Vísir - 12.03.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 12.03.1963, Blaðsíða 16
ÞriSjudagur 12. marz 1963. Nokkrar skemmdir urðu á skúr- um, þegar eldur kom upp í suður- enda hússins að Smyrilsvegi 29 hér í bæ. Eldsins varð vart um kl. 9,34 1 morgun, og var slökkvi- liðið þá kvatt á vettvang. Stjórnarkreppu af- stýrt í Finnlandi 1 fréttum frá Helsinki i morgun segir, að hættan á stjórnarkreppu út af ágreiningnum um launakjör opinberra starfsmanna sé um garð gengin. Bæði Sænski þjóðflokkurinn og Finnski þjóðflokkurinn, sem taka þátt í samsteypustjórninni með Bændaflokknum, hafa samþykkt á fundum sínum að styðja tillög- ur stjórnarinnar um nýja tilhögun launamála. — íhaldsflokkurinn hefur einnig lýst sig fylgjandi til- lögunum, svo að þær eiga vísan meiri hluta á þingi. Hinum opinberu samningaum- leitunum milli fjármálaráðuneytis- ins og samninganefndar opinberra starfsmanna lauk árdegis í dag, án þess að samkomulag næðist. Samninganefnd hafði áður hafnað þeim kjörum, sem gert er ráð fyr- ir í tillögum stjórnarinnar, sem nú stendur til að binda í lögum. Var tekinn á 108 km hraða á Miklubraut í blaðinu í gær var skýrt frá því að bifreið með númerinu R-4121 hefði verið ekið með ofsalegum hraða eftir steypta veginum fyrir sunnan Hafnar- fjörð með þeim afleiðingum að hún fór í loftköstum út af veg- inum, marga metra í lofti og stafaði mikil hætta af þessum akstri. Blaðið hefur nú fregnað að einu eða tveimur kvöldum áður hafi umferðarlögreglan i Reykjavík tekið þennan sama bíl fyrir of hraðan akstur á Miklubrautinni. Var hraði hans mældur með skeiðklukku og reyndist vera 108 km á klst. Ökumaðurinn var unglingur og er sýnilegt að ungur maður sem er með slíkt ökuæði er stór- hættulegur umhverfi sínu. Er það undarlegt, að lögreglumenn skuli ekki i slíkum tilfellum beita rétti sínum til að svipta ökugikki réttindum um stund- arsakir. Umferðarlögreglan hefur að undanförnu unnið við að mæla hraða bifreiða víðsvegar í bæn- um og í síðustu viku voru 70— 80 bifreiðar teknar fyrir of hraðan akstur í bænum. Breyta mábandarísku sjónvarpstækjunum VorsíldveiBin hófst um þetta leyti ifyrra Á laugardaginn birti Vísir fregn um að kostnaðarsamt væri að breyta bandarískum sjónvarpstækjum, sem hér hafa verið seld, ef úr yrði að hið væntanlega íslenzka sjónvarp tæki upp evróska útsending- arkerfið. 1 viðtali við Vísi í morgun staðfesti Tæknidelld Ríkisútvarpsins að slíkar breyt- ingar væru bæði erfiðar og dýrar, ef sömu hljóm- og mynd- gæði ættu að nást. Hins vegar hefðu bandarískar sjónvarps- tækjaverksmiðjur unnið að því að undanförnu að gera tæki sin þannig úr garði að móttaka á báðum kerfunum yrði jafngóð. Vísir hefir vegna þessa haft samband við nokkur firmu, sem selja bandarísk sjónvarpstæki hér á Iandi. Eru það O. Johnsen & Kaaber, sem flytja inn Philco og Olympic tækin og Sveinn Egilsson, sem flytur inn Motorola tæki. Þá eru m. a. einnig á markaðnum General Electric tæki sem Electric flyt- ur inn. Fulltrúar O. Johnsen & Kaaber skýrðu blaðinu svo frá að ef Evrópukerfið verður tek- ið hér upp, sem nú eru allar lík- ur á, þá muni firmað breyta Philco og Olympictækjum sem það hefir þegar selt, kaupend- um algjörlega að kostnaðar- lausu. Hingað hefir nú verið flutt lítið og einfalt tæki, svo- kallaður „converter", sem setja má í bandarísku tækin, þessi og önnur, svo sem Motorala tæk- in, og geta þau þá tekið við evrópska kerfinu. Kostar tæki þetta um 500 krónur hingað komið. Benda fulltrúar sölufirma bandarísku tækjanna á að með þessu sé vandinn leystur, þann- ig að kaupendur bandarísku tækjanna hafi hér ekkert að óttast. Vísir átti, í morgun samtal við Sæmund Óskarsson raf- magnsverkfræðing, sem er með al fróðustu manna hér um sjón varpstæki, og spurði hann þvgrj ir möguleikar væru á því að breyta sjónvarpstækjum milli evrópska og ameríska kerfis- ins. Hann skýrði frá því að hann hefði breytt mörgum tækjum frá evrópska kerfinu yfir £ það amerfska og kostaði sú breyt ing um 1000 krónur. Hins vegar kvaðst hann ekki hafa breytt neinu tæki úr ameríska kerf- inu yfir í það evrópska, en kvaðst þó sjá, að það væri nokkuð meiri breyting en sú fyrri. Framh. á bls. 5 Nú er kominn sá tími — nærri miður marz — er vorsíld fór að veiðast í fyrra. Vísir hefur átt stutt viðtal við Sturlaug Böðtarsson útgerðar- mann á Akranesi, um vorsíldveiðina í fyrra og horfur nú. — Við byrjuðum að veiða vorgotssíld 15. marz í fyrra, sagði Sturlaugur, og var svo reytingur til 10. aprfl og eftir það mokveiði. Síldin veiddist fyrst á Selvogsbanka og á Hraunsvík, sem er rétt austan við Grindavík, og færðist' svo veit^n inn á Flóann og hélzt góð veiði framundir sumarsfldveið- ar. Einn af bátunum okkar, Höfr ungur II, sem er með síldarnót, fór fyrir nokkrum dögum aust- ur á miðin, en þá voru austan- stormar, svo að ekki var hægt að halda áfram, og sneri hann sér að þorskinum, en þorskveið- arnar hafa gengið ágætlega og fengizt 10—30 tonna afli á nóta bátana að undanförnu. Þessi góða þorskveiði mun liafa þau Framh. i ols. ö. I Slys morgun í morgun varð vinnuslys f Kassi.gerð Reykjavfkur við Klepps veg og var hinn slasaði fluttur f sjúkrahús að athugun Ioklnni f slysavarðstofunni. Það var rétt fyrir kl. 8 £ morg- un að rafvirki sem var við starf í Kassagerðinni, Bjarni Gfslason að nafni, hrapaði úr stiga og nið- ur á steinsteypt gólf. Hafði stiginn skrikað til og við það hrapaði Bjarni og skall á andlitið. Hann skarst allmikið á augabrún og handleggsbrotnaði auk þess. Bjarni var fluttur í Landakots- spítala eftir að bráðabirgðaathug- un hafði farið ffam á meiðslum hans í slysavarðstofunni. Að því er lögreglan tjáði Vfsi í morgun mun fallið úr stiganum hafa verið tæpir 3 metrar. Tæki frá Philco til að breyta sjónvarpstækjum úr Ameríkukerfi í Evrópukerfi. NÆR ÞRJÁTlU BlLAR ÚR UMFERÐ Á EINNINÚTTU Lögreglan i Reykjavík gerði að- faranótt s.l. föstudags, ásamt nokkrum bifreiðaeftirlitsmönnum skyndiskoðun á bifreiðum, sem voru í umferð á götum borgar- innar. Alls voru á annað hundrað bif- reiðir stöðvaðar og með þeim ó- Heill selur í hákarlinum Um helgina var landað á Akra- nesi óvenjulegri veiði, heljamiklum hákarli, sem var svo ramflæktur í nctinu hjá m.b. Ólafi Magnús- syni, að bátverjar gátu innbyrt hann, en skepnan vóg að því er talið er á þriðja tonn. Það kemur stundum fyrir, sagði Sigurður Vigfússon, frétta- ritari-Vísis á Akranesi, í morgun, er blaðið átti tal við hann, að sjó- menn fá hákarl í netin, en vana- lega slíta þeir sig lausa,. og sjald- gæft að þeir innbyrði þá, enda erfitt um vik að fást við slíkt á litlum bátum. — Og hvað heldurðu að hafi komið innan úr hákarlinum, mað- ur, sagði Sigurður. Það var ,í fyrsta lagi f slöttungs selur, fullorðinn, f heilu lagi, 46 rauðmagar og talsvert af ýsu, karfa og þorski og eitthvað annað að auki. Hákarlinn er ógurlega feitur, sagði S. V. ennufremur, svona há- karlar voru áður kallaðir tunnu- hákarlar, þvf að úr þeim fékkst tunna af lifur. vænta árangri að bönnuð var notkun 20 bifreiða og skrásetning- armerki auk þess tekin af 7 öðr- um. Loks voru enn aðrir alvarlega áminntir og þeim sett ströng skil- yrði um að koma farartækjum sín- um f lag. Lögreglan hefur undanfarið haft einkum gamlar og úr sér gengnar bifreiðir undir smásjánni og iðulega tekið eina eða fleiri úr umferð í einu þegar þær hafa reynzt í ófullnægjandi ásigkomu- Iagi. En svona margar bifreiðir, eins og teknar voru úr umferð að- faranótt föstudagsins, hefur hún ekki tekið í einu áður. Þetta er virðingarverð viðleitni hjá lögreglunni til að vekja bif- reiðaeigendur til umhugsunar um að hafa farartæki sín í fullkomnu lagi, auk þess sem það dregur stórlega úr slysahættu, og á því virðist engin vanþörf vera. RaBa ilaunaflokka Samninganefndir ríkisstjórnar- innar og BSRB vinna stöðugt að niðurröðnn opinberra starfsmanna í launaflokka. Fundur hófst um miðjan dag í gær og stóð fram á nótt. Annar fundur hefur vérið boðaður í dag kl. 14.30. Verður haldið áfram niðurröðuninni. Þrfr dagar eru þangað til að málið fer fyrir Kjaradóm, ef samninganefnd- unum verður ekki gefin frestur til að starfa áfram.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.