Vísir - 06.03.1963, Síða 3
VÍSIR . Miðvikudagur f“>. marz 1963.
Það má með sanni segja að
marz er mikill árshátíðarmánuð
ur. í dag birtum við hér í Mynd
sjánni nokkrar myndir frá árs-
hátíð Læknafélags Reykjavíkur
sem haldin var að Hótel Borg á
laugardagskvöldið. Þar voru
samankomnir 70—80 læknar
borgarinnar ásamt frúm sínum,
Auk þess voru þar komnir
nokkrir bandarískir læknar sem
starfa á Keflavíkurflugvelli hjá
varnarliðinu og islenzkir lækn-
ar höfðu boðið til hófsins.
>f
Arinbjöm Kolbeinsson form.
Læknafélagsins hélt setningar-
ræðuna, Ómar Ragnarsson
flutti gamanþátt, sem fjallaði
m. a. um ýmsa lækna og siðar
um kvöldið sýndi dansfólk úr
skóla Hermanns Ragnars dans.
Var hóf þetta hið veglegasta
og fór mjög vel fram.
Við stjórnarborð Læknafélagsins. Frá vinstri: Haukur Kristjánsson yfirlæknir Slysavarðstofunnar, Snorri P. Snorrason ritari félagsins
Bjarni Konráðsson gjaldkeri og Arinbjörn Kolbeinsson formaður, á samt frúm sínum.
í HÓFI LÆKNA
Tveir Iæknar úr hópi hinna ýngri, þeir Guðjón Lárusson, t. v.
og Richard Thors, ásamt frúm sínum.
Árni Kristinsson læknir t. v. og yfirlæknarnir dr. Snorri Hallgrímsson og dr. Friðrik Einarsson
ásamt frúm sínum.
Heiðursfélagar Læknafélagslns og aldursforsetnr hófsins, þeir
Guðmundur Thoroddsen prófessor t. v. og Ólafur Þorsteinsson.
Ragnar Karlsson læknir og yfiriæknir varnarllðslns dr. Dick Jones.