Vísir - 05.02.1963, Blaðsíða 2
2
V1SIR . Þriðjudagur 5. febrúar 1963.
>*&Lrn i 'rn n1 t=n
V//////A '///////// ////////
Bobby Carroll
að blása lífi í
frá Celtic á
framlínuna
St. Mirren keypfi hann um heigina
fyrir 7000 pund
St. Mirren bættist um helgina
góður styrkur, er félaginu tókst
loks að semja við Celtic um kaup
á hinum góða leikmanni Bobby
Carroll, en fyrir hann gaf St. Mirr
en 7000 pund af 27.000 pundum,
sem fengust í fyrri viku fyrir Mc-
Lean, sem fór yfir til Rangers.
Þannig fór fyrstu upphæðin af því
fé yfir til óvinafélags Rangers, en
Rangers og Celtic skiptast svo sem
kunnugt er á um lýðhylli og hafa
leikar liðanna oft orðið allsögu-
legir af þeirri ástæðu.
Bobby Carroll átti daginn eftir
að samningar voru undirritaðir að
leika með St. Mirren í Aberdeen,
en lengi vel leit vel Ut með að sá
leikur færi fram, en á síðustu
stundu varð að fresta honum sem
öðrum leikjum í 1. deild.
Carrol leikur yfirleiU miðherja
eða h. útherja, en hann hefur leik-
ið nokkuð með aðalliðinu. En síð-
ustu leiki hefur hann verið með
varaliði félagsins. Framkvæmda-
stjórar félagsins segja að þeir hafi
samþykkt að selja Carrol vegna
ÞÓRÓLFUR BECK (nr. 10) skallar að marki Berwick í síðasta ieik
St. Mirren, sem var í bikarkeppninni og færði 3:1 útisigur fyrir Mirren.
þess að þeim þyki ekki rétt að
svo góður leikmaður fái ekki að
koma fram 1 dagsjjósið. Segja
skozku blöðin, að örugglega sjái
Celtic-menn eftir Carroll, en sann-
leikurinn er sá, að stærstu félögin,
eins og Rangers og Celtic, eiga of
marga góða menn, og því er það
oft svo, að þeir verða að sitja á
varamannabekkjum og jafnvel
horfa á mun lakari leikmenn í liði
andstæðinganna.
St. Mirren hefur nú verið
boðið í keppnisferðalag í sumar
og ákvörðunarstaðurinn er
KENYA í hinni svörtustu Af-
ríku, en ekki er vitað hvenær
sumarsins ferðalagið verður, og
ekki vitum við hvort Þórólfur
Beck fer þá ferð, en eflaust
mun honum standa það til boða
eins og öðrum lcikmönnum.
HM í CHILE færði
mikinn hagnað
Heimsmeistarakeppnin í Chile
í fyrrasumar gaf þátttökulönd-
unum álitlegar fjárhæðir, að þv£
er segir í fréttum frá Chile, og
hefur hagnaður aldrei orðið svo
mikill á HM í knattspyrnu fyrr.
Samtals greiddu 903.572 áhorf-
endur 160 milljónir króna fyrir
að horfa á leiki keppninnar.
1 Sviss varð hagnaðurinn ca.
62 milljónir, en í Svíþjóð 110
millj. Er því um stighækkandi
tekjur að ræða í keppninni. Til
viðbótar munu sjónvarpstekjur
eiga eftir að koma til skila, en
þær nema um 7 miiljónum
króna.
I'átttökuþjóðirnar 16 i Chile
íengu um 80 milljónir króna til
skiptanna, Chile mest, 10 millj.
(6 leikir). Heimsmeistararnir frá
Brazilíu voru einnig með sex
leiki, en fá þó talsvert minna
en gestgjafarnir, eða 8,5 millj.
kr., V.-Þýzkaland er í 3. sæti
og þá Júgóslavar og Tékkar, en
í neðstu sætunum. eru Búlgarfa
og Columbía, en fá þó upp úr
krafsinu rúmar 2 milljónir króna
fyrir 3 leiki.
Chile fékk auk þessa 30 millj.
kr. fyrir að halda keppnina, sem
þýðir að keppnin færir Chile
góðan hagnað. Sama er um Evr-
ópuþjóðirnar að segja, að þrátt
fyrir geysilegan ferðakostnað,
hefur samt orðið verulegur
gróði af þátttökunni. Leikmenn,
sem þátt tóku í keppninni, fá
ekki að vera með í keppni OL,
sem hefst næsta sumar, enda
„stimplaðir" atvinnumenn.
Næsta HM i knattspyrnu er í
Englandi 1968 og er vinna haf-
in við undirbúning keppninnar.
Frjáls-
íþróttamót-
in í sumar
Frjálsíþróttasamband Islands
hefur nú gengið frá skrá yfir þau
mót, sem FRÍ gengst fyrir á árinu
1963. Hér er um að ræða meistara
mótin innanhúss og utan, lands-
keppni við Dani, frjálsíþróttamót
FRÍ o. s. frv. Hér er skráin:
Drengjameistaramót íslands
(innanhúss) 10. febr. haldið í
Tþróttahúsi Háskólans.
Sveinameistaramót Islands (inn-
anhúss) 16. febrúar haldið á Akra-
nesi.
Unglingameistaramót íslands
(innanhúss) 24. febrúar, Selfossi.
Meistaramót Islands (innan-
BOBBY CARROLL — A að flytja nýtt lif í framlínu St. Mirren.
Parísar- og Spánar-
farar gegn ,Pressu'
Pressulið og landslið heyja
keppni að Háiogalandi annað
kvöld. Er þetta prófraun fyrir
landsliðið, sem innan skamms
lendir i eldinum, fyrst í París
en síðar á Spáni.
Nokkur forföll eru þegar
kunn í landsliðinu og veikja að
vonum liðið til muna. Það eru
kempurnar Gunnlaugur Hjálm-
arsson og Ingólfur Óskarsson,
sem að öllum líkindum verða
ekki með landsliðinu, sem jafn-
framt eykur líkur fyrir sigri
pressuliðsins til muna.
Landsliðsnefnd stillir eftirt.
liði upp: Hjalti Einarsson, Karl
M. Jónsson, Ragnar Jónsson,
Einar Sigurðsson, Birgir Björns
son, örn Hallsteinsson, Kristján
Stefánsson, Karl Jóhannsson,
Karl Benediktsson, Rósmundur
Jónsson, Matthías Ásgeirsson.
Blaðamenn settust á rökstóla
i gærkveldi og komu sér saman
um sterka blöndu gegn liði
landsliðsnefndar: Guðjón Ólafs-
son, Guðmundur Gústafsson,
Hilmar Ólafsson, Pétur Bjarna-
son, Guðjón Jónsson, Sigurður
Einarsson, Sigurður Dagsson,
Hermann Samúelsson, Viðar Sí-
monarson, Reynir Ólafsson og
Sigurður Hauksson.
Síðast þegar liðin reyndu með
sér, vann pressuliðið auðveld-
lega, en búast má við að í þetta
skipti verði róðurinn þyngri.
Le’kurinn á morgun hefst kl.
20.15.
húss) 9.—10. marz í íþróttahúsi
Háskólans.
Frjálstþróttamót FRÍ í Reykja-
vík 15.—16. júní.
Tugþraut, 10 km. hlaup, 4x800
m. boðhlaup Meistaramóts Islands
í Reykjavik dagana 22.-23. júni.
Landskeppnin ísland—Dan-
mörk í Reykjavík 1.—2. júlí.
Sveinameistaramót íslands 13.—
14.-,júlí á Akranesi.
Unglingameistaramót íslands 20.
—21. júlí á Akureyri.
i Drengjameistaramót Islands 27.
— 28. júlí í Vestmannaeyjum.
Meistaramót Islands og Kvenna-
i meistaramót Islands dagana 10.—
112. ágúst í Reykjavík.
Unglingakeppni FRÍ 24—25.
ágúst (úrslitakeppni) í Reykjavík.
Á síðasta ársþingi FRÍ var sam-
þykkt að reyna að gefa út móta-
skrá fyrir allt landið. Þar sem
stjórn FRl hefur nú ákveðið hvar
og hvenær mót á vegum sambands
ins verða haldin, væri mjög æski-
legt, að héraðssambönd, frjáls-
íþróttaráð og einstök félög reyndu
að ákveða mót sín sem fyrst og
senda siðan tilkynningu um móts-
stað og tíma og eigi siðar en 1.
marz næstk.
Sveinameistaramót íslands 1
frjálsum íþróttum innanhúss verð-
ur haldið á Akranesi mánudaginn
18. febrúar n. k. Keppnisgreinar:
Langstökk án atrennu, þrístökk án
atrennu, hástökk án atrennu, há-
stökk með atrennu. Þátttökutil-
kynningar skulu berast Guðmundi
Sveinbjörnssyni fyrir 15. febr.
Unglingameistaramót íslands i
frjálsum íþróttum verður að Sel-
fossi sunnudaginn 24. febr.
Keppnisgreinar þær sömu, auk
kúluvarps. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast Hafsteini Þorvalds-
syni, Selfossi, fyrir 20. febr.
(Frá stjórn FRl).
i