Framtíðarverkefni doc.is verða til dæmis á sviði nýrra möguleika í lyfjagjöf. Þar má nefna hagnýtingu Lyfjaerfðafræðinnar (e. Pharmacogenomics) við val á lyfja- meðferðum. doc.is stefnir að því að bjóða læknum upp á forrit sem les upplýsingar úr s.k. SNPs-prófum og ráðleggur, út frá niðurstöðum prófanna, hvaða lyf eru hentug fyrir tiltekinn sjúkling og hver skaðleg. Önnur framtíðarverkefni eru hönnun lyfjaforrita sem tengjast sérgrein- um lækna s.s. forrit varðandi bamalyfja- meðferðir og krabbameinslyfjaforrit, og upplýsingaforrit varðandi lausasölulyf og náttúrulyf sem ætluð eru lyfjafræðingum og lyfjatæknum þegar veita á sjúklingum ráðgjöf vegna notkunar. Þá eru óupptalin önnur hugbúnaðar- vekefni sem lúta að faglausnum fyrir heil- brigðisgeirann en tengjast ekki lyfjum. Þegar er hafin frumvinna að nokkrum slík- um verkefnum í samvinnu við aðila sem veitt geta nauðsynlega fagþekkingu í slík verkefni. Jón Pétur Einarsson er lyfjafræðingur og hefur starfað sem sérfræðingur hjá doc.is frá stofnun þess lblvumál 27

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.