Vísir - 06.03.1963, Blaðsíða 6
VISIR . Miðvikudagur 6. marz 1963.
Lífíátsdómar fyrír tilræðfö
við De GAULLE
Herdómstóll í Parfs hef-
ur dæmt til lífláts 6 menn fyrir
þátttöku í banatilræðinu við De
Gaulle forseta f ágúst s.l.
Líflátsdómurinn var kveðinn upp
að þíemur sakborningum fjarstödd-
um, vegna þess að ekki hefur tek-
izt að hafa hendur í hári þeirra,
en hinir voru leiddir í réttarsal og
þeir látnir vera viðstaddir dóms-
uppkvaðninguna.
Dóminum verður ekki áfrýjað,
en það er á valdi De Gaulle for-
seta að breyta honum.
Átta menn aðrir voru dæmdir,
einnig fyrir þátttöku f samsærinu,
og fengu frá þriggja ára fangelsi
upp í ævilanga fangaþrælkun.
Gerlar fínnast i
65,000 /. hæð
Sú kenning hefur nú verið gerð
að engu, að ekkert líf þrífist í
gufuhjúpnum umhverfis jörðina,
þegar komið er í vissa hæð frá
jörðu.
Það hefir nú komið f ljós, að
gerlar hafa fundizt í allt að 65
þúsund feta hæð frá jörðu, og þar
efra virðist eins konar ský milli 45
og 65 þúsund feta hæðar, Þar sem
gerlar þrffast. Þetta kom fram,
þegar geimrannsóknarráð Banda-
rfkjanna sendi upp loftbelg með
það fyrir augum að ná sýnishorni
af lofti í mikilli hæð. 1 loftsýnis-
hornum þeim, sem náðust með
þessum hætti, voru hvorki meira
né minna en 20.000 — tuttugu
þúsund — gerlar, einkum gulir
og rauðgulir, auk sveppa af ýmsu
tagi. Hefir þetta allt borizt frá
jörðu með vindum, en það kom
vísindamönnum á óvart, hversu
fjölskrúðugt það sýnishornasafn
var, sem þeir fengu við rannsókn
ir þessar
Me and you, we swet and swet and swet.
Nat Russel skemmtir á Röðli
Skipið hér á mynd-
inni, enski togarinn
Somerset Maug-
ham frá Hull, vann
„siIfurþorskinn“
svonefnda að þessu
sinni — það er að
segja, hann flutti
mestan afla að
landi af öllum
brezkum togurum.
Ársafllnn nam 2925
lestum. Vitanlega
var rlthöfundurinn
Somerset Maugham
manna fyrstur til
að senda skipstjór-
anum á nafna sín-
um heillaskeyti
vegna afreksins.
Næsta mánuðinn mun negra-
söngvarinn Nat Russel syngja
fyrir gesti veitingahússins Röð-
uls. Hann söng í fyrsta skipti
sl. sunnudag og hlaut fádæma
góðar undirtektir. Við brugð-
um okkur því á Röðul daginn
eftir til þess að fá að heyra í
honum, og hittum við hann fyr
ir þar sem hann var að syngja
„Down by the river side“ með
heilum kór af hrifnum áheyr-
endum. Söngur hans var svo
smitandi að fólkið gat ekki
stillt sig um að syngja með.
Hann söng nokkur Iög í viðbót,
svo sem „Old man river“ og
„Little bitty tear“ og ætlaði allt
um koll að keyra í fagnaðar-
Iátum. Hljómsveit Eyþórs
combo átti líka sinn þátt í að
skapa góða stemningu, með sfn
um Ifflega og skemmtilega leik.
Nat Russel er búinn að vera
í „show buisness'* í ein 30 ár.
Og hófst ferill hans þegar hann
var 7 ára gamall, en fór þó
hægt í fyrstu og gekk þá á
ýmsu, meðal annars var hann f>
við að syngja milli boxkeppna,
og var vinur hans Joey Evans
þá með honum. Russel er bú-
settur í Danmörku, og giftur
danskri konu, eiga þau eina
dóttur. Hann hefur oft skemmt
í einkasamkvæmum Margrétar
prinsessu og eru þau góðir vin-
ir. Russel er fleira til Iista lagt
en að syngja, og hefur hann
meðal annars samið bæði kvik
myndasögur og lög, t.d. „Hello
Mr. Twist“, sem varð mjög vin
sælt hér á landi. Okkur tókst
að ná tali af honum, og spurð-
um hvemig honum litist á að
skemmta hérna á íslandi. —
Vel svaraði hann, annars hefði
ég varla verið að koma aftur.
Ruseel var hérna einnig í júlf
1959 og skemmti þá á sama
stað. Hvernig líkar þér við
hljómsveitina? Mér líkar mjög
vel við þá, þeir eru mjög góðir,
bæði duglegir og gott að vinna
með þeim, og svo er fólkið dá-
samlegt. Þegar tekið er undir
með söngvara, og hann finnur
að fólkinu Ifkar vel við hann,
þá gengur helmingi betur en
ella, og þá er hreinn unaður að
syngja.
Hvernig líkar þér svo annað
hérna á íslandi, maturinn t.d.?
Mér finnst háw góðyr, hann
er að ýmsu leyti svipaður
danska matnum, og honum er
ég vanur. Annars finnst mér
alveg sérstaklega góður þessi
réttur sem þið kallið svið, og ég
gæti jafnvel átt á hættu að
gleyma megrunarkúrnum, ef ég
kæmist í svoleiðis góðgæti. Við
erum búnir að tefja nógu lengi
að okkur finnst, og förum því
að rölta heim á leið. Og þegar
við förum út úr dyrunum heyr-
um við hann raula með sinni,
örlítið hásu og sérkennilegu
röddu, „he keeps on rolling al-
ong“, rödd sem áreiðanlega
mun draga marga að Röðli
næstu daga.
Ókeypis rannsókn á
grasmaðkaplágunni
Búnaðarþing hefir gert eftirfar-
andi ályktun um áburðardreifingu
á heimabeitilönd í grasmaðksárum:
Búnaðarþing felur stjórn Bún-
aðarfélags Islands að hlutast til
um að Sandgræðsla ríkisins veiti
bændum aukna aðstoð með meiri
áburðardreifingu á heimabeitilönd
í grasmaðksárum. Aðstoð sú, sem
veitt verður, sé gerð í samráði við
skordýrafræðing Atvinnudeildar
Háskólans og að fyrirfram gerðri
athugun hans.
Jarðræktarnefnd þingsins hafði
haft mál þetta til meðferðar og
kynnt sér það eftir föngum og
fékk á sinn fund Geir Gígja skor-
dýrafræðing og Pál Sveinsson
sandgræðslustjóra.
Eftir viðtal við þessa menn lít-
ur nefndin svo á, að heppilegust
lausn málsins sé sú, sem ályktunin
felur í sér, þ.e samvinna skordýra
fræðings, sem með rannsóknum
getur með mjög miklum líkum
sagt fyrir um það, hvenær maðks
er að vænta, og sandgræðslustjóra
sem hefur yfir nokkru fjármagni
að ráða til áburðardreifingar úr
lofti á beitilönd. Á síðasta vori
dreifði Sandgræðslan allmiklu af
áburði í þessu skyni og lögðu þá
heimamenn, þar sem dreift var,
fram 50% kostnaðar. Bændur á
grasmaðkssvæðum ættu þvi með
þessu máli að fá ókeypis rann-
sókn á maðkaplágunni og 50% af
kostnaði við áburðardreifinguna.
JMMMWWWVAW.V/.VAÍ/WWWW.V.VAVW.V.VAW.V.W.’.V.W.V.V.
Djwhuus segir Færeyinga
staðráðna með 12 mílar
Hákon Djurhuus lögmaður
Færeyinga dvaldist nokkra daga
í Bretlandi eftir að samninga-
viiðræSumar við Breta um 12
mílna fiskveiðilögsögu við Fær-
eyjar fór út um þúfur. Síðan
fór Djurhuus til Grimsby, þar
sem hann steig um borð í fær-
eyskan togara og sigldi heim.
Brezka fiskveiðitímaritið
Fishing News, náði tali af
Djurhuus, þegar hann fór um
borð I skipið. Kemur I ljós i
því samtali, að Færeyingar eru
staðráðnir f að taka sér 12
mílna landhelgi.
Hákon segir m. a .í samtalinu:
„Land mitt er ákveðið í 12
mflna málinu. Við skiljum ekki
hvers vegna þarf að deila um
það, þar sem Island og Noregur
hefur fengið 12 mflna landhelgi.
Viðræðurnar í London hafa ver-
ið vinsamlegar. Allir f Færeyj-
um eiga afkomu sína undir fisk-
veðum. Ef við tökum 12 mílna
landhelgi get ég lofað því að
okkar eigin togarar munu virða
hana. Við munum aðeins nota
lfnuveiðara innan hennar eins
og við gerum nú. Ég er viss um
að það verður hægt að leysa
þetta á vinsamlegan hátt.
Hákon Djurhuus fékk klefa
skipstjórans á togaranum í ferð
inni til Færeyja. Hann ákvað
að fara með togara, af þvf að
þannig kæmist hann fljótar til
Færeyja en með þvf að sigla
til Kaupmannahafnar og bíða
eftir áætlunarferð til Þórshafn-
ar.
I tilefni af yfirlýsingu Hákon
ar gaf Dennis Welch foringi
yfirmanna á Grimsby-togurum
út aðra yfirlýsingu, þar sem
hann lýsti þvf yfir að brezkir
togaramenn myndu eftir sem áð
ur berjast með hnúum og hnef-
um gegn 12 mflna fiskveiðiland
helgi við Færeyjar. Við getum
aðeins ítrekað fyrri yfirlýsingar
um að afleiðingin af 12 mflna
Iandhelgi við Færeyjar getur
oröið löndunarbann á færeysk
skip í brezkum höfnum.
VAVAV.VV.V.V.V.V.V.V.V.,.,.V.,.V.,.V.V1.,.*.V.,.,.,.V.V.V.V.V.V.V.V.,.V.V.V.V.,.V.