Vísir


Vísir - 26.02.1963, Qupperneq 1

Vísir - 26.02.1963, Qupperneq 1
■KKIOF „Leikgagnrýnendur hér á landi eru alltof harðir i dómum sínum um íslenzk leikrit", sagði Þjóðleikhússstjóri á fundi með blaðamönnum í gær. „Þeir taka ekki nægilegt tillit til að- stöðumunar íslenzkra og er- lendra leikritaskálda, en hér eiga menn ekki kost á jafn- langri og góðri þjálfun í leik- þorskinn inn ur notinm !// ORKU ritagerð og annars staðar er mögulegt. Þar geta höfundar stundað leikhús og kynnt sér tæknilegar hliðar leikritagerð- ar, oft leika þeir jafnvel sjálfir, og þeir geta öðlazt margvíslega reynslu, sem ekki er unnt að fá hérlendis“. Á miðvikudagskvöld verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu hið nýja leikrit Sigurðar Róberts- sonar, DIMMUBORGIR. Kvaðst Þjóðleikhússtjóri vera mjög ánægður að fá þetta leikrit til flutnings, enda væri það afar nýstárlegt að efni og búnaði og líklegt til að vekja athygli og umhugsun. Framh á bls. 5. Eldborgin kom með 37Vi tonn — eins dags veiði i þorskanót Þorskanetaveiðar fáeinna báta á SV-Iandi hafa vakið athygli. Eldborgin úr Hafnarfirði hefur fengið 116 tonn á viku og 1 Ársæll Sigurðsson um 150 tonn á 10 dögum. Þetta er nýtt1 veiðarfæri, sem verið er að reyna. Hér birtast umsagnir skip-1 stjóra og fiskifræðings um þessar nýju veiðar. Sæmundur Sigurðsson á Ársæli Sigurðssyni II hefur komið með 150 tonn á 10 döguni. Fréttimar af þorskanótaveið- unum við Aeykjanes að undan- fömu hafa vakið mikla athygli við sjávarsíðuna, þar sem bát- amir hafa oftsinnis komið með 15 tonn inn í veiðiferð, meðan línu og netabátar hafa sjaldan verið með meira en 4—5 tonn. Ber þess þó'að geta, að eigi má gera of mikið úr þessum nótaveiðum, þar sem bátamir em svo fáir og búast má við að veiðin standi aðeins stutt. Fallegur afli. En Vísir hefur nú haft fregn- ir af því, að Hafnarfjarðarbát- urinn Eldborg hafi komið inn á laugardaginn með 37% tonn, eins dags veiði og hafi þessi fiskur verið svo fallegur, bæði stór og glænýr, svo að sjómenn hafa varla séð fallegri afla. Á laugardaginn kom Ársæll Sig- urðsson II lfka til Grindavíkur með um 15 tonn. Breytilegar göngur. Vísir sneri sér til Gunnars Hermannssonar skipstjóra á Eldborg og bað hann um að segja sér, hvernig hefði staðið á þessum miklu aflabrögðum. — Við höfum verið að reyna nótina tvö s.l. sumur, en feng- um þá lítið annað en ýsu í hana. En nú bregður svo við að við fáum mikið magn af þorski. Þetta stafar af breyti- legum göngum. Það hefur ekki komið slík ganga sem nú. Þessi þorskur fylgir loðnunni og við veiddum þessi 37% tonn skammt frá Garðskaga. Þetta voru 9 köst. Gunnar Hermannsson á Eldborginni: Hef varla séð fallegri fisk. Utan við loðnuna. — Sjáið þið þorskinn á fisk- leitartækjunum? — Nei, við sjáum loðnuna og Ioðnutorfan virðist skyggja svo Þrjár síldarverksmiðjur í undirbúningi ú Vestfjörðum á þorskinn að það sést ekki depill utan við loðnutorfuna. En þorskurinn virðist halda sig í kantinum utan við loðuna og svo mikið magn af honum, að það er sama hvar við köstum, hann kemur í nótina, heldur sig frá botninum. Veiðist ekki á línu. — Það er sagt að hann sé stór? — Já, hann er mjög stór. Við töldum ekki fyrstu dagana, en ég gæti trúað að fyrst hafi verið 80 fiskar í tonninu. Hins vegar töldum við allan aflann á laugardaginn og þeir voru rúmlega 3200 í 37% tonni. Framh. á bls. 5. Allar horfur eru á því að fram undan sé stórfeld uppbygging í síldariðnaði á Vestfjörðum. ís- firðingar hafa í huga að reisa nýja síldarverksmiðju, eða býggja við gömlu fiskimjöls- verksmiðjuna þar. Fyrirtæki Einars Guðfinnssonar í Bolung- arvík hefir í undirbúningi að reisa nýja 1500 mála verksmiðju og Þorbjörn Áskelsson, sem rek ur hraðfrystihúsið á Patreks- firði, ráðgerir einnig verksmiðju byggingu. Þessar framkvæmdir myndu að sjálfsögðu verða mik- il Iyftistöng fyrir atvinnulífið á Vestfjörðum og mun hafa verið farið fram á stuðning ríkisvalds ins við þessa uppbyggingu. Mik- ill og almennur áhugi er á þess- um málum í byggðarlögunum vestra. Hugsa Vestfirðingar sér að hagnýta sumarsíld, raeðan húp er á Vestursvæðinu og Mið svæðinu a. m. k. og eins vetrar- sildina, en hún veiðist oft sem kunnugt er út af Jökli og jafn- vel norður í Breiðafirði, og er stundum ekki lengra að flytja hana til Vestfjarða en Faxaflóa- hafna, að ekki sé nú talað um ef flytja ætti hana til Norður- landshafna. Þá þykir Vestfirðing um og sem eigi muni fullrann- sakað hvort síld sé í siónum út af Vestfjörðum á ýmsum árs- ttmum. VERKSMIÐJUMÁL ÍSFIRÐINGA: Bæjarstjórn ísafjarðar sam- þykkti á fundi sínum 6. þessa mánaðar að fela bæjarráði að boða til fundar með útvegs- mönnum i bænum með það fyrir augum að ræða mögu- leika á að reist verði þar síld- arverksmiðja. Þessi fundur var haldinn í fyrradag og sóttu hann ýmsir framámenn í fisk- iðnaðarmálum, auk bæjar- stjórnarinnar og forstjóra fiski mjölsverksmiðjunnar á ísa- firði. Kosin var 5 manna nefnd til þess að athuga þetta mál Framh. á bls. 5. Ellert Schram tormaður Stúdentaráðs Nýkjörið Stúdentaráð Háskóla íslands hefur skipt með sér verk- um og var Ellert Schram, stud. jur. kjörinn formaður, Þorvarður Elíasson, stud. oecon, gjaldkeri og Sveinn Valfells, stud. polyt. ritari. Alls sitja níu menn I ráðinu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.