Vísir - 05.02.1963, Side 13

Vísir - 05.02.1963, Side 13
VÍSIR . Þriðjudagur 5. febrúar 1963. 13 Vísir hafði fyrir skömmu sam band, við Svein K. Sveinsson byggingaverkfræðing, og ósk- aði eftir upplýsingum um krana þann sem er í notkun í portinu hjá Völundi. Sveinn tók vel í það og fræddi okkur ásamt Kristni Jónssyni verkstjóra, um það helsta sem honum viðvíkur. Kraninn sem er rafknúinn, er keyptur frá Danmörku, og kost aði um 350 þús. krónur. Hæð hans er 16 m., en lengd armsins 15Y2m. Lyftikraftur hans er reiknaður í tonn metr- um, (tm) og er 10 tm. Krókn- um er þannig komið fyrir að það má renna honum fram og aftur, og er því hægt að fá átakið hvar sem er á arminn. Er starfssvið kranans þannig 75.5 m flatarmáli. Minnst er burðarmagnið að sjálfsögðu þeg ar byrðin er yst á arminum er það þá 600 kg. Þessi krani er af minnstu, en einnig nýjustu gerð, K-125. Til eru miklu stærri og kraftmeiri mikilsverður kostur að stjórna tegundir, sem lyfta allt að 60 tn., en þeir eru einnig miklu dýrari, og fara hátt á þriðju milljón. í Danmörku eru svona kran ar mikið notaðir enda, vinnu- sparnaður og hagræði af þeim, Eru verkamenn jafnvel tregir til að ráða sig til vinnu, ef ekki eru kranar til staðar. Nær óþrjótandi möguleikar eru fyrir hendi í notkun þeirra, þannig má til dæmis nota þá til þess að steypa upp og byggja þó að annað standi fyrir fram- an og myndi undir venjulegum kringumstæðum hindra aðgang. Einnig má nota krana af þess- ari ummddu stærð 16 og \5y2, til þess að hífa alla steypu og annað byggingarefni að húsi sem er 30 m, langt meðan það fer ekki upp fyrir ca 15 metra hæð, má og nota þá til þess að gera við þök sem erfitt er að komast að, vegna þess að reisa má arminn. Þá er það líka má krananum úr mikilli fjar- lægð, og getur stjórnandinn því fylgst með hlassinu, pg því sem gerist í kring um það, og er það einnig góð öryggisráðstöf- um verkfærum, og hafa þau um stærðum. Prýðileg reynsla er af þess- um verkfærum, og hafa þeir lítið bilað. Fimm kranar munu vera í notkun hjá byggingafé- lögum hér í bæ og eru af ýms um mismunandi stærðum. Blaðið hafði einnig samband við, Verklegar framkvæmdir, og íslenzka aðalverktaka, og var sömu sögu að segja þar. Reynsl an af þessum verkfærum var mjög góð að öðru leyti en því að ómögulegt er að vinna með krananum ef vindhraðinn fer upp fyrir 6 vindstig. Kraninn sem verldegar fram kvæmdir hafa yfir að ráða, er miklu mun stærri en sá sem er hjá Völundi, hann er 28 m á hæð en er ætlað að vera 40. Hann er og færanlegur á tein- um. tjóBum fyrirvara „Þvl fyrr sem fólk kemur til okkar, þeim mun betri þjónustu getum við veitt því“, sagði Guðni Þórðarson, forstjóri ferðaskrifstof- unnar SUNNU, er Visir átti tal við hann í morgun. „Bretar byrja að panta sumar- ferðir sínar strax upp úr áramót- um, og það er góður siður. íslend- ingar hafa yfirleitt ekki hirt um að skipuleggja skemmtiferðalög sín með löngum fyrirvara, en þð er það að breytast til batnaðar. Til dæmis er mikið búið að panta á Edinborgarhátíðina". Farin verður hópferð til Edin- borgar seinni partinn í ágúst og dvalizt þar, meðan á listahátíðinni stendur. Að sjálfsögðu sér ferða- skrifstofan Sunna um útvegun að- göngumiða á konserta, leikhús, ó- perur, balletta, listsýningar og annað, sem menn fýsir að sjá. Bryndís Schram mun taka á móti fólkinu í Edinborg og verða því til aðstoðar, meðan á dvölinni stend- ur. Eftirspurn er mikil, svo að þeir, sem óska þess að taka þátt í för- inni, ættu að snúa sér til ferða- skrifstofunnar sem allra fyrst. „Svo verður líka hópferð til ís- lendingabyggða í Veeturheimi“, sagði Guðni Þórðarsoniennfremur. „Hún gafst mjög vel í fyrra og þá var alveg fullt. FerðirnEr til meg- inlands Evrópu hafa eifcnig reynzt afar vinsælar, t. d. ein 31 vikna ferð til Parísar, Sviss, Ítalíu og Rínar- landanna, sem endar á vínhátíð- inni frægu“. Líklega vissara að byrja ekki á öfugum enda. Ferðaskrifstofan Sunna hefur samband við svissneska ferðaskrif- stofu, sem skipuleggur ferðir m. a. til Japan og fleiri ævintýra-1 landa í hinum fjarlægu Austurlönd um. Fararstjórar eru af ýmsum þjóðernum, og túlkað er á ensku, dönsku, þýzku, frönsku og fleiri tungumál, svo að fólk þarf engu að kvíða, þó að það tali ekki reip- rennaridi japönsku. Ferðaskrifstofan Saga mun sjá um hópferð til Noregs dagana 21. — 26. marz, en þá verður haldin skíðakeppni milli þriggja borga: Berge.n, Glasgow og Reykjayíkur. Flogið verður til Bergen, og getur fólk haft með sér skíðaútbúnað, en að öðrum kosti fengið hann leigðan á staðnum. Mikil eftirspurn er eftir þessari ferð, og hefur fólk byrjað að panta óvenju snemma í ár. Einnig verður farin hópferð til írlands, en það hefur ekki verið reynt fyrr. Verður siglt til Dublin með einum af Fossum Eimskipa- félags íslands og ferðazt eina viku um landið í langferðabíl. Síðan flogið til London og dvalizt þar nokkra daga. Auk þess hefur ferðaskrifstofan Saga samband við danskar ferða- skrifstofur, sem skipujfiggja þóp- ferðir um meginland Evrópu. Ferðaskrifstofan Lönd • og leiðir hefur og ýmislegt á prjónunum. Má þar fyrst geta páskaferðar til Marokkó. Flogið verður f einum áfanga til Tangier með einni af Vis countvélum Flugfélagsins. Þeir, sem vilja sóla sig og koma aftur kolbrúnir til að vekja öfpnd vina og kunningja, geta dvalizt á strand hóteli meðan hinir fróðleiksfúsu fara -í ferðalög um landið og skoða ýmsa merkisstaði. Á páskadag verð ur flogið til Madrid, en þar er mik Framhald á bls. 5. Fífldjarfir fjallamenn Á ERFIDASTA FR0STHÖRKU Fiskimálasjóður á skuldlausar 48 mi Skuldlaus eign Fiskimálasjóðs nemur nú 48 milljónum króna. Á síðasta ári veitti sjóðurinn ný lán að upphæð 9,9 milljónir króna og styrki fyrir 2,3 milljónir. Frá þessu var skýrt á nýafstöðnum fundi stjórnar sjóðsins. Skrifstofustjóri sjóðsins hefur verið frú Arnhildur Guðmundsdótt ir, en hún hefur starfað hjá sjóðn- um í átta ár, fyrst sem gjaldkeri og bókari, en skrifstofustjóri hefur hún verið í fimm ár. Arnhildur læt ur nú af þessu starfi og var henni þakkað á fundinum ágætt sam- starf. Við starfi 'hennar tekur nú Gunnar Pálsson, Lynghaga 13. í stjórn Fiskimálasjóðs eru nú: Sverrir Júlíusson, Sigurvin Einars- son, Davíð Ólafsson, Jón Axel Pét ursson og Björn Jðnsson, og í vara stjórn: Sigurður Egilsson, J<^n Sig- urðsson, jakob Hafstein, Sigfús Bjarnason og Konráð Gíslason. Þrír Þýzlcir fjallgöngumenn hafa unnið afrek sem er alveg einstakt í sinni röð enþyk ir um leið einstaklega fífldjarft og heimskulegt að Ieggja út í það. Þeir hafa klifið hinn svo- kallaða Lavaredo-tind í ítölsku ölpunum, sem talinn er eitt erf- iðasta vlðfangsefni, sem fjall- göngumenn geta hugsað sér. Og það sem verra er, þeir hafa valið tímann til þessa um há- veturinn. Þremenningarnir hafa verið í klettunum síðastliðna 17 daga og loks komust þeir slysalaust upp á tindinn sem er nærri 4 þúsund metrar á h*eð. Það er norðurhliðin sem er erfiðust sem þeir klifu. Hún þykir svo erfið viðureignar vegna þess að hún er alsett klettabeltum og slúta klettarn- ir hvarvetna í hlíðinni yfir sig. Erfiðast klettahlíðin er um 600 metra há og £ henni hafa fjall- göngumennirnir dvalizt í 17 daga og þurft að feta sig áfram sillu af sillu í versta veðri, oftast um 30 stiga frosti og stundum í snjóhríð. Hægt var að fylgjast nákvæm lega með ferðum mannanna upp eftir fjallshlíðinni, þar sem hópur aðstoðarmanna þeirra var stöðugt undir klettahlíðinni og- sendu þeir fjallgöngumenriirnir niður orðsendingar og dagbók- arbrot. Er ljóst af þessum lýs- ingum að þeir áttu £ miklum erfiðleikum vegna kuldanna. Stundum voru þeir að þvi komn ir að gefast upp vegna hins napra frosts. Þeir fengu vistir til sin með þvi að draga þær upp í taugum, en stundum var kaffi sem þeir drógu upp í taug inni gaddfreðið þegar upp kom. Lavaredo-tindurinn var fyrst klifinn árið 1933 af ítölskum fjallgöngumönnum. Gerðu þeir það í bezta veðri að sumarlagi og „fundu“ leið upp sem fleiri fjallamenn hafa síðan fylgt.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.