Vísir - 05.02.1963, Blaðsíða 3
VfSIR . ÞrfBJnSagur 5. feferúar 1963.
3
Frú Rannveig og Sigfús Bjarnason í móttökusal byggingarinnar.
HEKLUHÓFIÐ
m
1
Sigfús Bjarnason býður þýzka sendiherrann H. R. Hirscfield, vei-
kominn.
Sigfús Bjamason í Heklu hélt
mikla veizlu á laugardaginn og
voru gestir hans hvorki meira né
minna en um 400 talsins, þar á
meðal ráðherrar, embættismenn
og sendiherrar.
Tilefnið var líka ærið. Fyrir-
tæki Sigfúsar er nú 30 ára og
um helgina opnaði hann nýtt og
glæsilegt verzlunar og verk-
stæðishús við Laugaveginn þar
sem starfsemi Heklu og dóttur-
fyrirtækjanna mun verða í fram
tíðinni. Eru þar viðgerðarverk-
stæðl og varahlutalager fyrir
Volkswagen, CatarpiIIar dráttar
vélar og Landrover bíla, en þessi
umboð fer Sigfús með.
Hingað til Iands komu fulltrúar
alira þessara fyrirtækja og luku
þeir hinu mesta lofsorði á starf
semi íslenzka umboðsins og alla
þjónustu sem það veitir er þeir
töldu með því bezta sem gerist.
Hinn fjölmenni gestahópur
skoðaði nýbyggingu Sigfúsar, en
á jarðhæð hennar eru verkstæð
in og sýningarsalur fyrir bíla og
á efrl hæðinni eru skrifstofur
Heklu og dótturfyrirtækja. Er
þar öllu mjög smekkvíslega og
haganlega fyrir komið, en Þór
Sandholt skólastjóri teiknaði
bygginguna.
Var hóf þetta hið bezta og
voru gestir á einu máli um að
vart yrði fundið fyrirtæki sem
betri starfsskilyrði hefði en
Hekla og dótturfyrirtæki henn
ar, en vöxtur og viðgangur fyrir
tækisins hefir verið mjög ör á
sfðustu árum.
Magnús Jónsson bankastjóri, Páll Danielsson hagfr. og Bjarni Bene-
Sendiherra Bandaríkjanna, J. Penfield t. h. skeggræðir alheimspólitík-
ina við Magnús Kjartansson ritstjóra Þjóðviljans.
sssor Sigurður Samúelsson, t. h., ræðir við bankastjórana Jóhann
ein og Jóhannes Elíasson.