Vísir - 18.02.1963, Page 3
V1SIR . Mánudagur 18. febrúar 1963.
Hálffeimnislega fikrum við okkur inn eftir gólfinu og kynnum
okkur fyrir Láru Lárusdóttur varðstjóra. Lára er búin að vera við
símann f 34 ár og hefur að því er hún segir alls ekki í hyggju að
hætta, fyrr en þá að hún kemst á eftirlaun. Það liggur því í augum
uppi, að hún á auðvelt með að svara mörgum og sumum kjánalegum
spurningum okkar. 72 stúikur allt í allt vinna vaktavinnu við lang-
línuna. Til þess að komast í starfið, þurfa þær að hafa gagnfræða-
próf, gangast undir sex mánaða námskeið og vera 18 ára gamlar a.
m. k. Salurinn þar sem stúlkumar vinna er bæði rúmgóður og bjart-
ur. Inn af honum er svo vistleg kaffistofa, þar sem stúlkurnar hvíla
sig í 15—20 mín. meðan þær drekka indælis kaffi úr skörðóttum
bollum stofnunarinnar. Okkur er boðið upp á kaffi, sem við að sjálf-
sögðu þiggjum, og það eru árciðanlega ekki margir herrar í Reykja-
vík, sem hafa drukkið kaffi með svona mörgum fallegum stúlkum,
ölium í einu. Fulltrúi ritsímastjóra, Valdemar Einarsson, kernur til
okkar og við spyrjum hvemig honum líki við stúlkurnar. — Prýði-
lega, scgir hann, þetta eru allt saman mjög prúðar og elskulegar
stúlkur, og fallegar bætum við við í huganum, allir þrír? Fullir af
öfund út í Valdemar verðum við nú að kveðja þennan skemmtilega
félagsskap og halda inn á ritstjórnarskrifstofur í annan félagsskap,
sem við höfum miklu minni áhuga fyrir. Og sem við skreiðumst út
úr dyrunum, heyrum við þýðlegar raddir stúlknanna: Hæ Gauli, svar-
aðu Vopni, o. s. frv.
Efsta myndin er tckin í kaffistofunni. Stúlkurnar eru talið frá vinstri:
Sigríður Sigmundsdóttir, Rebekka Kristjánsdóttir, Svanborg Daniels-
dóttir, Sigurborg Friðgeirsdóttir, Elín Jónsdóttir og baksvipurinn á
HöIIu Jakobsdóttur. Miðmyndin sýnir nokkrar af dömunum að starfi.
Neðsta myndin sýnir Láru og bak við hana nokkrar af stúlkunum.
Halló Sigló, Patró, Vestmann, Krókur. Þessi nöfn og önnur álíka
berast til okkar þar sem við stöndum í dyrunum á langlínustöðinni
og horfum á aragrúa af ungum, faliegum stúlkum í grænum slopp-
um, sem sitja við langt skiptiborð og tala i sífellu. Þetta myndi sum-
um áreiðaniega lika vel, að fá kaup fyrir að tala í síma.
Um