Vísir - 18.02.1963, Side 2
2
VÍSIR . Mánudagur 18. febrúar 1963.
aJ K
r=a n—i r^» TT iT~p
y//////////;m v/////////m ///////,
Landsleikurinn í Pnrís:
FRAKKLAND
ísiendingar reyndust aldrei
hættulegir í leik sínum
gegn eldsnöggum Frökkum
íslendingar fóru sömu leið og Danir og Norð-
menn í landsleik sínum gegn Frökkum, sem fram
fór skömmu fyrir miðnæturskeið á laugardags-
kvöldið í Pierre de Coubertin íþróttahöllinni í París.
íslendingar, allt of hægir gegn hinum leiftursnöggu
Frökkum skoruðu aðeins 14 mörk, en fengu 24.
Landsleikur þessi er hinn 17. í röðinni hjá íslandi.
Er ísland lék við Frakkland fyrri leik landanna, en
það var í HM í Þýzkalandi 1961, vann Island með
20:13. Hafa Frakkar því hefnt þess ósigurs og vel
það.
Chastanicr, bczti maður Frakka
skoraði fyrsta mark leiksins, en
Gunnlaugur jafnar fyrir ísland. —
Frakkar komast nú í 3:1 en Gunn- j
laugur er sem fyrr hættulegur
Frökkunum og skorar 3:2. Nú taka
Frakkar roku og Ieika hratt og ör-
ugglega. Árangurinn: 3 mörk til
viðbótar, 6:2 fyrlr Frakka. Þegar
Pétur Antonsson kemur inn er það
hans fyrsta verk að skora mark,
6:3 og stuttu síðar svarar hann
marki Frakka með 7:4, en í hálf-
leik var staðan 9:7 fyrir Frakka,
sem var e.t.v. ekki svo bölvanlegt.
Síðari hálfleikur var eftirgjöf fs-
lcnzka liðsins allt of mikil og eftir
20 minútna leik var öll mótspyrna
liðsins brotin á bak aftur. Frakk-
ar náðu 5 marka forystu í 16:11 og
léku nú rólega, nánast með leik-
töfum, en tókst samt að auka for-
skotið að mun og komast í 19:11,
sfðan úr 21:14 í 24:14.
Langbeztir Frakkanna voru þeir
Chastanier (5 mörk) og Sellene
(7 mörk), en af íslendingunum bar
mest á Pétri Antonssyni og Ragn-
ari Jónssyni, en Gunnlaugur átti
allsæmilegan leik. Mörk íslands
skoruðu: Gunnlaugur Hjálmarsson
(6 (3 úr vítaköstum), Pétur Antons-
son 4, Ingólfur Óskarsson 2, Ragn-
ar Jónsson 2.
Þýzkur dómari, Franz Nichole
frá Diisseldorf, dæmdi leikinn og
var Íslendingum óhagstæður svo
ekki sé meira sagt. A.m.k. tvisvar
sinnum hafði Karl Jóhannsson
komizt í gegnum vörn Frakka, en
verið hindraður gróflega, en þó
komizt í gegn og skorað. Fárán-
VANN
legur dómur Nichole var aukakast,
en sanngjarn dómur hefði verið
mark, eða a.m.k. vítakast. Þetta
gerðist einnig í eitt skipti hjá Birgi
Björnssyni. Einnig hefði dómarinn
' ..— " 1 ... »
Mikil skrif um
landsleikinn í
Parísarblöðunum
Frönsku blöðin hafa nú um
helgina ritað mikið um íslenzku
handknattleiksmennina og um
island almennt var þessi at-
hugasemd í einu blaðanna:
„Á Íslandi eru 120.000 íbúar,
600.000 kindur, 50.000 beljur og
2500 handknattleiksmenn“.
Í öðru blaði er viðtal við hinn
góðkunna Fredslund-Pedersen,
formann danska handknattleiks-
sambandsins. Segir Pedersen að
Íslendingar geti ekki sigrað í
viðureigninni við Frakka. Til
þess séu Frakkar alltof fljótir
og muni skotharka Íslendinga
ekki koma að gagni í þeim Ieik.
Má segja að þarna haf! Danan-
um orðið sannmæli, því það var
einmitt hinn franski hraði, sem
kollkeyrði islendingana fyrst og
fremst.
Í blaðinu Le Figaro er bent á
að Frakkar hafi nú hefnt ósig-
ursins á HM, en auk þess hald-
ið blaðinu hreinu að því leyti
að landslið Frakka hefur ekki
tapað einum cinasta leik á heima
veili á þessum vetri. Er í blað-
inu rakinn ferill islendinga í
handknattleik á alþjóðamótum.
Sum blöðin í gær hæla Íslend
ingum fyrir skothörku en benda
á að línuspilara vanti í liðið.
átt að taka á augljósum brotum
Frakka er þeir töfðu leikinn.
Um 4300 áhorfendur horfðu á
Ieikinn í hinni glæsilegu íþrótta-
höll ,sem heitin er eftir barón
Pierre de Coubertin, föður Olympíu.
leikanna. Var sigrinum mætt með
miklum fagnaðarlátum heima-
manna, sem voru mjög „patriot-
iskir“, og púuðu og blístruðu á
íslcndingana, en fögnuðu sfnum
mönnum innilega. Var mikið sung-
ið á áhorfendapöllunum þetta
kvöld og erfitt reyndist, vegna
hávaða að kalla á Ieikmenn af vell-
inum til að skipta inn á.
Fyrir Ieikinn fór fram stutt at-
höfn. Þjóðsöngvar landanna voru
leiknir og leikmenn kynntir fyrir
áhorfendum. Leikurinn hófst nokk-
uð seint um kvöldið, eða kl. 10.30
eftir frönskum tíma, en það þykir
ekki seint hjá Frökkum, a.m.k. ekki
á laugardagskvöldi.
í viðtali við Ásbjörn Sigurjóns-
son, formann HSÍ, sagði hann að
móttökur væru allar hinar glæsileg-
ustu. Landsliðsmenn komu til
Parísar um kl. 10 á föstudags-
kvöidið, eða nokkrum tímum eftir
áætlun, sem orsakaðist af þvl að
hópurinn missti tvívegis af flugvél.
Fyrst í Glasgow, þar eð íslenzku
flugvélinni seinkaði nokkuð vegna
mótvinds og er til Glasgow kom
var BEA-flugvélin nýfarin. Er til
London kom var vélin til Parísar
sömuleiðis farin og af þessu öllu
seinkaði hópnum.
Á Iaugardagsmorgun var íþrótta-
höllin skoðuð og síðan hvílt fyrir
leikinn, en veizla sem Frakkar
buðu til um hádegisverðarbil á
laugardag var vinsamlegast af-
þökkuð.
Lið Iandanna voru þannig skip-
uð:
FRAKKLAND: Armbruster, Féri-
gnac, Silvestro, Lambert, Chastan-
ier, Richard, Hoinant, Portes, Et-
cheverry, Sellenet, Pons.
ÍSLAND: Hjalti Einarsson, Karl
M. Jónsson, Pétur Antonsson, Ein-
ar Sigurðsson, Gunnlaugur Hjálm-
arsson, Kristján Stefánsson, Birgir
Björnsson, Ingólfur Óskarsson,
Karl Benediktsson, Ragnar Jóns-
son, Karl Jóhannsson, Ingólfur
Óskarsson.
Hér sést sigurvegarinn í firinakeppni Skíðaráðs Reykjavíkur i sviginu.
Það er Gunniaugur Sigurðsson í KR, og keppti hann fyrir Gufubað-
stofuna, Kvisthaga 29.
„Skaphitinn enn
suðrænni á Spáni
— segir Hallsteinn Hinriksson
„Sannast að segja býst ég ekki við sigri annað kvöld“, sagði
Hallstcinn Hinriksson, þjálfari landsliðsins, i símtali sem við áttum
vlð hann i gærkvöldi á I. otel Francaise í Bordcaux.
„Franska meistaraliðið i 1. deild varð að láta i minni pokann
fyrlr spönsku meisturunum (Granouers) nú í vetur, og auk þess
hefur franska landsliðið nýlega tapað á Spáni fyrir heimamönn-
um. Mér fannst Parisarbúar nokkuð suðrænir í sér og skapheitir
voru þeir hér í Bordeaux ,en á Spáni er sagt að skapið nálgist
fyrst suðumark og segja Frakkar að handknatticikur Spánverja sé
mjög harður".
„Nokkuð ákveðið með Iiðið annað kvöld?“
„Nei, ekki ennþá. Ég býst við að við röðum ekki í liðið fyrr en
á morgun, en í bítið í fyrramálið sækja Spánverjar okkur hingað '
og verður okkur ekið til Bilbao, þar sem leikurinn fer fram á'*
þriðjudag". |
Hallsteinn bað að lokum fyrir kærar kveðjur heim og kvað hann |
ferðina ganga prýðilega og allir væru við beztu heilsu. 1
Firmakeppni Skíðaraðs Reykjavíkur:
úufubaðstofan sigraði
Firmakeppni Skiðaráðs Reykja-
víkur var haldin 1 Jósepsdal í gær.
Skíðadeild Ármanns sá um mótið
og mótsstjóri var Ólafur Þorsteins-
son, Ármanni. 30 fyrirtæki voru í
úrslitakeppninni og urðu hlutskörp
ust:
1. Gufubaðstofan, Kvisthaga 29
(Gunnlaugur Sigurðsson K.R.
51,9).
2. Rakarastofa Harðar (Bjarni
Einarsson Á, 54,9).
3 Heildv. Sveins Helgasonar
(Grimur Sveinsson ÍR 55,0).
4. Bæjarleiðir (Haraldur Pálsson
ÍR, 55,1).
5. Heildv. Kristjáns Ó. Skagfjörð
í (Þorbergur Eysteinsson ÍR,
55,5).
6. Leðurv. Jöns Brynjólfssonar
(Guðni Sigfússon ÍR, 55,8).
7. Þvottahús Adolf Smith (Sigurð-
ur Einarsson ÍR, 55,9).
8. Skósalan Laugavegi 1 (Þorgeir
Ólafsson Á, 58,1).
9. Timburv. Árna Jónssonar (Júlí-
us Magnússon KR, 58,2).
10. Skaane (Tómas Jónsson ÍR,
59,8).
11. Prentsmiðjan Edda (Jakobína
Jakobsdóttir ÍR, 60,0).
12. Byggingarvöruverzlun isleifs
St. Mirren bætti tveim stigum
við heldur siaka stöðu sfna í skozku
1. deildarkeppninni um helgina. —
Var leikur liðsins I Aberdeen jafn-
framt eini leikurinn, sem fram fór
í Skotlandi. Carroll, hinn nýkeypti
útherji lék nú í fyrsta sinn með fé-
laginu og lék í stöðu hægri út-
herja. Þórólfur Beck var o g með
og lék í stöðu vinstri innherja.
Jónssonar (Eyþór Haraldsson
IR, 61,3).
Að lokinni keppni var sameigin
leg kaffidrykkja í Ármannsskálan
um. Verðlaun voru veitt (12 bikar
ar) og mótsstjóri Ólafur Þorsteins
son hélt hvatningarræðu til skíða
manna og þakkaði góða þátttöku
í Englandi fóru fram nokkrir
Ieikir: Arsenal vann Bolton i 1.
deild með 3:2, Leyton og Fulham
gerðu jafntefli, 1:1, Liverpool burst
aði Úlfana 4:1 og West Ham vann
sigur úti gegn Sheffield United, 2:0
Einn ieikur fór fram í 2. deild,
Grimsby vann Middlesborough úti
1:0.
St. Mirren vann úti-
sigur í Aberdeen