Vísir - 18.02.1963, Qupperneq 16
VISIR
Mánudagur 18. febrúar 1963.
t> 1 1 ..................
Ella kem
ur í júní
Hin heimsfræga bandaríska
jazzsöngkona Ella Fitzgerald
kemur hingað í. júní í staðinn
fyrir marz, eins og upphaflega
var talað um.
Hefur nú endanlega verið geng
ið frá samningum við hana um
fjóra konserta í Reykjavík í
stað þriggja áður. Einar Jóns-
son, gjaldkeri og forstjóri feg-
urðarsamkeppninnar er nýkom-
inn að utan eftir að hafa samið
við umboðsmenn söngkonunnar.
Elia Fitzgerald verður á kon-
sertferðalagi um Norðurlönd í
júní og kemur hér við í þeirri
ferð. Með henni verður tríó, sem
nú leikur með henni, í stað
Oscar Peterson tríósins, en þau
eru hætt samvinnu.
Brandt sigraði
'iorgarstjórnarkosningar fóru fram
í gær í Vestur-Berlín og fengu jafn-
aðarmenn undir fofystu Willy
Brandts borgarstjóra hreinan meiri
iduta atkvæða og er það talinn mik
ill sigur, sem þeir hafa unnið. —
Kristilegir demokratar misstu fylgi
bæði til þeirra og frjálsra dcmo-
krata.
Á kjörskrá voru 1.7 milljón kjós-
endur og var kjörsókn hin bezta,
þrátt fyrir slæm veðurskilyrði.
Skýrsla O. E. C. D.:
smriLLm arancur
VIDRCISNARINNAR HÍR
Efnahags- og framfarastofnunin í París (OECD)
segir í ársskýrslu sinni, að nú hafi meira jafnvægi
náðst í íslenzkum efnahagsmálum en nokkru sinni
fyrr frá stríðslokum. Það þýðir að ástandið í efna-
hagsmálum þjóðarinnar hafi aldrei verið hagstæð-
ara en einmitt nú.
í skýrslunni kemur m. a. þetta fram:
Greiðslujöfnuðurinn hefur batnað mikið.
^ Gjaldeyrisinnstæður okkar erlendis hafa auk-
izt verulega.
Mikill hluti utanríkisviðskiptanna hefur verið
gefinn frjáls.
★ Uppbótafyrirkomulagið hefur verið lagt niður.
Aðrar niðurstöður stofnunarinnar varðandi ís-
land eru einnig hinar merkustu.
★ Ekki er auðvelt að ná örum hagvexti hér á
landi.
★ Meiri fjölbreytni í framleiðslunni er því mjög
nauðsynleg.
Erlent fjármagn mun flýta fyrir þróun efna-
hagslífsins.
★ Skipuleggja má betur fjárfestingu hins opin-
bera.
í áliti Efnahagsstofnunarinnar um mál íslands seg-
ir m. a.:
Jafnvægisráðstafanirnar, sem
gerðar voru í febrúar 1960, voru
vel skipulagðar og framkvæmd-
ar. Með stuðningi Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins og Efnahagssam-
vinnustofnunarinnar við efna-
hagsráðstafanir íslenzku ríkis-
stjórnarinnar, sýndu stjórnir að-
ildarríkja þessara stofnana, að
þær báru traust til þessara ráð-
stafana. Það traust hefur reynzt
verðskuldað, þar sem óhóflegur
þrýstingur eftirspurnar hefur
horfið og meira jafnvægi náðst
Framh. á bls. 5.
Myndin sýnir skemmdimar sem urðu á Akureyrarbryggju af völd-
um Mánafoss. Stálþil hennar skemmdist mikið.
Vindingur i öllu
stefni Múnufoss
Mánafoss, hið nýja skip Eim-
skipafélags íslands, kom til
Iandsins á laugardagsmorgun og
var fyrsta höfn, sem skipið kom
til, Akureyri, en það flutti með
sér vörur til hafna úti á Iandi.
Svo illa tókst til, er skipið
var að leggjast að aðalhafnar-
bryggjunni á Akureyri, að það
lét ekki að stjórn og sigldi á
bryggjuna með þeim afleiðing-
um, að bæði skip og bryggja
skemmdust talsvert.
Stálþil bryggjunnar rifnaði og
flettist frá, auk þess sem
bryggjukanturinn brotnaði. Þá
beyglaðist stefni skipsins, og
kom gat á það. Þegar í stað
hófst viðgerð á skipinu og
framkvæmdi hana vélsmiðjan
Atli. Var skorinn burt hluti úr
stefninu og nýtt sett í staðinn.
Er þetta þó aðeins bráðabirgða-
viðgerð. Er vindingur í öllu
stefninu. Viðgerð tók 10 klst.
Framh. á bls. 5.
r _
Island - Bordeaux-úrval 26:16
Lá viB átökm þegar
ísland vann Bordeaux
Leikur íslands gegn úrvalsliði
Bordeaux var á köflum stórgóður,
einkum í fyrri hálfleik, en síðari
hálfleikinn eyðilögðu Frakkarnir
að miklu leyti með ofsalegri hörku,
en áhorfendumir í Benauge íþrótta
höllinni lögðu sitt til, en þeir undu
ósigrinum mjög illa og höfðu uppi
mikil ærsl. Tveir menn vom látnir
fara af leikvelli seint i síðari hálf-
leik, Ragnar Jónsson og Frakki.
Sigur íslands, 26:16, var sanngjarn
eftir gangi leiksins, en leikur Iiðs-
ins allur var óþekkjanlegur frá
kvöldinu áður, og nánast frábær
á köflum.
SVÁFU 1 3 TÍMA.
íslendingarnir fengu ekki langan
svefntfma fyrir ferðalag sitt til
Bordeaux, því landsleiknum lauk
nokkuð seint, en eftir leikinn fóru
leikmenn og snæddu með frönsku
landsliðsmönnunum og klukkan 6
f gærmorgun var lagt af stað til
Bordeaux frá einni af járnbrautar-
stöðvum Parísar. Það voru þvf
heldur slæptir og þreyttir ferða-
langar sem komu til áfangastaðar-
ins um hádegisbilið í gær.
GÓÐ BYRJUN.
Leikurinn, sem hófst kl. 5, bar
þó ekki vott um þetta, því íslend-
ingarnir léku gullfallega og fyrstu
3 mörkin voru öll íslenzk. Ragnar
skoraði fyrst, en eftir fylgdu mörk
frá Erni Hallsteinssyni og Gunn-
laugi og eftir að Frakkar skoruðu
sitt fyrsta mark komu hvorki meira
né minna en 5 íslenzk mörk til við-
bótar. Þessi góða byrjun hafði að
vonum góð áhrif. Hjaíti Einarsson
varði geysivel mark sitt og skot-
menn Islands voru mjög góðir. Um
miðjan síðari hálfleik var staðan
11:2 fyrir Island, en í hálfleik var
staðan 15:5 fyrir ísland, munurinn
meiri en nokkur hafði þorað að
vona.
Rósmundur skoraði fyrsta mark-
ið í sfðari hálfleik, en það var eft-
ir 6 mfnútna leik. Þá var vara-
markvörður Islands látinn skipta
við Hjalta.
Frakkar skora nú 6. og 7. mark
! sitt, en Ragnar skorar, 17:7. Frakki
stekkur inn af línunni og skorar,
17:8, en var óheppinn og slasaðist
illa á ökla og var borinn út af.
i Eftir þetta eru Frakkarnir nokkuð
; ágengir og upphefst mikill bardagi,
| enda farið að síga bæði í leik-
menn og áhorfendur að hafg alltaf
10—12 mörk undir. Um þetta leyti
var Ragnar og Frakkanum vísað
út af fyrir endur tekin brot, þrátt
fyrir að dómarinn, Dubonnet,
leyfði annars heldur mikla hörku f
leiknum.
Framh. á bls. 5.
Stj órnmálanámskeið
Heimdallar í kvöld
Próf. Ólafur Björnsson, talar
um vinstri stjórnina.
Prófessor Ólafur Björnsson,
alþingismaður, er ræðumaður á
stjórnmálanámskeiði Heimdall-
ar í kvöld og talar hann um
vinstri .jórnina, verk hennar
og stöðu í íslenzkum stjórnmál-
um. Námskeiðið, sem fjallar um
íslenzka stjómmálasögu, hefur
verið geysilega fjölmennt. Rétt
er a'ð vekja athygli á því, að
færa varð fundinn fram um einn
dag, vegna fulltrúaráðsfundar
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík, sem verður annað kvöld,
en námskeiðið hefur hingað til
verið á þriðjudögum. Námskeið-
ið fer fram í Valhöll við Suður-
götu og hefst kluklcan 20.30.
Nýir þátttakendur geta fengið
allar upplýsingar og látið skrá
sig á skrifstofu Heimdallar.