Tölvumál - 01.12.2000, Side 13

Tölvumál - 01.12.2000, Side 13
Active Directory & Windows 2000 ingu á útstöðvum. Með henni er hægt að búa til margar uppsetningarímyndir (e: image), til dæmis eina fyrir hverja deild, með öllum þeim forritum sem við- komandi deild þarf að hafa uppsett. RIS notar PXE (Pre-Boot Execution Environ- ment), sem er staðlað skipanasett, til að senda uppsetningarímynd á ústöðvarnar. Flestar nýjar tölvur styðja PXE á netkorti og í BIOS. Þá er einfaldlega nóg að kveikja á tölvunni og stilla hana á PXE ræsingu, þá tengist hún RIS þjóninum þar sem hægt er að velja um þá ímynd sem á að setja upp. Fyrir þær tölvur sem ekki styðja PXE er notaður ræsidisklingur sem styður öll helstu PCI netkort á markaðin- um. Framvísun möppu og fjarvinnsluskjöl Til að tryggja að notandinn fái alltaf sitt umhverfi og sín gögn er hægt að nota framvísun rnöppu (e: folder redirection) til að vísa möppum sem innihalda gögn not- andans, eins og til dæmis möppumar My Documents og Application Data, á netdrif. Þar með er hægt að geyma öll frumgögn á netdiskum þar sem tekið er afrit reglulega. Ef notandinn er með ferðavél sem tengist með þröngum samskiptalínum er síðan hægt að stilla möppurnar þannig að þær séu tiltækar sem fjarvinnsluskjöl (e: offline files) á harða diski ferðavélar- innar þegar notandinn er ekki tengdur net- inu. Utstöðin sér sjálfkrafa um að sam- hæfa gögnin á vélinni og á netinu þegar tenging er til staðar. Lokaorð Hér hefur verið stiklað á stóm í helstu nýj- ungum Windows 2000. Það er ljóst að huga þarf mjög vel að allri skipulagningu og undirbúningsvinnu í kringum uppsetn- ingu á Active Directory. Mikil vinna getur farið í að breyta uppsetningunni eftirá ef grunnhönnunin var ekki ásættanleg. En ef vel er að verki staðið og allir nýju mögu- leikamir eru nýttir skynsamlega ætti starf kerfisstjóra að verða mun einfaldara eftir uppsetningu á Windows 2000 og Active Directory. Olafur Isaksson starfar sem kerfisstjóri hjá Áliti. Hann er með MCSE 2000, MCSE+I, CCA og CCSA gráður þín? Með opnun eins fullkomnasta og öruggasta vélasalar landsins hefur Álit lagt grunn að enn betri þjónustu við þau fyrirtæki og stofnanir sem vilja einbeita sér að kjarnastarfsemi og fela sérfræðingum Álits rekstur og umsjón tölvukerfa sinna. Hafðu samband við þjónustufulltrúa Álits og kynntu þér álitlega kosti í stöðunni - framtíðin er að veði! Rekstur tölvukerfa og óháð ráðgjöf Outsourcing and Consulting Álit ehf. • Engjavegi 6 • 104 Reykjavik • Simi 510 1400 • Fax 510 1409 • alit@alit.is • www.alit.is lölvumál 13

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.