Vísir - 26.02.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 26.02.1963, Blaðsíða 2
2 V1SIR . Þriðjudagur 26. febrúar 1963. Markaregn hjá kvenfólkinu rr\, . I . 1 ígrisdýrio frá Nígeríu *> DICK TIGER, hinn 33 ára gamli hnefaleikamaður frá Nígeríu varði á Iaugardagskvöldið titil sinn sem heimsmeistari í millivigt hnefa- Ieikanna er hann og Gene Fullmer voru dæmdir jafnir að stigum f 15 lotu keppni í Las Vegas, hjóna- skilnaðarborginni frægu- Hvorugur <j;hnefaleikaranna fékk komið hinum I gólfið f keppninni. Myndin er af Tiger (til hægri) £ keppni gegn Henry Hank, en Tiger er talinn einhver bezti hnefaleikari, sem nú er uppi. Tiger hefur barizt 63 sinn- um, 46 sinnum sigrað og 3 slnnum verið dæmdur jafn keppinaut sín- um. Hann varð meistari 23. októ- ber 1962. íslandsmeistarar Vals unnu Víking í mfl. kvenna í handknattleik á sunnu- dagskvöldið með 18:16 og stóðust með naumindum góðan endasprett Víkings, en FH, sem virðist hafa á- girnd á titlinum í ár vann Fram með 12:9, sem voru vonum minni yfirburðir. Leikirnir í kvennaflokki eru nú óðum að lagast frá því sem var og voru báðir leikirnir 1 fyrrakvöld allskemmtilegir á að horfa. Valur hafði mikla yfirburði í fyrri hálf- ieik gegn Víking og hafði yfir 11: 4 í hléi. Vikingur var hins vegar Kristinn annar á alþjóð- legu móti / La Molina mjög ágengur í síðari hálfleik og vann stöðugt á, og undlr lokin var mikil spenna komin í leikinn og þegar Gylfi Hjálmarsson, dómari kvöldsins, flautaði af, skildu að- eins tvö mörk, en markatalan ó- venju há eða 18:16, sem er mjög sjaldgæft i kvennaflokkunum. Sigríður Sigurðardóttir skoraði 6 marka Vals, en Guðbjörg skor- aði jafnmörg fyrir Víking. FH virtist ekki eiga í neinum erfiðleikum með Fram eftir nokkra byrjunarörðugleika, en eftir það voru miklir yfirburðir til hálfleiks- loka og í hléi var staðan: 7:3. Síðari hálfleikinn vann Fram hins vegar með 6:5, en tókst aldrei að ógna sigri FH að gagni. Flest mörk fyrir FH skoraði Siguriína, 6, en Ingibjörg flest fyr- ir Fram, 5 mörk. Framh á bls. 5. Magnás Ingólfsson vann Stórhríðarmót Akureyrar Stórhríðarmót Akureyrar I svigi fór fram I Hlíðarfjalli við Stromp- inn s.l. sunnudag 10. þ. m. Keppt var I A, B og C flokkum svo og drengjaflokkum 13 —15 ára og 12 ára og yngri. Veður var hið ákjósanlegasta og fór keppnin vel fram. Kepp- endur voru alls 34. Skíðaráð Akur- eyrar sá um mótið. Margt manna var í fjallinu, en menn söknuðu þess að geta ekki fengið sér kaffisopa í Sklðaskái- anum, en ástæðan fyrir því er sú, að nú er verið að vinna að inn- réttingu eldhúss skálans ásamt fleiru og verður þvi verki vart lok- ið fyrr en eftir einn til tvo mán- uði. Þó mun reynt að koma upp bráðabirgða aðstöðu til þess að veitingasala geti farið fram. KHISTINN BENEDIKTSSON. Annar á alþjóðlegu skiðamóti í La Molina á Spáni. Kristinn Benediktsson, skíða-f1 maður frá ísafirði náði góðum árangri á stórmóti í La Molina á Spáni, sem haldið var dagana 14.—17. febr. s.l. Hann tók ann að sætið f keppninni, en í henni eru margir snjallir kappar og keppendur iðulega fast að hundrað, eða jafnvel á annað hundrað Kristinn er nýfluttur til Aust- urríkis með konu sfna, en þar starfar Kristinn sem sölumaður fyrir skíðaverksmiðju er heitir ATOMIC. Fór hann utan í nóv- ember og hyggst dveljast þar f ár. Kristni var boðið til mótsins á Spáni en keppt var i bruni og svigi og í þessum tveim greinum samanlögðum varð hann annar, sem fyrr segir. Von er á Kristni til íslands um páskana og mun hann verða einn af keppendum á Skíðamóti Islands sem verður haldið í Neskaupstað. ^ Lið Braziifumanna, sem eru tvöfaldir heimsmeistarar í knatt- spymu mun að öllum líklndum keppa 21. maf n.k. í Gautaborg gegn sameinuðu liði Dana, Norð- manna og Svía á Nya Ullevi- leikvangnum. •■.V.VAV.V.V.V.V, I ■ I -■-■-v.v Evrópumeistari í Judo til Islunds ■| 26. febrúar n.k. hefst nám- / skeið í JUDO fyrir byrjendur, ■I sem judo-deild Ármanns gengst I; fyrir. |. Aðsókn að deildinni hefur >| verið svo mikil í vetur, að ekki I> hefur verið unnt að taka inn •I byrjendur síðan f haust, en nú hafa fengizt til viðbótar tveir *■ æfingatímar á viku, i íþrótta- húsi Jóns Þorsteinssonar, og varð það að ráði að nota þá tii að taka á móti nýliðum, því að eftirspurn hefur verið mikil Judo virðist eiga vaxandi vin- sældum að fagna hér á iandi, sem annars staðar. Það er efni- legur hópur, sem hefur sótt xfingar hér i vetur og æft vel. Er nú í athugun að fá í heim- sókn frægan judokappa, John rie-.vman, 4. dan frá Bretlandi. en hann hefur m. a. tvisvar orðið Evrópumeistari í judo, einnig hefur hann dvalið í Jap- an og keppt þar við góðan .'ðjtír. Er þess vænzt að þeir sem áhuga hafa ' judc, mæti á þetta námskeið, o, verður reynt að sjá þeim fyrir góðri tilsögn, m a. með því að ýmsir af beztu judomön-.um hér mæta á æf ingar til að sýna listir sínar og kenna. Einnig fá þátttakendur bók með myndum og leiðbein- ingum í undirstöðuatriðum Æfingar hefjast, sem áður seglr, í dag (þriðjud. 26. febr.) og verða framvegis á þriðju- dögum kl. 8—10 í iþróttahúsi Jóns I orsteinssonar, Lindarg. 7 Námskeiðinu lýkur 26. marz. ■.V.V.'.V.VAV.’.V.V.V.VAV.V.V.VV.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.1 Úrslit Stórhríðarmótsins: A. flokkur: Sek. samanl. 1. Magnús Ingólfsson K.A. 86.7 2. Guðm. Tulinius K.A. 90.7 3. Otto Tulinius K.A. 91.8 B. flokkur: 1. Viðar Garðarsson K.A, 1.04.1 Keppendur f B fl voru samt. 6, en aðeins einn lauk keppni. Brautarlengd 230 m. Fallhæð 120 m. Hlið 38. C. flokkun 1. Sigurður Jakobsson K.A. 89.1 2. Eirfkur Ragnarsson M.A. 1.04.6 3. Stefán Ásgrfmsson Þór 2.01.5 Brautarlengd 200 m. Fallhæð 110 m. Hlið 34.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.