Vísir - 26.02.1963, Qupperneq 6
JpÉÉ
Bændaskólar — breytingar á sjómannalögum —
hægri handar akstur — breytingar á vátryggingar-
lögum fiskiskipa.
Sophia ræðir viö Bohan sjálfan um föt — afgreiðslustúlkumar horfa
þungbúnar á.
Hún valdi — hann borgaði — hún þakkar fyrir.
fpvö mál voru tekin fyrir á Al-
þingi ( gær, frumvarp um
bændaskóla, í efri deild, og frum
varp til breytinga á sjómanna-
lögunum í neðri deild.
Bændaskólafrumvarpið flytur
landbúnaðarnefnd, en hún hefur
samið frumvarpið fyrir atbeina
landbúnaðarráðherra. Framsögu
maður nefndarinnar í gær var
Bjartmar Guðmundsson (S).
Þær meginbreytingar sem
nefndin leggur til að fram-
kvæmdar verði með frumvarpi
þessu eru: 1. að bændaskólar
verði tveir en ekki þrir. Ástæð-
urnar fyrir því eru þær, að bæði
er aðsókn ekki meiri og eins hitt
að mikið skortir á, að svo sé
búið að þeim tveim skólum, sem
nú starfa, að viðunandi sé, 2.
fleiri lcennara þarf við skólana
og 3. taka þarf upp frekari verka
skiptingu milli þeirra, 4. að verk
lega námið sé stytt, 5. að meiri
áherzla sé lögð á kennslu í vél-
fræði, 5. og að síðustu að margs
konar námskeið verði haldin í
sambandi við bændaskólana.
Varðandi fækkun bændaskóla
úr þremur, eins og nú er gert
ráð fyrir, niður í tvo, leggur
nefndin til að skólarnir verði að
Hólum og Hvanneyri, en horfið
verði frá fyrirhuguðum skóla að
Skálholti.
í neðri deild rakti framsögu-
maður sjávarútvegsnefndar,
Birgir Finnsson breytingar þær
sem til standa á sjómannalög-
um. Ekki er ástæða tii að rekja
þær breytingar í einstökum lið-
um, en flestar þeirra eru breyt-
ingar og endurnýungar í sam-
ræmi við breytta þjóðfélags-
hætti, og lagfæringar á ýmsum
augljósum göllum. Núgildandi
sjómannalög eru frá 1930.
|~Jreift hefur verið í þinginu
nokkrum þingskjölum, m. a.
tillögu Kjartans J. Jóhannsson-
ar og Birgis Finnsson um hægri
handar akstur. Bent er á í grein-
argerð að flestar þjóðir hafi
tekið upp hægri handar akstur,
þar á meðal allar Evrópuþjóðir
nema við, Englendingar og Sví-
ar, og Svíar hafa þegar ákveðið
að breyta til. Segir síðan: Hjá
því getur varla farið að við verð
um fyrr eða síðar að fylgjast
með í þessum efnum. Það þarf
hins vegar allmikinn undirbún
ing og verður kostnaðarpamara.
eftir því, sem það dregst. Með
vandlegum undirbúningi og með
því að hafa nægan tíma til um-
ráða má verulega draga úr kostn
aði við breytinguna. Þess vegna
er þessi tiliaga flutt nú.
Jón Árnason ber fram frum-
varp til laga um breyting
á lögum um varðskiþ landsins.
Leggur hann til að björgunar-
Iaun fiskiskipa sem varðskip
hjálpa úr háska. skuli fara eftir
reglum sem dómsmálaráðherra
setur og skuli þá miðað við út-
gerðarkostnað varðskipsins, og
tíma þann er hiálpin tók. Skv.
núgildandi lögum eru björgunar
laun ákvörðuð af stjórn Sam-
ábyrgðar íslands og miðast þá
við fjártjón og' tilkostnáð, sem
'hjálpin hefur valdið.
Er það skv. lögum um vátrygg-
ingarfélög fýrir fiskiskip. Hjá
þeim félögum eru hiris vegar að
eins tryggð þau skip sei.i skylt
er að tryggja, þ. e. báta.minni en
100 brúttólestir, eri s^tærri fiski-
skip tryggja ýfirleitt hjá einka-
tryggingarfélögum, sem ekki
njóta hagsbóta af fyrrgréindum
reglum.
Hafa tryggingar þessar því
orðið nokkru dýrafi en ella.
Geta má þess, að erlendis er
það föst venja að skip sem hafa
björgunarstarfsemi að átvinnu.
taki fyrir hjálp sína tímakaup,
eins og Jón leggur til, en ekki
bjarglaun samkvæmt ákvæðum
siglingalaganna.
Þá leggur Karl Guðjónsson
fram tillögu um tryggingarsjóð
landbúnaðar og nokkrir Alþýðu-
flokksmenn leggja tií að eftirlit
verði haft með fyrirtækjum, svo
þau geti ekki haft óæskileg á-
hrif á verðmyndunh' landinu.
Á ég að taka hann eða ekki?
— það er dálítið erfitt þegar
frakkinn er saumaður handa
magurri sýningarstúlku en mað-
ur gengst dálftið úþp í „kúrv-
um“.
Leikkonan pantaði mikið af
fötum upp á von og óvon —
en hún er svo stór að meðal
númer í Frakklandi passa henni
alls ekki, og því gat hún ekki
keypt öll þau módelföt, sem
hún h'éfði viljafL'Eri^po kvaSTdí
hún Bohan — hæstánægð.
Full breiðar axlir — ekki svo?
En ég tek hann nú sanit.
VISIR . Þriðjudagur 26. febrúar 1SC3.
Fyrstu Dior-myndirnar
sem birtast
Soffía Loren mátar nýju tízkuna
í dag verða fyrstu ljósmynd-
irnar frá Dior-tízkusýningunni
birtar í París. Þeirra er beðið
með eftirvæntingu um allan
heim, og er það ekki nema eðli
legt, þar sem Dior-sýningin er
almennt álitin hafa verið s.ú
bezta í ár.
En þótt blátt bann hafi verið
lagt við að Iáta nokkuð af Ijós
myndum síast út hefur ljós-
myndarinn, sem tók myndirnar
sem hér birtast ekki hirt um
það. Og myndirnar eru af
Soffíu Loren sem er að velja
sér föt og manni hennar Carlo
. ■ r ...............
Ponti, sem hefur tilbúna ávís-
un sem jafngildir kvartmilljón
íslenzkra króna.
Carlo Ponti fer alltaf með
Soffíu sinni í fatakaup og
Soffía segir: „Svona á það að
vera. Maður á alltaf að hafa
eiginmanninn með, og aðeins
að klæða sig fyrir hann, hirða
ekki um hvað aðrar konur
segja". ,
Hún Soffía er sannarlega
heppin að eiga svo velstæðan
mann.
Hún segir að nýja tízkan
hans Bohan sé alveg stórfín
og hafi aldrei verið betri, og
að hann Bohan hafi afskaplega
mikla hæfileika og sé mjög að-
laðandi. öll hennar eftirlætis
föt s.l. fimm ár hafa verið frá
Dior húsinu.
S