Vísir - 14.01.1963, Side 8
8
V1SIR . Mánudagur 14. janúar 1963.
Jtgetandi: Blaðaútgátan VISIR
Ritstjórar: fíersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjórí: Axel Thorsteinsson
Frétiastjóri: Þorsteinn 0 rhorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingai og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Askriftargjald er 55 crónui á mánuði
I lausasölu 4 kr. eim. — Simi 11660 (5 Itnur).
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f
Verzlunarfrelsið nær algjört
Þeir eru margir sem minnast þeirra ára, er varla
mátti flytja einn einasta hlut inn í landið án þess að
fyrir honum þyrfti leyfi. Og þau Ieyfi voru ekki auð-
fengin. Biðstofur hinna opinberu viðskiptaráða voru
þétt setnar og löng var píslarganga verzlunarmanna
áður en tókst að kría út heimildina. Kaupmenn utan af
landi urðu að dveljast hér í höfuðborginni langtím-
um saman í leitinni að leyfunum.
Þetta var hörmungarskipulag, tímabil haftanna og
hamlanna og þjóðnýtingarstefnunnar. Nú er það sem
betur fer að mestu á enda og munu víst allir verzlunar-
menn þessa lands varpa öndinni léttar. Almenningur
þarf ekki lengur að vakna um hánótt til þess að fara
í biðraðir búðir eru ekki lengur hálftómar og vöru-
úrvalið sama sem ekki neitt.
Nú er verzlunin nær orðin alfrjáls og um áramótin
var frelsið enn aukið. Þrír fjórðu hlutar innflutnings-
ins er nú alfrjáls og engum hömlum lengur háðar.
Fjórðungur hans er enn bundinn við jafnkeypislöndin.
Er það gert til þess að viðhalda mörkuðunum í Austur
Evrópu, þótt kommúnistar geipi hátt um að verið sé
að spilla þeim og loka af hálfu íslendinga.
Sú þjóð, sem býr ekki við verzlunarfrelsi er ekki
sjálfstæð þjóð. Henni vegnar ekki vel. Það þekkjum
við fslendingar af eigin sögu. Því fagna allir lands-
menn verzlunarstefnu núverandi ríkisstjórnar og bíða
þess dags, er engar hömlur eru lengur eftir á þessu
sviði.
Áki skýrir frá
Fyrrverandi ráðherra kommúnista á íslandi, Áki
Jakobsson, var að því spurður á Varðbergsfundi á
laugardaginn hve mikið fé kommúnistar hefðu fengið
erlendis frá til starfsemi sinnar á undanförnum árum.
Því svaraði Áki m. a. þannig að ekki myndi nokkum
tímann koma til þess að Þjóðviljinn þyrfti að stöðvast
vegna fjárskorts.
Það hefir lengi verið kunnugt að kommúnista-
flokkurinn íslenzki er rekinn fyrir erlent fé. Hins vegar
er það mál þannig vaxið að ekki hefir verið unnt að
færa að því skjallegar sannanir. Svo margar duldar
leiðir eru til þess að koma erlendu fé inn í landið.
Þess vegna er þessi uppljóstran fyrrverandi ráð-
herra kommúnista, sem um langt árabil var einn helzti
foringi flokksins, mjög mikilsverð. Hér stendur það
svart á hvítu að Þjóðviljinn er rekinn fyrir austrænt fé.
Margir góðir fslendingar hafa Ijáð kommúnistum
fylgi sitt í þeirri frómu trú að hér væri um umbóta-
sinnaðan verklýðsflokk að ræða af íslerízkum toga
eingöngu spunninn. Þeir hafa ekki viljað trúa því, er
frá því hefir verið skýrt í öðrum blöðum, að flokkur-
inn væri rekinn af erlendum ríkjum fyrir erlent fé.
En nú er ekki lengur unnt að berja höfðinu við stein-
inn. Ráðherra flokksins hefir talað. ,
sóknir og greiningar á jarðefn-
unum eru mjög þýðingarmiklar
fyrir jarðhitarannsóknirnar í
heild.
— Eru fleiri rannsóknir, sem
þarna koma til greina?
Efnagreining
vatnsins.
— Já, það er efnagreining á
heitu og volgu vatni þar sem
volgrur finnast eða laugar á yfir-
borðinu. Við tökum þá sýnishom
af vatninu og fáum það efna-
greint hjá iðnaðardeild Atvinnu-
deildar háskólans.
Slík efnagreining gefur oft
bendingar um hvort vænta megi
verulegs hita á viðkomandi stað
eða ekki. Það er annars vegar
kísilsýran í vatninu sem þýðingu
hefur í því sambandi, en hins
vegar hlutfallið milli hitastigs og
vatnsmagns á hverjum einstökum
stað.
Eitt gott dæmi um það síðar
nefnda er frá Leirárlaug í Borg-
arfirði. Þar hefur fram að þessu
verið lítið vatnrennsli, aðeins 0,2
lítrar á sekúndu, en hitastigið var
hins vegar allhátt.
Þarna voru gerðar miklar við-
náms og segulmælingar, en þær
gáfu svo lítið til kynna, að við
treystumst ekki til að mæla með
borun þegar í stað, heldur létum
sprengja 2—3 metra djúpan glg.
Þrátt fyrir þetta jókst vatnsmagn
ið enn ekki neitt, en hitastigið
jókst úr 53° C. £ 64 gráður. Með
þessu töldum við okkur hafa feng
ið örugga von, sem stappaði
nærri vissu að þarna myndi vera
um meira vatnsmagn að ræða.
Samkvæmt niðurstöðuútreikningi
sem Gunnar Böðvarsson verkfræð
ingur hefur gert má að minnsta
kosti vonast eftir 2 sekúndulítra
vatni í jörðu þar sem 50 stiga
hiti er á yfirborði.
— Var þá tekið til við að
bora?
— Já strax þegar þessi niður-
staða hafði fengizt. Og borholan
gaf ágætan árangur, eða 8 lítra
á sekúndu af 70 stiga heitu vatni.
— Hefurðu skoðað marga staði
og víðsvegar um land?
Jarðhitarann
Staðirnir skipta
hundruðum.
1 Námaskarði. Þar eru miklar jarðhitaframkvæmdir fyrirhygaðar í
sambandi við væntanlega kísilgúrvinnslu úr Mývatni.
Jarðhitarannsóknir á
íslandi eru þýðingar-
meira mál en flesta grun-
ar og hafa þegar borið
hina ákjósanlegustu hag-
nýta þýðingu þótt þær
séu enn að mestu Ieyti á
byrjunarstigi.
Einn þáttur jarðhitarannsókn-
— Er jarðfræðirannsóknin und
irstaðan?
— Já, að þvi leyti að það er
byrjað á henni. Ef talið er lík-
legt eða jafnvel vissa fyrir þvi
að jarðhiti sé fyrir hendi á ein-
hverjum stað og ef óskað er eftir
að sá staður sé nánar athugað-
ur, er venjulegur gangur málsins
sá, að jarðfræðingurinn er fyrstur
sendur út af örkmni. Hann at-
hugar ytri aðstæour, þ. e. a. s.
hvort nokkuð sjáist jarðfræðilega
athyglivert er bendi til jarðhita-
einkenna í einhverri mynd. Sjái
hann sjálfur ekkert, eins og t. d.
þar sem ekkert berg stendur upp
úr jarðveginum, verður að treysta
anna, og £ raun og veru sá fyrsti
þeirra, er £ sambandi við jarð-
fræðilegar athuganir á þeim stöð
um þar sem jarðhita hefur orðið
vart, eða l£kur taldar til að hann
sé fyrir hendi. Þetta mál bar ný-
lega á góma við Jón Jónsson
jarðfræðing, en hann hefur frá
þvf á miðju sumri 1958 unnið
við jarðhitadeild Raforkumála-
skrifstofunnar
Skipting verkefna.
— Hvert er hið raunverulega
verksvið þitt í þessu starfi og
hvernig er því háttað?
— Jarðhitarannsóknirnar í
heild byggjast á samvinnu jarð-
fræðings, jarðeðlisfræðings og
jarðefnafræðings. Með samvinnu
þessara þriggja sérfræðinga er
hægt að afia veigamikillar vitn-
eskju um það hvort vinnandi veg
ur er að hagnýta sér jarðhita þar
sem hann finnst í jörðu, eða ef
til vill réttara er að segja hvort
jarðhitamagnið sé nógu mikið til
að það svari kostnaði að beizla
það.
á jarðeðlisfræðilegar mælingar, — Ég hef ekki talið þá, en
svokallaðar viðnámsmælingar eða gæti imyndað mér að þeir skipti
segulmælingar. hundruðum staðirnir sem ég hef
— Hver annast þær? kannað viðvsvegar um landið. Það
er ekki vitað nema um eina sýslu
— Guðmundur Pátmason eðlis-
fræðingur. Við höfum unnið mik-
ið saman á undanförnum árum.
En nýlega hefur Raforkumála-
stjórnin ráðið þriðja sérfræðing-
inn í þetta rannsóknakerfi, en
það er dr. Guðmundur Sigvalda-
son jarðefnafræðingur. Hann hef
ur haft með höndum rannsókn á
þeim sýnishornum af mylsnu og
leir, sem kemur upp með stóra
gufubornum.
1 þeim tiífellum, þar sem berg
hefur ummyndazt vegna jarðhita,
koma fram svokallaðir leirminer-
alar, en þeir eru svo fínkornað-
ir, að ekki er unnt að greina þá
sundur í smásjá, og verður þess
vegna að greina þá með röntgen
tækjum. Nýlega hefur Atvinnu
deild Háskóla íslands aflað sér
slfkra tækja og dr. Guðmundur
Sigvaldason er sérfræðingur í
notkun þeirra En þessar rann Jón Jónsson jarðfræðingur.
tu