Vísir - 27.03.1963, Page 2

Vísir - 27.03.1963, Page 2
2 V í SIR . Miðvikudagur 27. marz 1963. HKll w//ámw//<2mzz////sí <■*>% ~""~S1CFT */'///// W///////m2Z///á. U TTp /slandsmet á sundmófi BR í Hrafnhildur Guðmundsdóttir úr ÍR bætti enn einu sinni eitt af metum sínum á sundmóti félags síns í Sundhöll Reykjavíkur í gærkvöldi. Hún synti 200 metra bringusund á 2.58,6 mín., sem er 6 sekúndubrot- um betra en gamla metið frá 1961. Sundsveit saman- sett af Guðmundi Gíslasyni, Sigurði Sigurðssyni og Þorsteini Ingólfssyni setti og met í 3x100 þrísundi karla, grein sem lítt er stunduð, bættu félagarnir metið um 7.0 sekúndur. Hrafnhildur og Guðmundur voru skærar stjörnur sem fyrr og vann Guðmundur til fjögurra fyrstu verðlauna en Hrafnhildur tveggja, unnu bæði í öllum sínum greinum. Hrafnhildur var ekki svo fjarri meti Ágústu Þorsteinsdóttur í 50 metra skriðsundinu, en ungu stúlkurnar úr Ármanni sem syntu í þessu sundi vöktu mikla athygli og ættu að eiga bjarta framtíð í sundinu. Guðmundur vann 100 metra skriðsundið ekki með miklum yf- irburðum en var allan tímann ör- uggur gegn hinum vaxandi sund- mönnum, Davíð Valgarðssyni, Guðmundi Harðarsyni og Erling Georgssyni. Flugsundið var yfir- burðagrein Guðmundar að ekki sé talað um 100 metra baksundið þar sem hann varð hátt í heila laugar- lengd á undan næsta manni. Sigurður Sigurðsson frá Akra- nesi er nú aftur farinn 'að æfa sund og vann á þeim fítonskrafti, sem hann býr yfir og fékk allsæmi- legan tíma. Ungu mennirnir sem komu á eftir 'honum voru talsvert lakari, sá betri hefði ekki unnið Hrafnhildi Guðmundsdóttur, því hann synti á nákvæmlega sama tíma og gamla metið hennar var, en rúmum 5 mínútum slðar hafði hún slegið það met! Úrslit í gær voru þessi: 100 metra skriðsund karla: Guðmundur Gíslason, ÍR, 59.5 Davíð Valgarðsson, ÍBK, 1.01.6 Guðm. Þ. Harðarson, Æ, 1.01.7 Erling Georgsson, SH, 1.02.3. 100 metra bringusund telpna: Auður Guðjónsdóttir, ÍBK, 1.29.5 Matth. Guðmundsd., Á, 1.33.6 Sólveig Þorsteinsd., Á, ,1.34.0 Kolbrún Guðmundsd., ÍR, 1.34.2. 100 metra bringusund drcngja: Guðm. Grímsson, Á, 1.25.2 Gestur Jónsson, SH, 1.26.9 Hafsteinn Jónsson, SH, 1.27.4 Guðjón Indriðason, SH, 1.32.6 200 metra bringusund karla: Sigurður Sigurðsson, ÍR, 2.50.8 Erlingur Þ. Jóíianns., KR, 2.59.3 Trausti Sveinbjörnsson, SH, 3.11.6. 100 rnetr.a flugsund karla: Guðm. Gíslason, IR, 1.08.1 Davíð Valgarðsson, IBK, 1.16.5 Guðm. Þ. Harðarson, Æ, 1.21.2. 200 metra bringysund kvenna: Hrafnhildur Guðmundsdóttir, lR. 2.58.6 (Nýtt ISLANDSMET) Auður Guðjónsd., ÍBK, 3.12.9. 50 metra skriðsund drengja: Davíð Valgarðsson, ÍBK, 28.0 Trausti Júlíusson, Á, 30.2 Hilmar Karlsson, ÍBK, 30.7 Guðm. G. Jónsson, SH, 30.9. 100 metra baksund karla: Guðm. Gíslason, IR, 1.08.0. Árni Þorsteinsson, ÍR, 1.22.8 Guðberg Kristinsson, Æ, 1.27.2 50 metra skriðsund sveina: Þorsteinn Ingólfsson, Á, 31.4 Hjörtur Kristjánsson, Æ, 32.4 Hrafnhildur Guðmundsdóttir Kristján Antonsson, Æ, 34.5 Pétur Einarsson, SH, 35.7 50 metra skriðsund kvenna: Hrafnhildur Guðmundsd., ÍR, 29.7 Ásta Ágústsdóttir, SII, 34,5 Matthildur Guðmundsd., Á, 36.4 Hrafnhildur Kristjánsd., Á, 36.7. 3X100 metra þrísund karla: Sveit ÍR 3.28.6 Sveit KR 3.41.3 Drengjasveit Ármanns 4.05.5 Sveit Ægis 4.07.7 I gærmorgun lézt í einu af sjúkrahúsum Los Angeles hnefaleikarinn Davey Moore, 29 ára gamall, giftur maður og 5 barna faðir. Hann lézt eftir keppni um heimsmeistaratitilinn við Kúbumanninn Utriminio Sugar Ramos, átta árum yngri en hann sjálfur. „Þetta var bara ekki mín óskastund“, sagði Moore við blaða- mannahópinn, sem þyrptist inn í búningsherbergi hans að keppni lokinni. Og það var. svo sannarlega ekki hans óskastund. Eftir keppnina varð að bera hann frá hringnum í herbergið og hann kvartaði sáran yfir höfuðverk. Samt ræddi hann lítillega við blaðamenn, en bað þá að lokum að hafa sig afsakaðan. Stuttu síðar ágerðist höfuðverk- urinn stórlega, hann var lagður út af á borð og læknir sóttur og með- an Moore ræddi við lækninn leið hann út af meðvitundarlaus. Hann kom aldrei til meðvitundar aftur og eftir tvo og hálfan sólarhring var hann látinn. Keppni Moores og Ramos var mjög jöfn keppni þar til í 10. lotu að hann „gekk inn í“ mikið vinstri handarhögg kúbanska , „ j. jfwr pv\ t BmMHmIIpÖS •- liinH - Kúbumaðurinn hafði greitt höggið banvæna og bandaríski hnefaleikarinn Moore, liggur í móki milli kaðlanna. I gærmorgun Iézt hann af þessu og örðrum höggum, sem hann hefur orðið fyrir í 63 leikjum sínum. hnefaleikarns. Moore datt niður á hnén og tók talningu upp í 5 og nokkrúm sekúndum síðar hékk hann máttvana milli kaðlanna. Dómarinn sá þetta en hafðist ekki að, en umboðsmaður Moore stökk þá inn í hringinn, lagði handlegg- inn utan um Moore og kallaði upp að leiknum væri lokið. Moore hafði misst titilinn, sem hann , hafði unnið fyrir réttu ári, hann hafði unnið sér inn sem svarar 600.000 krónurn, og hlotið dauðleg sár fyrir. Læknar sögðu strax við athugun á föstudagskvöldið að Moore mundi ekki geta lifað þetta af og létu hafa eftir sér, að það væri betra eins og komið værir fyrir honum, svo mikið var heili hans skaddaður eftir keppnina og upp- skurður algjörlega útilokaður. Þannig lauk lífi kempunnar, sem hefur skráða 63 leiki í hnefaleik- um, og þar af 58' unna. Aðeins einu sinni áður hefur hann verið sleginn út, það var í Venezuela fyrir 2 árum síðan, þá var hann sleginn 8 sinnum 1 gólfið. Síðan vann hann 17 leiki í röð, síðast Finnan Olli Maki á rothöggi i 2. Iotu. , „Ég er mjög leiður yflr þessu atviki,“ sagði hinn ungi Kúbumað- ur eftir leikinn, en það sögðu þeir líka Emile Griffith og Sugar Ray Robinson eftir að þeir höfðu orð- ið mannsbanar 1 hringnum. Fylkis- stjóri Kaliforníu var aftur á móti meira en „mjög Ieiður". „Nú hef- ur þetta gengið of langt 1 mfnu fylki,“ sagði hann. Stendur til að íbúar Kaliforníu kjósi m. a. um hvort leyfa beri hnefaleika f Kali- forníu, er kosið verður 1964. Aðeins klukkutíma áður en keppninni milli Moores og Ramos lauk á svo hryllilegan hátt, tapaði hinn frægi hnefaleikari Emile Griffith titli sínum í weltervigt tii Luis Rodriguez, flóttamanns frá Kúbu. „Ég er steinhissa á úrslitunum," sagði Griffith, „ég vann allar 15 loturnar," sagði hann. Dómarar keppninnar voru ekki á sama máli. Yfirdómarinn taldi Rodriguez hafa unnið 9 lotur, og hinir dómararnir dæmdu hinum fyrrv^randi Kúbu- manni sigurinn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.