Vísir - 18.02.1963, Blaðsíða 9
V1SIR . Mánudagur 18. febrúar 1963.
Saltsíldarneyzlan fer
minnkandi í heiminum,
og örðugra gerist um
markaðsöflun fyrir salt-
síld. íslendingum er
nauðsynlegt að vinna
ve« til að halda núver-
andi aðstöðu sinni á salt
síldarmörkuðunum. —
Fjöldi þjóða hefur orðið
að draga stórkostlega úr
saltsíldarframleiðslu
sinni. Jafnframt verða
íslendingar að byggja
upp nýjar greinar síldar-
iðnaðarins, segir Gunn-
ar Flóvenz, fram-
kvæmdastjóri Síldarút-
vegsnefndar á Suður-
landi í viðtali því, sem
hann átti við frétta-
menn frá Vísi fyrir
skömmu og hér fer á
eftir.
Hver eru helztu neyzlulönd
saltsfldar og hver eru og hafa
verié helztu markaSslönd Suð-
urlandssaltsíldar?
Tjegar rætt er um markaðs-
mál saltsíldar, er nauðsyn-
legt að gera sér grein fyrir því,
að neyzlusvæðið er mjög tak-
markað. Mest er saltsíldarneyzl
an í austur og norðurhluta Evr-
ópu. Suðurtakmörk þessa svæð-
is liggja frá Svartahafi um Karp
atafjöll, sunnanvert Þýzkaland
og til Ermasunds. í Bretlandi
er saltsfldarneyzlan óveruleg.
Nokkur markaður er fyrir salt-
síld í Norður-Ameríku og ísrael.
Kannaðir hafa verið sölumögu-
leikar í ýmsum löndum utan
þessara svæða, m.a. f öllum
löndum Suður- og Suðvestur-
Evrópu, flestum löndum Suður-
Ameríku og í nokkrum löndum
Mið-Ameríku. Saltsfldarneyzlan
í þessum löndum reyndist alls
engin eða mjög óveruleg, Mest
nokkur hundBuð tunnur á ári í
Argentínu og Brazilíu.
Er söltun Suðurlandssíldar
hófst fyrir alvöru fyrir rúmum
áratug, byggðist salan algjör-
lega á veiðibresti norðanlands
og fór söltunin hér syðra ein-
göngu eftir því, hve mikið vant
aði hverju sinni upp í söiusamn
inga um Norðurlandssíld. Ekki
var þá unnt að selja nema
stærstu síldina. Söltun varð að
fara fram snemma hausts eða
Viðtal við
Gunnar Flóvenz,
framkvæmda-
stjóra Síldar-
útvegsnefndar
áður en fitumagn síldarinnar
fór verulega að minnka. Á þess
um árum voru Svfar, Finnar,
Pólverjar og sfðar Rússar
stærstu kaupendurnir. Á þessu
hefir orðið mikil breyting. 1
fyrsta lagi kaupa Svíar, Finnar
o.fl. þjóðir alls ekki Suðurlands-
sfld nema skortur sé á hinni
stóru og feitu Norðurlandssíld
eða norsk- og færeysk-veiddri
snemma hausts, er yfirleitt feit
ari en síld sem veiðist að vetr-
inum. Meðan veiðar voru stund
aðar eingöngu með reknetum,
veiddist aðeins stærsta síldin.
þar sem sú smáa ánetjaðist
ekki. Enda þótt stærð millisíld-
arinnar og smásíldarinnar henti
sæmilega til söltunar fyrir á-
kveðna markaði, fylgja henni
yfirleitt tveir ókostir umfram
stóru síldina. Hún er að jafn-
aði mun horaðri en stórsíldin og
þar að auki tóm, þ.e. án hrogna
og vilja. Þykir það víðast galli,
sé um vetrarsíld til söltunar að
ræða. Þetta kemur þó ekki að
sök, sé síldin ætluð til flökun-
ar. I þriðja lagi er haustið
bezti markaðstím| saltaðrar síld
ar, en sölumöguleikar fara yfir-
leitt minnkandi eftir því sem Iíð
ur á veturinn. Saltsíldin er lengi
að verkast að vetrinum og er
bezti markaðstíminn þvf oft lið-
inn, þegar sunnlenzka saltsfldin
kemst loks f hendur kaupenda.
Þegar veiðarnar voru stundaðar
með reknetum f ágúst og sept-
ember, var venjulega búið að
flytja út alla framleiðsluna fynr
áramót. Vegna allra þessarra
breyttu aðstæðna, varð að reyna
nýjar leiðir og afla nýrra og
sjálfstæðra markaða fyrir Suð-
urlandssíldina. Þótt oft hafi gætt
mikillar svartsýni hjá okkur und
anfarin ár, hefir þó rætzt sæmi-
lega úr erfiðleikunum og fram
til þessa hefir ekki komið til
söltunarstöðvunar vegna sölu-
tregðu.iSfðnstU'jfhnm árin hefir
tekízt að áfla' nýrra markaða
fyrir saltaða Suðurlandssíld í
Gunnar Flóvenz.
fer minnkandi í heiminum
„Íslandssíld“. Eins og kunnugt
er hefir söltun norðanlands og
austan verið mjög mikil síð-
ustu árin. Hefir því sáralítið
verið hægt að selja af Suður-
landssíld til Svíþjóðar og Finn-
lands undanfarin ár. í öðru lagi
hefir breyting veiðitímans og
breytt veiðitækni hér syðra haft
miklar breytingar í för með sér,
að því er söltunina varðar. Síld,
sem söltuð er að sumrinu eða
samtals átta nýjum löndum. og
er nú svo komið, að íslenzk salt-
síld er seld til allra helztu
neyzlulandanna. Á yfirstandandi
vertíð hafa verið gerðir sölu-
samningar um meira magn af
saltaðri Suðurlandssíld en
nokkru sinni fyrr og vantar enn
þá nokkuð á, að tekizt hafi að
salta upp í gerða samninga.
Mest hefir verið selt til Vestur-
Þýzkalands, Póllands, Austur-
Konur
vit
sí! ‘
sölu...
Þýzkalands, Rúmeníu og Banda-
ríkjanna. Auk þessarra landa.
er síldin seld til ísrael, Benelux-
landa, Frakklands, Svíþjóðar og
Danmerkur.
Hvaða lönd eru tryggustu
markaðir Suðurlandssaltsíldar-
innar?
J markaðsmálum saltsíldar er
að mínum dómi ekkert, sem
kallazt getur tryggt. Eitt árið
getur vantað saltsíld, ákveðnar
tegundir saltsíldar eða ákveðnar
stærðir o. s. frv. Annað árið get-
ur allt verið yfirfullt af saltsíld,
jafnvel þótt mikill skortur sé
samtímis á nýrri síld til reyk-
ingar og niðursuðu. Árin 1959 —
1960 urðu Vestur-Þjóðverjar t.
d. að setja í bræðslu tæpl. 80
þúsund tunnur af saltaðri síld
vegna offramleiðslu, þrátt fyrir
tollvernd og styrki, sem þýzk
stjórnarvöld hafa veitt barlendri
saltsíldarframleiðslu. Á sama
tíma var hvað eftir annað mikil)
skortur á ferskri síld til reyk-
ingar, niðursuðu o. fl. Enda
þótt vetrarsíldveiðar Norðmanna
hafi brugðizt að mestu í fyrra-
vetur og þrátt fyrir háa fram-
leiðslustyrki, hafði Norðmönn-
um ekki tekizt snemma í haust
að selja hluta af þvf takmarkaða
nagni, sem saltað var þar s.l.
vetur. Á sama tíma keypti norsk
liðursuðuverksmiðja fryst síld-
irflök frá íslandi.
Er markaðsverð Suðurlands-
síldar í A-Evrópulöndum hag-
stætt miðað við markaðsverð i
öðrum löndum?
Nei, yfirleitt ekki að því er
saltsíldina varðar. Verð það sem
við höfum fengið í Sovétríkjun-
um fyrir saltaða Suðurlandssfld
er t. d. mun lægra en önnur
lönd hafa greitt fyrir sömu vöru.
Aftur á móti var sovézki mark-
aðurinn í mörg ár stærsti
markaður sunnlenzku salt-
síldarinnar. Það er afar áríð-
andi fyrir okkur að halda þeim
markaði.
Er sanngjarnt að Rússar
hækki kaunverð sitt á Suður-
landssaltsfldinni.
Það er hiklaust skoðun allra
þeirra, sem að þessum málum
starfa. Aftur á móti hafa Rúss-
ar bent á það margsinnis undan-
farin ár, að þeir fái norska salt-
síld keypta fyrir langtum lægra
verð en beir hafa greitt fyrir
Suðurlandssíldina. Þetta er nú
vonandi að breytast. Norðmönn-
um er nú að verða Ijóst, að ekki
er unnt að selja saltsíldina leng-
ur á hinu lága verði, þrátt fyrir
allar uppbæturnar. Auk þesss
voru norsku sjómennirnir mjög
óánægðir yfir því. að verð á
fersksíld til söltunar fyrir vöru-
skiptalöndin var langtum lægra
en á síld, sem fór til nnarrar
vinnslu. S.l. ár slitnaði upp úr
samningum milli Norðmanna og
Rússa um saltsfldarsölu. Hafa
Norðmenn skýrt okkur svo frá,
að það hafi stafað af ósam-
komulagi um söluverðið.
Framh. á bls. 10