Vísir - 18.02.1963, Blaðsíða 8
8
V í S I R . Mánudagur 18. febrúar 1963,
Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Augiýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á má nuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 linur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Þeir skattlögðu
dráttarvélarnar
Undanfarna daga hefur Búnaðarþing setið hér í borg.
Forystumenn bænda koma árlega saman og líta yfir
farinn veg og gera hernaðaráætlanir um nýja land-
vinninga. Áður hefur verið hér minnzt á furðuleg
ummæli formanns félagsins, sem taldi EBE málið að-
almál þingsins, eftir að því hefur gjörsamlega verið
kastað fyrir róða og engum manni hafi reyndar
komið til hugar að hefja fríverzlun með íslenzkar land-
búnaðarafurðir!
En margt viturlegt hefur þó verið sagt á þinginu
og ræða landbúnaðarmálaráðherra var merk fyrir
bjartsýni sína og stórhug. Ingólfur benti á einn hlut
sem mönnum yfirsést oft. Hann sagði að sízt verr væri
að landbúnaðinum nú búið hér á landi en á Norður-
löndum. Sem dæmi um það má taka að bóndinn fær
nú 50 þús. króna framlag til nýbyggingar og þar að
auki 150 þús. krónur í formi mjög hagstæðs láns.
En hvað gerði framsókn fyrir sveitimar meðan hún
sat í stjóm og átti landbúnaðarmálaráðherra? Þegar
hún vann að hinni andlegu jarðyrkju með kommún-
istum?
Jú, framsókn hækkaði skattinn á dráttarvélum
bænda um einar 20 þúsund krónur. Jafnvel kaupstað-
arbörn vita að dráttarvélin er nú orðin þarfasti þjónn
bændanna. Og á það lúalagið var lagzt.
Dómur hagfræðinga OECD
Greiðslujöfnuðurinn hefur batnað mikið og gjald-
eyrisinnstæður erlendis aukizt verulega. Mikill hluti
utanríkisviðskiptanna hefur verið gefinn frjáls, Kerfi
uppbóta hefur verið lagt niður og í staðinn komið eitt
gengi. íslenzk stjórnarvöld hafa nú fyllri stjórn á sviði
f jármála og peningamála en áður.
Er þetta yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um feril síð-
ustu missera eða kannski kafli úr skrifum stjórnar-
blaðanna?
Nei, þetta er kafli úr skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar í París (OECD), sem sérfræðingar hafa
samið og fjallað er um efnahagsmál íslands. Dómur
hinna hlutlausu erlendu sérfræðinga er einróma.
Ástandið í efnahagsmálum íslendinga hefur farið batn-
andi á síðasta ári, þrátt fyrir kauphækkanir, sem vom
mun meiri en framleiðsluaukningin.
Hér er um að ræða ígrundaðan dóm vönduðustu
hagfræðistofnunar veraldar. Því mun verða á orð henn-
ar hlustað hérlendis og ályktanir hennar munu metnar
að verðleikum. Þær eru gagnstæðar ályktunum fram-
sóknar og kommúnista. Þeir segja að hér sé allt á
niðurleið.
Hverjum trúa menn betur, hagfræðistofnun Evrópu
eða skriffinnum vinstri blaðanna?
Jakob Guðmundsson
frá Húsafelli
Jakob Guðmundsson frá Húsa-
felli verður jarðsunginn i Húsa-
fellskirkju í dag. Hann lézt í
Elliheimilinu Grund 8. þ.m. á
90. aldursári.
Jakob á Húsafelli var um
margt minnisstæð persóna þeim
sem honum kynntust. Þar kom
ýmislegt til, einkum þó með-
fædd greind, mikil fróðleiksfýsn
og frásagnargleði að sama
skapi. Ég man persónulega eft-
ir Jakobi frá þvl ég var barn,
bæði var hann oft gestur á
heimili foreldra minna, og ég
líka tíður gestur á því heimili,
þar sem Jakob ól aldur mestan
hluta ævi sinnar. Mér er minn-
isstætt frá þessum árum, og
reyndar æ sfðan, hve ágætlega
Jakob sagði frá. Hann vissi
margt, mundi margt, en það
sem eftirtektarverðast var við
frásögn hans, var lífið og létt-
leikinn, sem hann gæddi hana
með. Hann var hnyttinn í til-
svörum, varð naumast orðfall,
hagmæltur vel og kunni þá list
að segja frá.
Jakob var maður víðlesinn
og aflaði sér sjálfsþekkingar
gegnum bækur og af munni
sögufróðra manna. Hann átti
þokkalegt bókasafn sjálfur, þótt
ekki virri það stórt ,og sóttist
mjög eftir að lesa góðar bæk-
ur, ekki sfzt þær er snertu sögu-
legan fróðleik.
Jakob var afkomandi Snorra
prests á Húsafelli .og, í sam-
bandi við draumvitranir, þar
sem Snorri klerkur birtist
Jakobi í draumi æ ofan f æ,
var það að Jakob lét girða og
friða gamlan grafreit eða
kirkjugarð, sem löngu var lagð-
ur niður á Húsafelli og kom-
inn f hálfgerða niðurníðslu.
Hann áttti og frumkvæði að
þvf og barðist með oddi og
egg fyrir þvf að kirkja eða kap-
ella yrði byggð að nýju á Húsa-
felli. Er hún nú f smfðum, en
ekki fullgerð.
Jakob Guðmundsson er fædd-
ur að Kolstöðum í Hvftársíðu
1. júní 1873 sonur Guðmundar
Sigurðssonar bónda þar og
konu hans Helgu Hjáimarsdótt-
ur. Um tvftugt fór Jakob að
heiman og gerðist þá vinnu-
maður á Húsafelli. Við það
heimili batt hann órofa tryggð
og ól þaar nær allan oldur sfð-
an, eða þar til hann var rúm-
Jakob Guðmundsson.
liggjandi og sjúkur orðinn og
varð að fara á sjúkrahús.
Þeim sem þekktu til starfa
Jakobs í þágu Húsafellsheimil-
isins ber saman um að traust-
ara og dyggara hjú sé vart
unnt að hugsa sér. Hann hugs-
aði um hag heimilisins ekki síð-
ur en um eigin hag og vann
því mikið starf og óeigingjarnt,
sem seint verður þakkað til
fulls. Jakob var góður verk-
maður og einkum var honum
sýnt um fjárhirðingu, sem var
löngum hans aðalstarf að vetr-
inum.
Síðustu æviárin lá Jakob
sjúkur f sjúkradeild Elliheimil-
isins Grund í Reykjavík. Var
Kaupstefnan
í Leipzig
honum þá tekið að förlast bæði
sjón og heyrn, en minni hafði
hann lítt eða ékki skert allt
fram á síðustu stund, fylgdist
vel með málum, einkum úr
heimabyggð sinni og hafði yndi
af að ræða við fólk sem hann
þekkti. Oft fékk Jakob heim-
sóknir vina og kunningja, en
þó ef til vill minna heldur en
hann hefði óskað, því ekki er
alltaf munað eftir gömlu og
sjúku fólki sem heyir hinztu
baráttu sína í biðsal dauðans.
í tilefni af þessu má þó sér-
staklega geta nærgætinnar og
elskulegrar framkomu ættstúlku
hans einnar, Ragnheiðar Sigurð-
ardóttur frá Kolstöðum, sem
kom daglega til gamla manns-
ins, rabbaði við hann, skemmti
honum og hughreysti. Fyrir
slíka umönnun var Jakob óum-
ræðilega þakklátur.
Þ. J.
Hinn 3ja marz n.k. hefst vor-
kaupstefnan í Leipzig enn einu
sinni og er nú liðið fast að 800
ára afmæli hennar. Níu þúsund
fyrirtæki frá 60 löndum halda sýn
ingu á vörum sínum þessa 10 daga j
sem sýningin stendur yfir. Vöru-
tegundir, eru yfir 1 milljón og
skiptast í fjölmarga flokka, þannig
að tiltölulega fljótlegt er að finna
þær vörur er menn fýsir að kaupa.
Sfötugur i
dag
Sjötugur er í dag, Einar Tóm-
asson, fyrrverandi kolakaupmað
ur í Reykjavík. Hann dvelst í
lag að heimili dóttur sinnar og
' ngdasonar, í Skaftahlið 3.
Grein um afmælisbarnið birt-
í blaðinu á morgun.
Fræðslunámskeið í Vulhöll á næstunnf
Annan mánudag. 25. febrúar,
hefst í Valhöll við Suðurgötu
námskeið um atvinnu- og verka-
lýðsmál, sem verkalýðsráð Sjálf
stæðisflokksins og Málfundafé-
lagið Óðinn gangast fyrir. Nám-
skeiðið stendur um tveggja mán
aða skeið, og verða tveir fundir
í viku, á mánudögum og fimmtu
dögum, en þá verða fluttir fyr-
irlestrar um ýmis hagsmunamál
launþega og annað, er þá varð-
ar mest.
Meðal þess, sem fjallað verð-
ur um á námskeiðinu, verða
þessi atriði: Kjarabætur, fram-
leiðni og hagræðing, samstarfs-
nefndir og kerfisbundið starfs-
mat, launagreiðslukerfi og hag-
ur launþega, þróun þjóðarfram-
leiðslunnar, atvinnutekjur laun-
þega o, tekjuskiptingin, frjáls
og ófrjáls verkalýðssamtök.
starf og skipulag verkalýðssam-
takanna, fundarsköp, fundar-
stjórn og margt fleira.
Meðal þeirra manna, sem er-
indi flytja á námskeiðinu, verða
þessir: Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
Sveinn B;örnsson verkfræðing-
ur, Bjarni Bragi Jónsson hag-
fræðingur, Þórir Einarsson við-
skiptafræðingur, Guðjón Han-
sen tryggingafræðingur, Magn-
ús Jónsson alþingismaður, Birg-
ir Kjaran alþingismaður, Pétur
Sigurðsson albingismaður, Ein-
ar Pálsson skólastjóri. Kristján
Guðlaugsson verzlunarmaður og
Gunnar -lelgason framkvæmda-
stjóri.
Þá verða og séi :takir málfund
ir, þar sem kennd verður fram-
sögn og ræðumennska.
Þess er óskað, að þeir, sem
hafa hug á að sækja námskeið
þetta, tilkynni þátttöku sína í
skrifstofu verkalýðsráðs flokks-
ins í Valhöll sem fyrst eða ekki
síðar en fimmtudaginn 21. þessa
mánaðar.