Vísir - 12.03.1963, Side 8
8
V1SI R . Þriðjudagur 12. marz 1963
vtsm
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR,
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinsson.
Fréttastjðri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur 6 mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint/— Sími 11660 (5 iinur).
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Lækkun byggingakostnaðar
Ummæli Gísla Halldórssonar arkitekts um það að
mögulegt væri að lækka byggingarkostnað hér á landi
um 20% munu vekja mikla athygli. Vísir skýrði frá
þeim í gær, en Gísli flutti merkt erindi um þetta efni
á húsnæðismálaráðstefnu S. U. S. nú um helgina.
Vísir hefir oft bent á það áður að einna raunhæf-
asta kjarabótin hér á landi væri sú að lækka bygging-
arkostnaðinn. Landið er raunverulega í nýju námi,
híbýli þjóðarinnar eru nú að rísa á ný, eftir að flutt
hefir verið úr moldarkofunum og bárujárnshúsum
aldamótanna. En allt fram að þessu hefir bygginga-
kostnaður verið allt of hár. Orsökin er margþætt. Fátt
byggingarefnis er til í landinu sjálfu, svo kaupa þarf
það og flytja erlendis frá með ærnum kostnaði, fjár-
magn hefir verið af skornum skammti til bygginga og
þær því dregizt óhóflega á langinn. Og íslenzkir bygg-
ingarmenn hafa ekki ávallt sinnt því sem skyldi að
byggja af fyllstu hagsýni og sparnaði. Meira hefir oft
verið lagt í munaðinn, reyndar oftast eftir óskum hús-
eigandans.
Notkun nýrrar byggingartækni er hér eitt veiga-
mesta atriðið. En þar höfum við verið um margt held-
ur seinir á okkur. Skriðmótin voru reynd fyrir nokkr-
um árum en þau reyndust mjög misjafnlega og sparn-
aður af notkun þeirra var harla lítill. Og þess voru
nokkur dæmi að háhýsi voru steypt upp á hálfum
mánuði, en sökum skipulagsskorts húsameistaranna
hefir það tekið fimm ár að ljúka þeim! Byggingarkran-
amir em önnur nýjung, sem fyrst er nú að sjást hér.
Vísir hefir skýrt ýtarlega frá þeirri skömmu reynslu
sem er fengin af þeim hér, en hún iofar góðu. En áfram
þarf að halda og margar fleiri nýjungar að innleiða.
Steypuplötuhúsin, eða verksmiðjubyggðu húsin, er
önnur nýjung sem vafalaust á eftir að gefa góða raun,
en til þess þarf markaðurinn enn að stækka allvera-
lega.
Uppmælingarkerfi vissra stétta iðnaðarmanna veld-
ur einnig óeðlilegri hækkun byggingarkostnaðar, og
sökum hörguls á vinnuafli í þessum stéttum hafa
nokkur ódæmi þar ef til vill skaðað orðstír þessara
stéttk sem góðra iðnaðarmanna.
Fjármagnsatriðið er hér ekki síður mikilvægt. Lána-
hörgullinn hefir valdið því að mörg hús em 2—3 ár í
byggingu. Núverandi ríkisstjórn hefir stigið stórt spor
í því efni að efla sjóði Húsnæðismálastjórnar og innan
skamms mun uppskera þeirrar stefnu verða heyrum
kunn. En hér þarf samstillt átak fleiri bankastofnana,
og verður það síðar betur rætt hér á þessum stað.
Hér birtist síðari greinin um þau mörgu
milljónafyrirtæki, sem reykvískir kom-
múnistar hafa komið upp á seinustu
árum. í ræðu og riti þykjast þeir vera öreigar, en
sannleikurinn er sá, að þeir ráða yfir geysimiklu
fjármagni og fjársterkum fyrirtækjum, sem þeir
nota óspart í áróðursstarfsemi sinni. Hér eru það
staðreyndirnar, sem tala um hina nýju íslenzku
milljónamæringa, félaga Sósíalistafélags Reykja-
víkur. En einni spurningu er þó enn ósvarað: Hvað-
an kemur þeim allt þetta fé?
Vegamót h.f.
Stóreignafyrirtækið Vegamót
var stofnað 1953. Hlutafé þess
var fyrst í stað „aðeins" mill-
jón krónur, en brátt ukust það
umsvif fyrirtækisins, að auka
varð hlutaféð til þriggja mill-
jóna króna, og mun þó hafa
dugað skammt. Fyrirtækið á og
rekur hina risastóru eign nr. 18
við Laugaveg og hafa þar að-
setur ýmis fyrirtæki flokksins,
sem ekki voru þegar fyrir I eig-
in húsnæði. Á götuhæð hefur
Mál og menning bókaverzlun og
ennfremur Borgarfell h.f. sem
rekur þar mikla verzlun með
skrifstofuvélar o. fl. frá Austur-
Evrópu. 1 húsi þessu er einnig
svokölluð Verzlunarskrifstofa
Austur-þýzka alþýðulýðveldis-
ins. Þar eru skrifstofur Borgar-
fells h.f. og Mímis h.f. og
Heimskringlu h.f. og Máls og
menningar. Þar hefur einnig
lögfræðistofu sína Ragnar Ól-
ur kostað offjár, efalaust
nokkra tugi milljóna og væri
fróðlegt að vita, hvaðan allar
þær milljónir hafa komið.
Stjóm eignarinnar hefur með
höndum samyalinn hópur
kommúnista: Kfistinn E. And-
résson, Guðmundur Hjartar-
son, nefndarmaður, Sigurður
Thoroddsen, verkfræðingur,
Sigvaldi Thordarson, arkitekt,
og Ragnar Ólafsson, hrl.
Tjarnargata
20
(MinningarsjóSur Sigfúsar
Sigurhjartarsonar).
Húseign svonefnds Minning-
arsjóðs Sigfúsar Sigurhjartar-
sonar við Tjarnargötu 20 er
eins konar helgur dómur ís-
lenzkra kommúnista. Þar er að-
setur Sósialistafélags Reykja-
Kristinn Andrésson, menningar
postuli og Moskvuhraðboði
kommúnista, á sæti f flestum
milljónafyrirtækjum kommún-
ista hér ( borg.
Kjartan Ólafsson, sem kjörinn
var á síðasta flokksþingi með
naumum meiri hluta fyrir at-
beina SÍAmanna og fleiri yngri
manna, sem undu illa því, sem
þeir kölluðu „óstjórn hinna
gömlu“.
Hafa ekki allir gert sér grein
fyrir því, að á síðasta flokks-
þingi kommúnista varð 1 raun-
inni bylting, þar sem mörgum
þeim, sem lengi höfðu setið í
miðstjórn flokksins var rutt til
hliðar af yngri mönnum og öll
valdahlutföll röskuðust. mjög,
þótt ekki væri þá gengið milli
bols og höfuðs á sjálfri foryst-
unni. Enda hyggja hinir sigruðu
á greypilegar hefndir við fyrsta
tækifæri.
Tjarnargata 20 var á sínum
kommúnista. Að vísu hefur
ÖRHCARNIR IRU
afsson, hrl. og Alþýðusamband-
ið hefur þar einhverja starf-
semi o. fl.
Bygging stórhýsis þessa hef-
víkur og Sósíalistaflokksins,
Æskulýðsfylkingarinnar, Kven-
félags sósialista og þar starfar
framkvæmdastjóri flokksins,
tíma keypt fyrir „söfnunarfé ís-
lenzkrar alþýðu“ í einhverri
frægustu fjársöfnun, sem fram
hefur farið á vegum íslenzkra
Hinn helgi dóniur islenzkra kommúnista er Tjarnargata 20. Húseignin er varlega áætluð 3 millj.
króna virði.