Vísir - 06.03.1963, Page 16
i aw
Miðvikudagur 6. riiarz 1963.
MfrrVi rifnaði-
Aívopnun mesta vanáfflnálmmnkyns
Ræðuna fluttj hann á fundi Efna-
hagsmálafélagsins í New York (Ec-
onomic Club of New York).
— Það er augljós staðreynd,
sagði hann, að við allir, Banda-
ríkjamenn, Rússar, Burmamenn —
erum í hættu, og ef við látum okk-
ur skiljast í hverju hættan er fólg-
in, er von um, að við getum í sam-
einingu afstýrt henni.
Meistaraflokks-
. keppni í bridge
Nýlega er lokið keppni Bridge-
félags Akureyrar f meistaraflokki
og varð sveit Mikaels Jónssonar
Akureyranneistari að þessu sinni.
Hlaut hún 39 stig.
önnur í röðinni varð sveit Bald-
vins Ólafssonar með 30 stig, 3.
sveit Ragnars Steinbergssonar 27
stig og 4. sveit Halldórs Helgason-
ar með 24 stig. Alls tóku 8 sveitir
þátt í mótinu.
U Thant kvaðst vilja ræða þetta
mál, nauðsyn afvopnunar — ekki
sem framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, ekki sem Asíumaður, og
ekki sem Burmamaður — heldur
sem mannleg vera, sem einn af
mannkyninu, vegna þess að fram-
haldstilvera þess væri í hættu.
Hann sagði, að gera yrði nýja
tilraun til þess að ná samkomulagi
um bann ^ið tilraunum með kjarn-
orkuvopn.
Bæjarsi-jóri vinstri-
manna á Seyðisfirði
Tekizt hefur nú samkomulag
milli vinstri flokkanna á Seyðis-
firði að styðja einn bæjarstjóra í
kaupstaðnum, en Seyðisfjörður hef
ur verið að heita bæjarstjóralaus
slðan kosningarnar fóru fram I
fyrravor. Það verður nú úr, að
Þórður Ingólfsson, sem verið hefur
forstjóri Hraðfrystistöðvarinnar í
Vestmannaeyjum, tekur að sér
stöðu bæjarstjóra, en hann er Seyð
firðingur að ætt.
Þórður mun hafa tryggt fylgi
eins framsóknarmanns, annars af
tveimur fulltrúum Alþýðuflokksins
(Gunnþór Björnsson), tveggja
vinstri manna og eins kommúnista.
Þá hefur einn fulltrúi til viðbótar
heitið hlutleysi.
Með þessari ákvörðun tekst að
koma í veg fyrir að nýjar bæjar-
stjórnarkosningar verði haldnar á
Seyðisfirði.
Sigurður
Berndsen
íútinn
Sigurður Bemdsen lézt í gær-
morgun að heimili sínu, Flókagötu
57 hér I borg. '
Sigurður var rúhilega 73 ára
gamall. Hann hafði stundað ‘Verzl-
un á Blönduósi og í Bolungarvík
og' um langt skeið stundað fésýslu
í Reykjavík.
Baldur Oskarsson
U Thant framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna
flutti ræðu í New York í
gærkvöldi.
Hann lýsti afvopnun sem mesta
vandamáli mannkyns og hvatti ein-
dregið til samkomulags um bann
við tilraunum með kjarnorkuvopn.
■®—1----------.--------------
Blaðamannaskáldsaga
eftir Baldur Oskarsson
Baldur Óskarsson blaðamaður
við Tímann hefur nýlega sent frá
sér aðra bók slna, er það skáldsaga
og heitir Dagblað. Eins og nafnið
bendir til, fjallar sagan um heim
blaðamannsins. Islenzk skáldsaga
sætir tíðindum um þessar mundir,
því sáralítið framboð hefur verið
á íslenzkum skáldsagnahandritum
að undanförnu. Baldur hefur áður
sent frá sér smásagnasafnið Hita-
bylgja, sem út kom 1960. Skáld-
sagan pagblað er 125 bls. að
stærð, útgefandi er Fróði, en bók-
in er prentuð I Prentsmiðju Jóns
Helgasonar.
Bóluefni þroiió
á Akureyri
Bóluefni er þrotið sem stendur
á Akureyri og bæði skólanemend-
ur og starfshópar fyrirtækja bíða
með óþreyju eftir að verða bólu-
settir.
Áhugi fyrir bólusetningu hefur
enn aukizt við það að inflúenzan
hefur byrjað að gera vart við sig
meðal nemenda menntaskólans.
Ann^rs er hún væg I þeim fáu
tilfellum, sem hennar hefur orðið
vart, enda alveg á byrjunarstigi.
Búizt er við að bóluefni komi
norður á morgun eða föstudaginn
og að þá geti bólusetning hafizt
^ð nýju.
| Kærð fyrir
J óþrifnnð
| Borgarlæknisembættið hefúr
ritað yfirsakadómaranum I
Reykjavík og kært Rúgbrauðs-
'j gerðina fyrir óþrifnað í sam-
i bandi við framleiðsluna. Neyt-
* endasamtökin höfðu farið fram
\ á rannsókn borgarlæknis á á-
\ standinu f Rúgbrauðsgerðinni
!og varð niðurstaðan af þeirri
rannsókn sú, að borgarlæknir
kærði Rúgbrauðsgerðina.
Skipverjar á Víði II. að vinna við að taka hina rifnu nót í land upp á vörubíi. Er þetta ekki frægasta nót á íslandi? í hana veiddist 76!/2
tonn af þorski í einu kasti.
Víðir II., skipið sem kom
með metaflann að Iandi s.l.
sunnudag, var heldur óheppn-
ara I gær, svo illa hafði til tek-
izt að nótin hafði rifnað og út
um gatið hafði mestallur fisk-
urinn sloppið. Á sunnudaginn
hafði skipið komið að landi
með algeran metafla, eða 76,5
tonn, sem það hafði fengið I
þorskanót. I gær voru frétta-
menn frá Vísi staddir suður í
Sandgerði, um það leyti sem
Víðir var að koma að landi.
Nótin hafði rifnað og aflinn
var aðeins 3 tonn.
NÓTIN TEKIN Á BÍL.
Nú hugsaði skipstjórinn, Víð-
ir Sveinsson og skipverjar hans
mest um það að koma nótinni
hið allrá skjótasta í viðgerð,
svo að þeir gætu aftur komizt
út um morguninn. Tók ljós-
myndari Vísis myndina sem her
fylgir af skipsmönnunum, þeg-
ar þeir voru að taka nótina
upp á bíl. Kannski • er þetta
frægasta nót á íslandi, því að
hinn mikli afli á sunnudaginn
I hana hefur vakið feikilega
athygli.
Fréttamennirnir ræddu við
skipverjana, Þeir sögðu, að það
hefði vissulega verið ógleyman
leg sjón, þegar nótin kom upp,
full af spriklandi fiski. Slíkt
fiskmagn höfðu þeir ekki séð
áður I einni nót.
KOM EKKI TIL MATS
Skipstjórinn Víðir Sveinsson
var þarna að ræða við Guðjón
fiskmatsmann, þegar við kom-
um að. Hann sagði, að þegar
þeir fengu stóra kastið, hefðu
þeir ekki þurrkað nótina meira
en svo að hægt væri að háfa
fiskinn inn. Þorskurinn hefði
synt og spriklað I nótinni. Þá
höfðu þeir gætt þess, að blóðga
fiskinn strax og hann kom inn
á þilfarið.
— Og hvernig líkaði þér við
fiskinn .spurðum við Guðjón
fiskmatsmann?
— Þetta var allt fyrsta flokks
fiskur. Hann var svo góður að
hann kom ekki einu sinni til
, Framh. i ols. 5
Guðjón fiskmatsmaður og Víðir skipstj. ræðast við í brúnni á Víði II.