Vísir - 14.01.1963, Blaðsíða 5
5
VÍSIR . Mánudagur 14. janúar 1963.
Síld í Meðallandsbugt
Bankasfjórar —
Framh. at 1. síöu.
íslands árið 1946 og lauk prófi í
viðskiptafræðum við Háskóla Is-
lands 1950 og hefur síðan starfað
hjá Félagi íslenzkra iðnrekenda,
verið framkvæmdastjóri þess síðan
1956 og gegnt ýmsum öðrum trún-
aðarstörfum fyrir iðnrekendur.
Hann var endurskoðandi Iðnaðar-
bankans frá stofnun bankans til
1956 og í stjóm verzlunarspari-
sjóðsins frá stofnun og í banka-
ráði Verzlunarbanka íslands h.f. til
1962. Hann' á einnig sæti í stjórn
blaðaútgáfu Vísis.
TOGO -
Framhald at hls. 1.
dagsmorgun með því að hópur
manna, sem áður hafði verið í
fótgönguliðaherdeildum lands-
ins réðst að forsetabygging-
unni. Þeir vöktu Olympio for-
seta og ætluðu að handtaka
hann. Sagt er að forsetinn hafi
veitt mótspyrnu og þá hafi
hann vægðarlaust verið skot-
inn. Önnur fregn hermir, að
hann hafi reynt að hlaupa út
úr forsetabústaðnum og ætlað
að beiðast hælis í bandaríska
sendiráðinu.
Atburður þessi er sem fyrr
segir ' talinn mjög alvarlegur.
Hætt er við að af honum leiði
aðra geigvænlega atburði í
stjórnmálalífi svertingjaríkj-
anna, en heitt hefur verið í kol-
unum að undanförnu í mörgum
þessara ríkja og talsvert verið
um banatilræði svo sem í
Ghana.
íþróttir —
Framhald af bls. 2.
f 16:19, en missa leikinn í 17:23
og taka þá góða skorpu og jafna
leikinn í 25:25’og var leikurinn þá
orðinn spennandi og fylgdust liðin
nú að um skeið en harka og kraft-
ur hinna eldri gerði út um sigur-
inn og allgóður lokasprettur gerði
út um leikinn, og sigurinn varð
32:27, sem er e. t. v. ekki sann-
gjöm úrslit eftir gangi leiksins,
því Keflvíkingarnir eru mun betur
leikandi lið en vantar sem sagt
alla hörku og ákveðni. Beztu
menn liðanna voru þeir Björgvin
Hjaltason, Ingvar og Kjartan hjá
Akranesi en hjá Keflavík hinir
bráðefnilegu unglingar Kjartan
Sigtryggsson og Karl Hermanns-
son.
Valsmenn voru fyrirfram
taldir ömggir með sigur í leikn
um, en þó töfðu Breiðabliks-
menn nokkuð fyrir sigri Vals
sem varð ekki eins stór og
vænta mátti. Valsliðið er skip-
að mjög góðum einstaklingum
og ætti að leika hraðari og létt-
ari handknattleik en hér var
á boðstólum. Valsmenn kom-
ust hér í 7:3 en Kópavogsmenn
jafna í 11:11 um miðjan hálf-
leik og I hálfleik er staðan 17:
13 fyrir Val. Aldrei komust
Kópavogsmenn nær að jafna í
síðari hálfleik en i 20:15 en
Valur seig smám saman fram
' úr og undir lokin var staðan
33:25, sem verður að teljast
allsanngjarnt enda er Valur
mjög líklegur til að berjast við
Ármann um sæti í 1. deild að
ári.
Beztu menn Vals: Sigurður
Guðjónsson, nýliði sem er mjög
góður línuspilari, Sigurður
Dagsson og Bergur. Hjá Breiða-
blik: Grétar, Ólafur, Reynir
Jónsson og1 Ármann J. Lárus-
son, glimukappi, sem oft varði
mjög vel f marki Breiðabliks.
Dómarar kvöldsins þeir Karl
Jóhannsson og Pétur Bjamason
dæmdu mjög vel.
GABOR -
Framn. n ols. 16.
mér fyrir flugfari til íslands.
Það bar mjög brátt að, að ég
fór frá Búdapest. Ég fékk allt í
einu leyfi til að fara úr landi
með allri fjölskyldu minni. Það
i má heita einsdæmi að sltkt
leyfi sé veitt og ég vildi hafa
hraðann á áður en yfirvöldin
breyttu þessu leyfi. Við pökk-
uðum farangri okkar niður í
sex ferðatöskur og fórum síðan
með járnbraut gegnum Tékkó-
slóvakíu, A-Þýzkaland og með
ferjunni frá Travemiinde til
Danmerkur.
Þér hafið verið hér áður?
— Já, þrisvar sinnum, fyrst
kom ég einn, síðan með konu
minni,. í þriðja sinn með elztu
dóttur minni, sem er nú 17 ára
og er við nám í Englandi. Og
nú er ég kominn hér ásamt
konu og tveimur yngri dætrum,
ellefu og sjö ára.
— Fáið þér íbúð?
— Ég vona það, annars er
erfitt með íbúðir í Reykjavík,
skilst mér og fyrst f stað bú-
um við í Reykjahlíð í Mosfells-
sveit.
Kynntist íslendingum
í Moskvu.
— Hvernig stóð á því að þér
fórum að venja komur yðar til
íslands?
— Það má segja að það hafi
verið alger tilviljun. Ég var
staddur austur í Moskvu á
íþróttamóti sem ríkisþjálfari
ungverska liðsins. Þá vildi svo
til að þar var hópur íslenzkra
íþróttamanna og ég sá einn
þeirra Björgvin Hólm vera að
æfa sig í grindahlaupi. Ég sá
a,ð hann hafði ekki réttan stíl
og sagði honum aðeins til í
nokkrar mínútur. Daginn eftir
komu tveir íslendinganna til
mfn og leiddu mig fyrir Jakob
Hafstein, sem spurði mig hvort
ég vildi ekki koma og þjálfa
ÍR-ingana. Ég var sem furðu
lostinn, en þótti þetta svo ein-
kennilegt og skemmtilegt, að
mér fannst ég ekki geta neitað
þvf.
— Og nú á að halda áfram
að þjálfa ÍR-inga.
— Já, iR-inga og aðra. Ég
hef aldrei neitað neinum góð-
um fþróttamanni um leiðbein-
ingu. Ég veit ekki hvernig það
verður nú.
Vilhjálmur og Jól.
— Hverjir haldið þér að séu
efnilegustu Islendingarnir fyrir
Olympfuleika?
— Það eru helzt tveir menn
sem ég veit um. Vilhjálmur
Einarsson er sá fyrri, það er
mikil synd að hann hefur ekki
fengið þá aðstöðu sem hann
þarf í lífinu til þess að geta
æft sig af kappi. Hinn er Jón
Ólafsson, ég byrjaði að þjálfa
hann og þóttist strax vita það,
að hann gæti komizt „hátt".
Ég spái þvf að hann muni geta
komizt enn hærra og þá getur
hann orðið meðal sterkustu
íþróttamanna.
— Hvað ségið þér um Val-
bjarnar-málið, urðuð þér ekki
undrandi yfir því að hann
skyldi fara úr IR?
— Jú, undrandi og þó ekki
undrandi, svarar Gabor. Mitt
þýðingarmesta starf verður að ■
finna og æfa yngri menni góð
íþróttamannsefni. Einn af ykk-
ar góðu mönnum er líka Kjart-
an hlaupari.
Við tefjum Símon og Edelka
konu hans ekki lengur. Þau eru 1
breytt eftir langa ferð Þeim
finnst ekki kalt á fslandi
Heima hjá þeim var svo kalt
að Dóná var að leggja f fyrsta I
skipti í mörg ár.
Síld er í Jökuldjúpi, en
hreyíir sig Iítið, heldur sig
á 40—50 faðma dýpi, svo
að nætur bátanna ná ekki
til hennar. Einn Akranes-
bátanna fékk þar þó 50
tunnur. Tunglsljós var og
bjart og eins og að
vanda þegar svo er,
kemur síldin ekki upp „En
við vonum“, sagði Stur-
laugur Böðvarsson útgerð-
armaður á Akranesi, sem
Vísir talaði við í morgun,
„þetta lagist í smástraum-
inn síðar í vikunni og hún
komi þá upp á Kantana“.
Sturlaugur kvað Sigurð á leið
að austan með 750 tunnur, en
gangan væri nú komin „austur úr
öllu“.
„Nú hefur verið logn á 4. viku
og man vart nokkur maður aðrar
eins stillur á þessum tíma árs, —
framhald síldveiðanna nú er undir
gæftum komið að verulegu leyti,
og að náist til sfldarinnar, sem nú
Bruninn —
Framh al ols 1
fyrst og fremst að átelja það,
enda er það furðulegt, að bruna
boði, sem er festur á Bíóhöllina,
næsta hús við, reyndist óvirk-
ur. Varð þvf að grípa til þess
ráðs að hringja í lögregluna,
sem kom boðum til slökkviliðs-
ins.
Þá gérðist sá alvarlegi at-
burður, að rétt þegar eldurinn
hafði gosið upp, bar að á bif-
reið ofan úr Borgarfirði tvo
menn, sem voru ölvaðir og
vildu þeir fara að ryðjast inn
f hið brennandi hús til að
bjarga munum úr því. Þeir
gerðu þó líéið annað en að
flækjast fyrir og að lokum
þurfti að bjarga öðrum þeirra
út úr kófinu.
Auk þeirra þriggja, persóna
sem bjuggu á efri hæð hússins
áttu tveir ungir piltar heima á
neðri hæðinni. Þeir voru í fasta
svefni, en vöknuðu við hrópin
og hávaðann og komust út.
Húsið var gamalt járnvarið
timburhús, kallað Halldórshús.
Það stóð við hliðina á Bíóhöll-
inni og var eign Haraldar
Böðvarssonar. í því bjuggu
starfsmenn hans og var það
allt aðkomufólk, Kristján heit-
inn og kona hans úr Reykja-
vík.
Ekkert er vitað með vissu um
eidsupptök. Eldur virðist hafa
komið upp í gömlu eldhúsi, sem
nú er gangur og ekkert eld-
stæði þar. En á sama stað er
rafmagnsinntaka í húsið. Rann
sókn stendur enn yfir.
Aki Jakobsson —
Framhald ai b)s 16
hvað ylli styrk kommúnismans
á íslandi og í Finnlandi, borið
saman við hin Norðurlöndin.
Mistök lýðræðisflokkanna í
þessum iöndunr, svaraði ^ki.
Einnig var ræðumaður spurð-
ur um það hvern fjárhagtiegan
stuðning íslenzkir kommúnistar
fengju erlendis frá. Því svar-
aði Áki m. a. þannig að aldrei
mundi koma til þess að útkoma
Þjóðviljans stöðvaðist vegna
fjárskorts.
er í Jökuldjúpinu.“
Minni bátarnir hættu síldveið-
um og upp úr miðjum janúar f
fyrra ,en stóru bátarnir voru leng-
ur, og tveir bátar frá Haraldi
Böðvarssyni & Co. voru á sfld-
yeiðum allt árið. Lítið veiddist f
febrúar og marz, en í apríl fór að
veiðast sumargotssfld.
Glæðist síldveiðin ekki á ný
bráðlega, sagði S. B„ fara sumir
bátar að fara á þorskveiðar, en
aðrir halda áfram eitthvað lengur
a.m.k. )
Á Akranesi er eftir um 10 daga
vinnsla f verksmiðjunni. Nokkur
töf er sem stendur vegna bilun-
ar í gær, en viðgerð mun verða
lokið síðdegis í dag.
Nokkrir bátar eru væntanlegir
til Reykjavíkur að austan síðdegis
í dag eða nótt, en það er orðin
löng sigling austur þar sem gang-
an er nú, en það er suður af Al-
viðruhömrum og út f Meðallands-
bugt, sem hún veiðist, og hafa bát-
arnir verði þar undanfarnar 2 — 3
nætur. Bátarnir eru þessir: Sigurð-
ur Bjarnason 1700, Helgi Fló-
ventsson 400, Halldór Jónsson
500, Steinunn 300, Skarðsvík 700,
Hafþór 700, Sæfari 500, Akraborg
1400, Jón Jónsson 700, Guðmund-
ur Þórðarson 600 og Björn Jóns-
son 500.
Jakob Jakobsson fiskifræðingur
sagði Vísi um kl. 11, að ekki væru
enn fyrir hendi heildartölur um
veiðina í nótt, en hún var nær
eingöngu í Meðallandsbugtinni
sem stendur. Taldi J. J. líklegt, að
hún mundi halda eitthvað kyrru
fyrir þar, og vart fara austar. —
Get.. þarna því enn orðið nokkur
veiði, en sigling er löng frá ver-
stöðvum við Faxaflóa á þessi mið,
svo að nánari gætur verða gefnar
Jö’’ ’ijúpssfldinni.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur blaðaútgáfunnar Vísir h.f. verður
haldinn í Leikhúskjallaranum þriðjudaginn 22.
þ. m. kl. 3,30 e. h.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn blaðaútgáfunnar Vísir h.f.
00|000|00000000000000|0 0Ioooooooooooooooooc
1 1 3 * 5 6 ’ > s 10 II 12 13 14 15 16 in« 19 !0 21 22 23 J4 25 æ 27 21 29 » 3t 32 3J 34 35 3« 37 38 39 40 «1 «2 4
1111111111■111111I11111■111111111111111111
2 2 2 I 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 | 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2
Framtíðarstörf
IBM á íslandi þarfnast aukinna starfskrafta í fjölhæf
teknisk störf.
í fyrsta Iagi: Óskum eftir nema í skriftvélavirkjun, á
aldrinum 17—21 árs. Viðkomandi þarf að hafa lokið
námi í verknámsdeild gagnfræðaskóla eða hafa hlið-
stæða menntun. Æskilegt er, að hann hafi nokkra
kunnáttu í ensku og einu norðurlandamáli.
í öðru lagi: Vér leitum að manni, sem hefði áhuga á
að nema viðgerðir á IBM rafritvélum, IBM rafklukku-
kerfum og stimpilklukkum. Nauðsynlegt er, að um-
sækjandi hafi áhuga á tækni og nokkra þekkingu á
rafmagni, ensku og einu norðurlandamáli.
I þriðja lagi: Óskum.vér eftir að ráða ungan áliuga-
saman mann til að annast viðhald og viðgerðir á
IBM götunarkerfisvélum. Viðkomandi þarf að hafa
staðgóða þekkingu á ensku'og einu norðurlanda máli.
Engrar sérstakrar menntunar er krafist, en staðgóð
þekking á t.d. „electronic", útvarpsvirkjun, rafvéla-
virkjun er æskileg.
Þessi þrjú störf bjóða upp á skemmtilega vinnu og
framtíðarstörf fyrir hina réttu menn. En umsækjendur
þurfa að vera góðir ' umgengni. Reglusemi áskilin.
Umsækjendur um störf þessi þurfa að vera reiðubúnir
til að gangast undir hæfnispróf og einnig áð geta farið
utan til frekari náms, ef þörf krefur.
Umsóknir skoðast sem trúnaðarmál og upplýsingar
verða ekki gefnar í síma.
Umsóknareyðublöð eru á skrifstofu vorri, Klappar-
stíg 25—27.
666fiKafifilB66G666G666l6666|6666666666B66E666
7 7 7 7. OTTÖ A. MICHÉLSEN 7 7 7 7
KLAPPARSTTG 25- 27 ....
; 8"8 PÖSTH. 337 SfM 1,20560
9 9 9 3 9 9 S í 9 3 3 3 S ■ S'3 9 S 9 a s's 9 9 S S 9 9 I 3 S 9 9 9 9 9 S 9 9 9 9 9 9
12 3 4 ,5 I 7 I I 10 11 12 13 14 15 1« 17 II 19 20 21 22 23 24 25 26 7 7 2« 29 3 0 31 32 33 34 35 36 37 31 39 40 41 42 43