Vísir - 14.01.1963, Blaðsíða 7
V í SIR . Mánudagur 14. janúar 1963.
Eggert Stefánsson
MINNINGARORÐ
Frú Elisabet Jónsdóttir
Bjarnason — Minning
í morgun var minnzt í dóm-
kirkjunni Eggerts Stefánssonar,
söngvara og rithöfundar, sem and-
aðist suður á Ítalíu 29. desember.
s.l. Hafði hann átt við nokkra van-
heilsu að stríða á síðasta ári, og
verið í sjúkrahúsi um skeið, en
vinir hans og œttingjar munu hafa
talið, að hann væri á góðum bata-
vegi, þegar lát hans bar að hönd-
um.
Eggert Stefánsson varð 72 ára
gamall, fæddur hér í Reykjavík 1.
desember 1890. Hann fór ungur
utan til söngnáms, og hélt alla
leið suður til Ítalíu, sem fátítt var
þá, og ól lengstum aldur sinn er-
lendis eftir það. Hann kvæntist
1920 á Ítalíu, Leliu Cozzola-Crespi,
sem varð honum bezti lífsföru-
nautur og studdi hann jafnan í
baráttu hans á listbrautinni og
fyrir að gera veg íslands sem
mestan. Lifir hún mann sinn.
Þótt Egg~rt væri í aðra röndina
heimsborgari, var' hann þó jafn-
framt sannur íslendingur, raunar
svo rammíslenzkur, að fáir voru
honum líkir á því sviði. Hann vildi
hlut íslands sem mestan í öllum
efnum, og taldi söngferil sinn ekki
sízt framlag sitt í þágu föðurlands
síns, kynningarinnar á list og
menningu þjóðar sinnar. Hvar
sem hann kom fram, söng hann
íslenzk lög, kynnti söngmenningu
þjóðar sinnar, og hér heima efndu
hann og Sigvaldi bróðir hans oft
til Kaldalónskvöldvöku, þar sem
söngvarinn hyllti tónskáldið, sem
var meðal frumherjanna á sviði
tónlistarinnar.
Eins og fyrr segir var Eggert
löngum erlendis. Hann ferðaðist
bæði austan hafs og vestan, og
reyndi hvarvetna að glæða áhuga
manna fyrir málefnum íslands, því
að í þeim efnum var hann manna
ósveigjanlegastur. Enda munu fá-
ir hafa fagnað eins innilega, þeg-
ar lýðveldið var endurreist 1944,
og afmælisdagar hans — 1. des-
ember — voru honum ekki sízt
fagnaðardagar vegna þess áfanga,
sem náð var í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar, sem náð var á einum
þeirra.
Siðari ár ritaði Eggert marg-
ar greinar, sem komu í ýmsum
blöðum, eða sendi útvarpinu er-
indi, og einnig gaf hann út endur-
minningar sínar í nokkrum bind-
um.
Vinir hans hugsa hlýlega til
hans, þegar hann er nú kvaddur
hinzta sinni. Að vfsu hvílir duft
hans í ítalskri mold, sem hann mat
mikils, en andinn er fyrir löngu
"loginn heim til Fróns.
Vinur.
t
Átján svani sá ég.
— Einn bar þó af! —
Þeirra mestur?
— beztur?
Heimska að hugsa svo.
Einn í kvöl efans
— kvöl sefans
' kom ég til þín.
Komst þú til mín. —
Einn í smæð minni og smán.
Einn —
í æskunni »
voninni
ástinni
ellinni
upprisunrti.
Einn í guði.
Einn í öllu lífi.
Einn í alheiminum:
Einrí
í loganum,
sem í upphafi
kveikti líf þitt
og lýsti þér:
Maður — maður!
Innan múra
þjáninga þinna i
þér ég heilsa.
Svanur —
í hausthúmi
undan
heilum mána.
Friður — »
í þögn og frelsi.
Söngur —
höfin og stormarnir hlýðá.
Þögn í friði.
Snæfagur —
eins og fannhrím
á fjalltindi —
flugmóður án fylgdar
vinur vatns og lofts —
Svanur!
ísland er eyja
í úthafi
eign þín
ungi maður. i
Flug og flugsjár.
Fjörðurinn mynnist
við álinn.
Állinn við flóann.
flóinn mynnist
við úthafið allt:
vefjarhöttur
indverjans
ártalslaus.
Heiðríkur himin
hájökulbunga
endalaust úthaf
íslandi allt.
Sá ég í svaninum
| lífið sjálft og lækinn
ómþýðan iðandi
kliðmjúkan kliðandi
svífa yfir sæ —
Sköpunarþrá.
Löngun lífs
Formfegurð.
Upphaf heims.
Aldur jarðar
— il divino.
Maður!
Klaki augnanna
þýðist.
Þiðnar hjartað.
Straumþörf
lítils lækjar
— næring nætur —
nýmánabirta:
Vakir
í svansins sál.
Blundar
í brjósti manns.
Einveran,
sem mannleg tengsl
e:u ofin úr:
Lífið f læknum
— streymið —
sefur-vakandi
í svaninum.
Syngur
án þess að rjúfa
öræfaþögn.
Vonin
'Vllist fýrirheitum.
Eggert Stefánsson!
Einn sá ég þig
í svanahópi.
Einn sé ég þig
í svanalíki.
— il divino —
11 divino.
Skuggi.
Fædd 3 ágúst 1899.
Dáin 7. Janúar 1963.
Þegar mér barst til eyrna að mín
einlæga góða vinkona Elísabet
Bjarnason væri látin, setti mig
hljóðan. Hafði hún þó nokkur síð-
astliðin ár kennt sjúkdóms þess,
sem varð henni að aldurtila. En
því er nú einu sinni þannig hagað,
að maður á svo erfitt með að
skilja, að þeir, sem okkur þykir
vænzt um, séu horfnir sjónum okk-
ar hér á jörðu fyrir fullt og allt.
Frú Elísabet var dóttir Jóns Jóns
sonar óðalsbónda og pósts í Galt-
árholti og konu hans, Sigríðar Guð-
mundsdóttur frá Kvíum í Þverár-
hlíð, og átti hún því til góðra að
telja. Hún var alin upp á stóru
heimili, átti sex alsystkin og einn
uppeldisbróður. Var heimili henn-
ar alkunnugt fyrir myndarskap,
mikla glaðværð og gestrisni.
Hún fór, sem að líkum lætur,
snemma hingað til Reykjavíkur til
að leita sér menntunar, og þegar
hún var 17 ára gömul, hitti hún á
leiðinni upp í Borgarnes piltinn
sinn f fýrsta skipti, þann mann,
sem varð frá þeim tíma hennar
einlægi og tryggi lífsförunautur,
Hjálmar Bjarnason, nú bankafull-
trúi. Þau giftu sig 10. júní 1921
og hafa alla tíð átt heima hér í
bænum.
Það er margs að minnast eftir
rúmlega 40 ára trygga og fölskva-
lausa vináttu, því Lísa — en svo
var hún alltaf kölluð af okkur vin-
unum — var sú elskulegasta og
hjartahreinasta kona, sem ég hef
kynnzt. Alltaf var skapið jafn gott
á hverju sem gekk, hvort heldur
það voru veikindi hennar eða eitt-
hvað annað sem á bjátaði eða
hvort við sátum í glöðum hóp, þau
tvö Lísa og Hjálmar og við hjónin,
eða þar sem stærri hópar mættust,
og þá mjög oft heima hjá þeim
hjónum, þá var hún stór, já, stærst
þegar flest var fólkið og mest fyrir
húsmóðurina að gera, því glað-
værðin, þessi meðfædda glaðværð,
færði yl og birtu til okkar allra,
sem með henni vorum. Ekki má
g'eyma öllum skemmtilegu ferða-
| lögunum, sem við hjónin fórum
i svo oft með þeim Lísu og Hjálm-
ari, og því síðasta í sumar er leið.
Var hún þá mikið lasin, en hún
vildi koma með okkur, því hvergi
leið henni betur en að vera með
sfnum hjartkæra eiginmanni, skyld
mennum og vinum.
„Ég á svo bágt með að hugsa
mér hann Hjálmar án hennar Lfsu“,
varð tveim vinum mínum að orði,
j sitt í hvoru lagi, þegar þau fréttg
lát hennar, og þetta eru orð að
sönnu, því samstilltari og einlæg-
ari hjónum hef ég ekki kynnzt.
Hún vildi vera og var allt fyrir
Hjálmar og hann lagði sig fram í
öllu til að geðjast henni. Þau nutu
þess að gera hvoru öðru til hæfis,
því kærleikurinn var aðalsmerki
þeirra beggja.
Þau eignuðust fimm börn, sem
öll eru á lífi, Gunnhildur Ingibjörg
var gift Knúti Einarssyni, Jón
Haukur, starfsmaður hjá O. E. C.
D. í París, giftur franskri konu,
Jeannette, Emil Nicolai, starfar við
Landbúnaðarháskólann í Guelph
Ontario, Canada, giftur danskri
konu, Lis að nafni, Sigríður, gift
Sverri Guðvarðssyni, 1. stýrimanni
á m.s. „Esju“ og Hörður, símvirkja
verkstjóri, giftur Bryndísi Bjarna-
dóttur frá ísafirði. Eru þau öll sér-
staklega elskuleg, skemmtileg og
góðir félagar og feta f fótspor for-
eldra sinna. Barnabörnin eru nú
orðin 16, mjög efnileg og góð börn,
sem vantar nú mikið þegar amma-
Lísa er horfin.
Ég veit Hjálmar minn, að eng-
inn hefur misst eins mikið og þú,
börnin þín og barnabörnin, en er
það ekki dásamlegt að eiga minn-
ingar, sem engar eru nema góðar,
um ástkæra eiginkonu, mófjur,
tengdamóður og ömmu, en það veit
ég að þú og þið öll eigið aðeins
um elsku Lísu. Þetta er svo sárt í
bili, en það er mín einlæga sann-
færing, að endurfundir eigi sér stað
síðar og gleðin þá svo margföld,
er við hittumst aftur.
Vertu sæl, Lísa mín. Minn fengur
var að kynnast þér og hafa átt þig
fyrir vin. Hafðu þakklæti okkar j
hjóna fyrir allt og allt. Þér munum
við aldrei gleyma.
Stefán A. Pálsson.
\Krefst 610þúsund
króna skaíabóta
Halldór Guðlaugsson, bóndi í
jndverðanesi í Grímsnesi, sem
handtekinn var i desember 1960, á-
sakaður af barnaverndarnefnd Ár-
nessýslu fyrir að misþyrma börn-
um sínurn og sendur til geðrann-
sóknar á Klepp og síðan í gæzlu-
varðhald á Litla Hrauni, hefur
'iöfðað mál á hendur ríklssjóði og
'rafizt skaðabóta vegna ólög-
íætra aðfara gegn sér, að hans
lómi.
Á Kleppi var Halldór fundinn
„hvorki fáviti né geðveikur, varla
geðveill í venjulegustu merkingu
þess orðs eða á mörkum þess. „Fyr
ir geðrannsóknir var Halldór flutt
ur á Litla Hraun, en saksóknari
ríkisins fyrirskipaði að ekki yrðu
frekari aðgerðir f málinu af hálfu
ákæruvaldsins. Hafði Halldóri þá
verið sleppt.
Halldór krefst þess nú að fá
610 þús. kr. í skaðabætur, þar af
110 þús. kr. fyrir fjárhagslegt tjón
vegna ráðningar ráðsmanns, hey-
kaupa og förgunar búfjár o. fl.
Talið er að dómur muni ekki
falla fyrr en í vor.