Vísir


Vísir - 26.02.1963, Qupperneq 7

Vísir - 26.02.1963, Qupperneq 7
VÍSIR . Þriðjudagur 26. febrúar 1963. túlkuð með mjög augljósum við vaningsblæ og lýtti það atriðið að nokkru. pétur Einarsson vekur ekki at- hygli fyrir það sem hann sýnir heldur fyrir hitt sem hann virðist hafa skilyrði til að geta sýnt í framtíðinni. Honum var fyrirmunað að birta hina mikiu sálarbaráttu Macbeths enda hefði það verið kraftaverk hjá svo ung um manni. Pétur hefur mjög góða rödd en hann kann ekki að beita henni enn. Framsögn hans var sönglkennd og vantaði allan dramantískan þunga. Miklu betur tókst honum að túlka svipbrigði Macbeths. Hér er einnig á ferð inni mjög gott efni í leikara en hann skortir enn þá sjálfsögun og festu sem er undirstaða allra mikilla afreka á leiksviði. Jjað er furðuleg dirfska hjá Leikhúsi æskunnar að taka sér fyrir hendur að kynna verk Shakespeares. Menn eru sam- mála um að túlkun á hlutverk- um Shakespere sé eitthvert erf- iðasta verkefni sem leikari geti fengið. Mörg leikhús sem ráða yfir fjölda atvinnuleikara Ieggja til atlögu við Shakespeare með hálfum hug. Á vegum Leikfélags æskunnar eru aðeins starfandi unglingar sem flestir eru nýlega byrjaðir í leiklistarnámi. Þetta er því ójafn leikur og úrslitin vit- uð fyrirfram. Mér er ekki kunn- ugt um hver réði verkefnavalinu í þetta sinn en mér þykir sá maður slæmur hershöfðingi. þetta er eins og að senda óvopn- aða, berhenta og óþjálfaða Iiðs- menn gegn skriðdrekum. Þetta tel ég rétt að haft sé í huga áður en lengra er haldið og vik- ið er að sýningunni sjálfri. Ævar Kvaran Ieikstjóri kemst svo að orði í leikskrá, að merk viðfangs efni hafi þá kosti að leikendur finni smátt og smátt eitthvað nýtt í snilld höfundarins og end- urnýist áhuginn þannig í sífellu. Þetta er auðvitað rétt en það breytir ekki hinu að unglingum er enginn greiði gerður með því að láta þá glíma við verkefni sem þeir hafa ekki skilyrði til að leysa. Vitaskuld er ekkert auðveldara en hafa um þetta fall- eg orð af því þarna séu ungling ar á ferð. Ég tel hins vegar að margt af þessu fólki megi fylli- lega heyra um sig hlutlægt mat. Það er engin ástæða til þess að ýta undir ofmatið hjá fólki sem er að hefja nám í leiklist. Má í því sambandi raunar varpa fram þeirri spurningu hvort það sé yfir leitt rétt að leyfa leiklistarnem- endum að koma fram opinber- lega meðan á námi þeirra stend- ur og Ieikur þeirra í algerri mót- un og hefur enn ekki fengið neinn sjálfstæðan svip. ■tfér er hvorki staður né stund til þess að analýsera verk Shakespeares enda er hér ein- ungis um að ræða brot og leift- urmyndir úr verkum hans. Á hinu er aftur á móti rétt að vekja athygli að tekin eru til meðferðar atriði úr þekktustu verkum Shakespeares, Rómeó og Júlíu, Macbeth og Hinrik IV. Þykjast flestir leikarar fullsæmd- ir af slíkum hlutverkum og ekki allir sem hefja leikferil sinn í erfiðustu hlutverkum leikbók- menntanna. Atriðin tókust mjög misjafnlega, Macbeth verst og Hinrik IV. bezt. Macbeth féll raunar alveg dautt sem vonlegt er því hvernig er von til þess að óharnaðir unglingar geti túlk- að þá hyldjúpu örvæntingu og takmarkalausu grimmd sem birt- ist í innri baráttu Macbeth-hjón- anna? Slíkt er ekki á færi ann- arra en þrautþjálfaðra leikara sem þar að auki búa yfir mikilli lífsreynslu og hafa séð með eigin augum baráttu örvilnaðs manns við afbrotahneigð og þann litla snefil sem hann á eftir af æru sinni. í atriðinu úr Rómeó og Júlíu er margt gott enda lætur ungu fólki betur að sjá róman- tík en hatrammar sálarkreppur. Að vísu bar ofurlítið á tilgerð öðru hverju en um það er ekki J^eikstjórinn, Ævar Kvaran, hef- ur leyst hlutverk sitt með prýði miðað við aðstæður þótt ekki hafi honum tekizt að leiða leikarana fram til sigurs á við- fangsefnum sínum enda ekki á færi mennsks manns. Ekki verð ur annað sagt en hann hafi bjarg að því sem bjargað varð og það er ekki svo lítið. Svo sem eðlilegt er hefur Ævar lagt megináherzlu á framsögn og látleysi í hreyfing um og náð þar furðulegum á- rangri enda þótt honum hafi vita skuld ekki náð fram lýtalausri framsögn hjá hinu unga fólki. Staðsetningar voru yfirleitt góð- ar e.t.v. þó að undanteknu at- riðinu úr Rómeó og Júlíu, þar sem Rómeó leikur mjög til hlið ar á sviðinu á mörkum Ijóss og skugga. Hins vegar hefði leik- stjórinn gjarnan mátt gefa meiri gaum að meðferð Ijósa sem oft var mjög ábótavant. það sem mestum tíðindum sæt- ir á þessari sýningu er fyrst og fremst frammistaða tveggja leikara og var þó annar þeirra sýnu betri. Þessir tveir ungu menn eru Arnar Jónsson og Pét- ur Einarsson. Arnar Jónsson lét Leikhús æskunnar: Pétur Einarsson í hlutverki Macbeths. eare - kvöld Leikstjórfc Ævar ECvoran að sakast. Síðasti hluti sýningar innar tókst langbezt eins og áð- ur er að vikið. Þar kemur kóm- íkin til sögunnar en líf þessa at- riðis er fyrst og fremst einum leikara að þakka og verður vik- ið að honum síðar. Hins vegar voru sum hinna hlutverkanna Þórunn Magnúsdóttir og Arnar Jónsson í Rómeó og Júlíu. sig hafa það að sýna sig í hlut verkum þeirra Rómeós og Fal- staffs á einu og sama kvöldi og mundu ekki allir leikarar hætta sér út á svo hála braut. Það er fyrst og fremst skýr og hljóm mikil framsögn þessa unga manns sem athygli vekur. Hefur hann þegar náð undraverðu valdi á rödd sinni. Hreyfingar hans voru stundum ofurlítið tilgerðar legar í hlutverki Falstaffs. Það hlýtur að vera ótrúlega erfitt fyrir ungan og tágrannan mann að bregða sér í líki gamals og spikfeits æringja. Grunur minn er sá að þeir menn sem kunna að bera óverðskuldað lof á sýning- una í heild geri það fyrst og fremst með túlkun Arnars á Falstaff í huga. Hér er ótvírætt á ferðinni efni í góðan leikara ef hann gætir sín og lætur ekki ofmetnast af hæfileikum sínum áður en þeir fara að skila hon- um raunverulegum arði. ÍVnnur leikmeðferð var með við vaningslegri blæ. Þórunn Magnúsdóttir sýndi þó ýmsa snotra hluti í túlkun sinni á Júlíu, einkum þegar hún stendur á svölunum. Túlkun Oktavíu Stef ánsdóttur á Lady Macbeth mis tókst með öllu, henni tókst hvergi að birta hina geysilegu grimmd eða ofsa frúarinnar Er- lendur Svavarsson lék Hinrik prins með auðljósum byrjanda- blæ og framsögn hans var ekki nægilega festuleg, svipaða sögu er og að segja um Magnús Ólafs- son í hlutverki Ponsa. Önnur hlut Erlendur Svavarsson og Magnús Ólafsson sem Hinrik prins og Po verk eru smærri og gefa ekki til- efni til sérstakrar umsagnar. Leikhús æskunnar er merkileg tilraun til þess að gefa ungu fólki kost á því að kynnast leikhús- störfum. Og þeim er vitanlega heimilt að reisa sér hurðarás um öxl í glímu sinni við leikar- ann í sjálfu sér. En þegar æsku- fólk efnir til opinberra sýninga verður að gera þá kröfu til for- ráðamanna þeirra að þeir kunni að velja verkefni sem unglingarn ir hafa einhver skilyrði til að; ráða við. Njörður P. Njarðvik.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.