Vísir - 22.02.1963, Qupperneq 16
— segir
Schneiderhon
— Ég man eftir göt-
unum og smáhestunum,
en ekkert hvernig kon-
sertarnir voru. Ég var
héma að mig minnir í
12 daga og hélt 8 hljóm-
leika. Það var árið 1927,
segir fiðlusnillingurinn
Wolfgang Schneiderhan
í samtali við fréttamann
Vísis á Reykjavíkurflug-
velli við komuna í gær.
Hér mun Schneiderhan leika
á tveimur hljómleikum með Sin-
Framh. á bls. 5.
1«
Loftur Loftsson verkfræðingur
með pakka af saltfiski í umbúð-
um. sem eru sérstaklega gerðar
fyrir Amerikumarkað. Umbúð-
irnar eru nýjar af náiinni og
fullkomnari heldur en áður hafa
verið notaðir. Pakkinn á að þola
geymslu í búð, nær þrjá mán-
uði samfleytt, án þess að fisk-
urinn breytist, hvað þá skemm-
ist. Með þessari framieiðslu er
hugsaniegt að opnazt hafi sölu-
möguleikar á saltfiski til Banda
ríkjanna. Það er Sölusamband
islenzkra fiskframleiðenda, sem
stendur fyrir tilraununum, en
ekki er ljóst ennþá, hvort þær
bera fullan árangur, þótt margt
lofi góðu um það. (Ljósm. Vfs-
is, B. G.).
Föstudagur 22. febrúar 1963. j
Tekinn
réttindnlnus
1 gær tók lögreglan í Reykjavík
réttindalausan pilt á óskráðu bif-
hjóll.
Þarna er um tvöfalt brot að
ræða. Pilturinn hafði af aldurssök-
um ekki réttindi til að aka bif-
hjóli, auk þess sem ekki hafði ver-
ið farið með hjólið til skrásetn-
ingar.
í gær var bifreið stolið, eða tek-
in í heimildarleysi, frá Skúlagötu
og hafði lögr. ekki borizt tilkynn-
ing f morgun um að hún væri kom
in fram.
Bóluefni
Eins og Vísir sagði frá í
fyrradag pantaði Lyfjaverzlun
ríkisins bóluefni gegn inflúenz-
unni frá Ameríku með sfm-
skeyti f byrjun þessarar viku.
— Lyfjaverzlunin sendi annað
skeyti út f gær og spurðist fyr-
ir um það hvenær vænta mætti
þessar sendingar. Svar við
þeirri fyrirspum er væntanlegt
í dag.
Innflúenzan heldur áfram að
breiðast út í bænum eins og
vænta má um slíkan faraldur.
Ekki er kunnugt um nein dauðs
föll af hennar völdum enn þá
og ekkert bendir til þess, enn
sem komið er, að hér sé um
skæða veiki að ræða. Menn fá
háan hita og beinverki og önn-
ur venjuleg einkenni og liggja
rúmfastir allt upp f 3 til 5 daga.
Innflúenzan er þegar farin að
segja til sín í auknum lyfjaút-
látum og er mikið annríki í
lyfjabúðum, einkum síðari hluta
dagsins.
Svala Nielsen
Hinn heimsfrægi fiðlusnillingur Wolfgang Schneiderhan (t. v.) á æfingu með Sinfóníuhljómsveit ís-
Iands í Háskólabíói f morgun. Stjómandinn er Gustav König, frá Vín. Verið var að æfa fiðlukonsert
Mozarts, en hann verður leikinn í kvöld á hljómleikum. (Ljósm. Vísis I. M.).
Fundir Norðurlunduróðs:
Einhugur um
skiptu- ogmarkaðsmál
Miklar viðræður urðu á fundi
Norðurlandaráðs í gær um þá til-
lögu efnahagsmálanefndar ráðsins,
að Norðurlönd stefni að auknum
viðskiptum innan Fríverzlunar-
bandalagsins ,og tóku þátt í þeim
viðskiptamálaráðherrar allra Norð-
urlandanna fimm, og er ítarlega frá
viðræðunum sagt í NTB-fréttum.
Fyrir íslands hönd talaði Gylfi Þ.
Gíslason og kvað svo að orði, að
stærstu markaðir íslands væru í
Vestur-Evrópu og legðu Islending-
ar megináherzlu á, að samstarfið
við hinar Norðurlandaþjóðirnar
væri sem bezt.
- Ráðherrann. kvað alla harma það,
að samkomulagsumleitunum hefði
verið hætt í Bríissel, og smáþjóð-
irnar yrðu að vona, að stóru lönd-
in tækju afstöðu sína til nýrrar
íhugunar. Væri það stórmikilvægt
fyrir alla, að í náinni framtfð fynd-
ist lausn á viðskiptastjórnmálaleg-
um (handelspolitiske) vandamálum
Vestur-Evrópu, því að hér væri um
einingu landanna þar og samstöðu
Framh. á bls. 5.
Syngur á „Pressuballinu
Það barst okkur til eyrna, að
ung söngkona að nafni Svala Ni-
elsen, ætti að syngja á „Pressu-
ballinu" og hröðuðum við okkur
þvf á hennar fund. Svala vinnur
í skrautmunaverziun föður sfns í
Templarasundi. Og, er við spyrjum
hana, segist hún vinna þar fullan
vinnudag og aðeins hafa sönginn
fyrir „hobbí“. En pabbi er mjög
skilningsgóður og ég fæ miklu
meiri tækifæri til þess að stunda
söngæfingarnar, heldur en ef ég
ynni hjá einhverjum óviðkomandi.
Annars er engin leið fyrir upprenn-
andi óperusöngvara og jafnvel ekki
vana, að lifa á söngnum einum.
Er þér ekki um og ó að syngja
fyrir allt þetta fólk? Jú, það veit
hamingjan. Þetta var að vísu al'.t
í lagi þangað til þið komuð, en
þegar ég vissi að þetta kæmi f óll-
um blöðum, varð ég dauðhrædd.
Svala hefur stundað söngnám bæði
í Þýzkalandi og á Italíu, ei; hún
var svo blönk að hún gat ekki ver-
Framh. á bls. 5.
7/5 stæðu bílageymsluhús
kostar 5 milljónir króua
Nýlega var lögð fyrir umferð-
arnefnd kostnaðaráætlun um
byggingu tveggja hæða bíla-
geymsluhúss á Vitatorgi. Einnig
var lögð fram kostnaðaráætlun
um malbikuð bflastæði á sama
stað.
Áætlað er að 115 bílastæði
1 geymsluhúsi muni kosta rúm-
ar 5 milljónir króna en 60 mal-
bikuð bflastæði aðeins 680 þús-
und krónur.
Könnun þessi fór fram að til-
hlutan umferðarnefndar til fá
samanburð á möguleikum, sem
til greina koni.i En ljóst er, að
Vitatorg verður f framtíðinni
nauðsynlegt og mikilvægt bif-
reiðastæði.
Áætlanir um þetta stranda á
þvf að svæðið hefur ekki verið
skipulagt ennþá.
Nokkur fjárhæð til byggingar
bílageymsluhúss mun vera til.
Hefur borgarstjórinn skyldað þá
sem fá leyfi til að byggja stór-
hýsi f miðbænum að sjá fyrir
bílastæði ella greiða vissa upp-
hæð, sem er látin renna til
byggingar bílageymslu. Jafn-
framt mun stöðumælasjóður
hafa áhuga á að leggja fé til
byggingar slíks geymsluhúss.