Tölvumál - 01.10.2000, Page 29

Tölvumál - 01.10.2000, Page 29
Minning Ottó var einlægur áhugamaður um ís- lenskt mál og stuðningsmaður allrar við- leitni til að íslenskan færi ekki halloka í heimi upplýsingatækninnar. Barátta fyrir stöðu hennar þar hefur staðið allt frá því að fyrstu gagnavinnsluvélarnar komu til landsins og stendur enn, þó að hún færist stöðugt á nýjan og nýjan vettvang. Þar sem áður var strítt við stafatöflur og staf- rófsröð standa Islendingar nú frammi fyrir þeim vanda að kenna tölvum talað mál. Til að koma því verkefni í höfn er óskandi að til komi liðsmenn af því tagi sem Ottó var. Ottó var aldrei í vafa um forgangsröð hlutanna. í fyrirtækjum hans var það ávallt efst á blaði að viðskiptavinurinn, hver sem hann var, skyldi fá þá þjónustu sem best var unnt að veita. Til marks um það eru til sögur sem ekki verða raktar hér. Hann valdi sér samstarfsmenn af kostgæfni og kappkostaði að gera þannig við þá bæði í menntun, starfsumhverfi og öðrum kjörum að þeir yndu sér vel. Ottó fór nokkuð eftir tilfinningu sinni er hann valdi úr hópi um- sækjenda. Virðist það hafa gefist honum vel því að svo mikið er víst að stór hópur góðra manna og kvenna hefur átt með honum langt samstarf. Sinn eigin persónu- lega hag setti hann á stundum neðar í for- gangsröð verka sinna en hollt var. Ekki er svo hægt að ræða um Ottó A. Michelsen að ekki sé minnst á eitt helsta áhugamál hans, en það er starf hans á veg- um kirkjunnar. Það er sjálfsagt ekki mörg- um kunnugt hvemig hann, ávallt störfum hlaðinn, gat eytt jafn mörgum stundum og raun bar vitni, við byggingu Bústaða- kirkju, eða í öðrum störfum á vegum safn- aðarins, en allt það starf var honum mjög kært, og unnið af mikilli gleði og ánægju. Það fór heldur ekki á milli mála hvar rætur hans lágu, Skagafjörður var í hans huga sveitin eina, svo fremri öllum öðrum var hún, og djásnið sem hún bar nefndist Sauðárkrókur. Já, hann unni bernskuslóð- um sínum, og oft á tíðum lagði hann þar hönd á plóg, þegar honum fannst eitthvað mætti betur fara. Ottó var fæddur 10. júní árið 1920, son- ur Jörgens Franks Michelsen, úrsmiðs og kaupmanns á Sauðárkróki, er fæddur var í Horsens á Sjálandi árið 1882, og konu hans Guðrúnar Pálsdóttur frá Draflastöð- um í Eyjafirði, af Hvassafellskyni, sem fædd var 1886. Ottó lærði viðgerðir á skrifstofuvélum í Þýskalandi og Danmörku og útskrifaðist sem skriftvélavirki árið 1946. Eftir heim- komu frá námi það ár stofnaði hann fyrir- tækið Skrifstofuvélar, og byggði það upp í að verða eitt öflugasta fyrirtækið á land- inu, á sviði skrifstofuvéla, og þjónustu við þær. Arið 1950 tók hann að sér umboð fyrir IBM hér á landi og lærði viðhald gagna- vinnsluvéla IBM, m.a. í Svíþjóð. Þegar forráðamenn IBM ákváðu að stofna útibú á Islandi árið 1967 var hann ráðinn fyrsti forstjóri þess, og gegndi því starfi til árs- ins 1982. Eftirlifandi eiginkona Ottós er sveitungi hans Gyða, fædd 4. ágúst 1924, dóttir Jóns Þ. Björnssonar skólastjóra frá Veðramóti og Geirlaugar Jóhannesdóttur. Börn þeirra eru fjögur en fyrir hjónaband eignaðist Ottó tvö börn. Ottó segir sjálfur í viðtals- bók sinni og Jóhannesar Helga, sem út kom hjá Hörpuútgáfunni 1997 að Gyða hafí verið sér stoð og stytta alla tíð, í með- byr sem mótbyr. Kunnugir vita að þetta er síst ofsagt. Við viljum votta minningu Ottós A. Michelsen virðingu okkar fyrir hans mikla frumkvöðulsstarf á sviði vélrænnar gagna- vinnslu, sem lagði grunninn að því sem nú hefur þróast í það sem nefnt er upplýs- ingatækni, og er í dag orðinn einn af mik- ilsverðari þáttum í íslensku samfélagi. Jakob Sigurðsson Jóhann Gunnarsson Tölvumál 29

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.