Vísir - 11.03.1963, Síða 1
visir
53. árg. — Mánudagur 11. marz 1963. — 57. tbl.
fíeygði sér út ár
bremmdi hási
Um hádegið i gær kviknaði i í-
búðarhúsinu númer 9 við Holts-
götu, þar varð mikill eldur, og
rnaður sem forðaði sér út um
glugga brákaðist á fæti við fall-
ið.
Holtsgata 9 er einlyft steinhús
með kjallara, timburklætt að inn-
an og með trégólfum. Á hæðinni
búa ungversk hjón og hafa þau
leigt ungum pilti eitt herbergi.
Þessi piltur hafði farið að heiman
rétt um kl. 12, en um það bil
stundarfjórðungi síðar urðu hjón-
in ,sem sátu inni í eldhúsinu, var
við það að reyk Iagði þangað inn
með hitavatnsröri.
Viðbrögð hjónanna voru þau, að
konan hljóp þegar út til að kom-
ast í síma og kalla á slökkvilið, en
bóndinn fór að athuga hvaðan
reykinn lagði og opnaði hurðina
að herbergi piltsins. í sömu svip-
an gaus svo mikill eldur og reyk-
ur á móti honum að hann hrökl-
aðist til baka án þess að geta
lokað hurðinni á eftir sér. Hann
hraðaði sér inn í eldhúsið, en eld-
tungurnar læstu sig á eftir hon-
um, en honum vannst heldur ekki
tími til að loka eldhússhurðinni á
eftir sér. Úr eldhúsinu komst
hann inn í svefnherbergi þeirra
hjóna, en þar var hann algerlega
innikróaður. Það eina sem hann
Framh. á bls. 5
LANDSHÖFN í NJARÐVÍKUM
Hinir dökku hlutar hafnargerðanna tveggja sýna fyrirhugaðar lengingar þeirra (annar verður vinkll-
beygður en hausinn á hinum myndar T) Það eru þessar framkvæmdir sem boðnar verða út á næstunni
• og munu kosta um 30 milljónir króna. Efst i króknum milli garðanna hafa sumir látlð sér koma tii
hugar að reist yrði sfldarverksmiðja siðar meir.
30 millj. krána framkvæmd boðin út
Ákveðnar hafa verið
stórframkvæmdir við
Landshöfnina í Njarð-
vík og hef jast þær í sum
ar. Boðið verður úr 30
milljón króna verk
næstu daga. Vitamála-
stjórnin hefir samið út-
boðslýsinguna og er hún
nú tilbúin. Hafizt verð-
ur handa um þessar
framkvæmdir sem fyrst
og unnið fyrir a. m. k.
8—10 milljónir í sumar,
en síðan verðut haldið
áfram unz 30 milljón
króna áfanganum er lok
ið.
í þessum áfanga er ætlunin
að lengja hafnargarðana tvo,
sem fyrir eru í Njarðvík, og
verður annar þeirra vinkil-
beygður að framan, eins og sézt
á meðfyigjandi teikningu, en
endinn á hinum myndar T.
Báðir þessir garðar verða til
skjóls og jafnframt fyrir af-
greiðslu fiskiskipaflotans. Þess-
ar framkvæmdiir eru hugsaðar
með það fyrir augum að .þarna
sé hægt að taka á móti, af-
greiða og veita skjól fiskiskipa-
flotanum í Njarðvík og Kefla-
vík, en þungaflutningar og af-
greiðsla stærri skipa á að fara
fram um höfnina f Keflavík
enda er þar meira aðdýpi. Síð-
ar munu framkvæmdir við
landshöfnina í Keflavík fylgja
í kjölfarið, en hafnirnar í
Njarðvík og Keflavík heyra báð
ar undir eina stjóm, lands-
Alfreð Gíslason alþingismaður
og bæjarfógeti í Keflavík.
að bygging landshafnarinnar
væri eigi aðeins hið brýnasta
hagsmunamál fyrir Njarðvík
og Keflavíkurkaupstað heidur
og að sínum dómi fýrir útveg-
inn og landið í heild jafnþýð-
ingarmikla höfn og hér væri
um að ræða. Fjárskortur hefði
valdið þvf hve framkvæmdir
hefðu dregizt öllum til tjóns,
en nú ætti að gera stórátak í
þessu stórmáli og væri það
ekki sfzt að þakka forsætisráð-
herra og hafnarmálaráðherra
og öllum mikið gleðiefni, sem
að þessum málum hefðu unn-
ið. Alfreð kvað það vera aug-
ljó$t mál að þær framkvæmdir,
sem nú hefðu verið ákveðnar f
Njarðvíkurhöfn, hefðu úrslita-
þýðingu fyrir öryggi og af-
greiðslu fiskiskipa og þangað
myndi fiskiskipaflotinn leita að
svo miklu leyti sem hann hefði
ekki athafnapláss í Keflavíkur-
höfn á hverjum tíma vegna af-
greiðslu stærri skipa þar.
Allmikils ágreinings gætti
lengi milli Keflvíkinga og Njarð
víkinga um uppbyggingu
Landshafnarlnnar og voru Kefl-
víkingar ófúsir á að fiytja upp-
sátur sitt til Njarðvíkur. En nú
rtíega þessi sveitarfélög heita
sambyggð og f jarlægðir að
engu orðnar með aukinni tækni.
í septembermánuði sl. var
fyrir forgöngu landshafnar-
stjómarinnar haldinn fundur
með hreppsnefnd Njarðvíkur-
hrepps, bæjarstjórn Keflavfkur
og landshafnarstjórn, og á
þessum fundi sameinuðust allir
þessir aðilar um ákveðnar kröf-
ur til vitamálastjórnarinnar og
rfkisstjómarinnar um hafnar-
framkvæmdir í Keflavík og
Njarðvík. Þar náðist í fyrsta
sinn fullkomin eining um fyrir-
hugaðar framkvæmdir, það er
að segja framkvæmdir sam-
kvæmt áætlun, sem landshafn-
arstjórn hafði gert 1959, og
nema allar þær framkvæmdir
um 50 milljónum króna sam-
kvæmt kostnaðaráætlun, sem
yfirstjóm hafnarmála hefir gert.
Samkvæmt þessari áætlun skal
leysa eftirtalin atriði: Hægt
verði að afgreiða f höfninni 3
flutningaskip samtímis við góð
skilyrði og að auki 25 fiski-
báta allt áð 150 lesta stóra.
Ennfremur verði séð fyrir ör-
uggu leguplássi innan hafnar-
arinnar fyrir allt að 150 fiski-
báta 75—150 Iestir að stærð.
Fulltrúar frá sveitarstjórnum
Keflavfkur og Njarðvfkur og
landshafnarstjórn áttu fund rétt
fyrir áramót með Ólafi Thors
forsætisráðherra og Emil Jóns-
syni hafnarmálaráðherra og var
þar ákveðið að f ár skyldi unn-
ið, samkvæmt fyrrgreindu
samkomulagi, fyrir 8—10 mill-
jónir króna, vitamálastjóra fal-
ið að gera útboðslýsingu á
verkinu og bjóða það sfðan út,
sem verður gert á næstunni.
Landshöfnin í Keflavfk er nú
önnur stærsta útflutningshöfn
landsins, um Keflavíkurhöfn
voru flutt 12—14% allra út-
fluttra sjávarafurða tvö sfðustu
árin og hin sömu ár var landað
9% af heildarsíldarafla lands-
manna um hafnarmannvirkin f
Keflavík.
hafnarstjórnina þar, og munu
hafnarmannvirkin ná saman er
tímar líða.
Sú hugmynd hefir skotið upp
kollinum að síðar meir verði
byggð síldarverksmiðja milli
hafnargarðanna f Njarðvík, sem
nú á að fara að lengja, og gætu
síldarskip þá lagt aflann beint
upp í þrær hennar, en verk-
smiðjan þessi hefir þó ekki
verið ákveðin ennþá.
Þessarra upplýsinga hefir
blaðið aflað hjá Alfreð Gísla-
syni alþingismanni og bæjar-
fógeta f Keflavík, sem hefir átt
sæti í landshafnarstjórninni
síðan 1947 og er manna kunn-
ugastur því máli. Hann sagði
Hæsta áthlutm Hásnæðis-
málastjórmr fyrir dyrum
Vísir hefur fregnað að fyrir
dyrum standi mesta Iánaúthlut-
un Húsnæðismálastjórnar hing-
að tii. Hafa staðið yfir samn-
ingar milli Húsnæðismálastjórn
arinnar og lánastofnana um að
Húsnæðismálastjómin fái 80
millj. vegna þessarrar úthlutun-
ar. Til samanburðar má geta
þess að útlán Húsnæðismála-
stjórnarinnar hafa hingað tii
numið hæst um og yfir 80 millj.
á ári, f tveimur úthlutunum, en
sú úthlutun, sem nú stendur
yfir er aðcins sú fyrri af tveim-
ur, sem ráðgerðar eru ó þessu
ári. Má því búast við að útlán
Húsnæðismálastjómar verði á
þessu ári melri en nokkru sinni
fyrr.
Að undanfömu hafa bprizt all
margar umsóknir til Hnsnæðis-
málastjórnarinnar, bæði nýjar-
umsóknir og endurnýjanir á um
sóknunum. Mun verða leltazt
við að verða við b^iðnum sem
allra flestra, þótt ekki sé búizt
við að hægt verði að uppfylla
allar óskir í þessarri úthlutun.