Vísir - 24.04.1963, Síða 5
V í S IR . Miðvikudagur 24. apríl 1963.
5
Líðan ökumanns-
ins betri í morgun
AkureyrÍEiguriifít enn meðvitundurluus
Eins og Vísir skýrði frá s. 1.
mánudag, slasaðist maður all-
mikið, er hann þá um morgun-
inn ók á hús á mótum Dalbraut
’ ar og Kleppsvegar.
Maðurinn sem slasaðist var
Skúli Norðdahl Magnússon flug
stjóri hjá Flugfélagi ísiands.
Við áreksturinn missti Skúli
meðvitund, en komst aftur til
meðvitundar eftir að hann
hafði verið fluttur í Landsspít-
alann. — Um meiðsli hans
er það að segja að hann er
handleggsbrotinn og hafði hlot
ið höfuðmeiðsli og loks hafði
hann hlotið heilahristing. Líður
honum orðið mun betur.
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarlögreglunni í gær,
og til að fyrirbyggja allan
misskilning í sambandi við
þennan árekstur á mánudaginn,
bendir ekkert til þess að Skúli
hafi verið ölvaður við stýrið og
er sá möguleiki talinn útilokað
ur. Hins vegar tjáði rannsóknar
lögreglan Vísi í gær að líð-
an Skúla væri enn ekki það
góð orðin að unnt hafi verið að
taka af honum skýrslu um það
sem skeð hafði.
Um líðan Gunnlaugs Bjarna-
Vorsðldveiðar —
Framhald -J bls. 1.
ungur 550.
í morgun snemma höfðu þess
ir bátar boðað komu sina til
Reykjavíkur með afla: Leifur'
Eiríksson 400, Stapafell 750, Sól
rún 1400, Akraborg 1400, Jón
á Stapa 600, Víðir SU 800, Haf-
rún 150, Skarðsvík 700, Hall-
dór Jónsson 400, Þráinn 200,
Ólafur Magnússon 1600, Snæ-
fell 350, Hannes Hafstein 1000,
Sigurður Bjarnason 1000, Mar-
grét 250, Haraldur 600.
I framhaldsfrétt frá Akranesi
var sagt, að 2 Akranesbátanna
er fengu síld í morgun hafi far
ið til Reykjavíkur og verði afl-
inn settur í togara. Síldin, sem
barst til Akraness í gær og í
dag, fer öll í vinnslu, en fyrir-
sjáanlegt er, að mestur hluti
þeirrar síldar sem landað verð
ur feT í bræðsju.
Þorskafli á Akranesi var í
fyrradag 140 tonn á 12 báta en
í gær 140 tonn á 14 báta.
Samkv. uppl. sem blaðið fékk
árdegis var í undirbúningi að
taka síld í einn togara til út-
flutnings, og var beðið útflutn-
ingsleyfis, er um þetta var
spurt. Ekkert leitarskip var úti
og er ekki fyrir hendi heildar-
yfirlit um aflann í nótt og morg
un, en hann gæti reynzt samtals
16-20 þús. tn.
Auk þeirra báta sem taldir
hafa verið, er blaðinu kunnugt
um þessa: Sigurpáll (sbr. sér-
frétt) með 1000 tn. Skarðvík
sem fór til Ólafsvíkur með
700 og Kópur með 1200 tn. en
hann fór til Keflavíkur.
sonar, sem slasaðist á sunnu-
dagskvöldið og liggur nú einn-
ig í Landsspítalanum, er þáð að
segja, samkv. upplýsingum spít-
alalæknis að hún er eftir at-
vikum góð.
Þá barst Vísi fregn um það
frá Akureyri í morgun að líðan
Kristdórs Vigfússonar, sem
varð fyrir líkamsárás drukkins
manns aðfaranótt sl. laugar-
dags væri óbreytt. Hann var
enn ekki kominn til meðvitund-
ar í morgun. Þó töldu læknar
sjúkrahússins á Akureyri að
þeir væru teknir að sjá breyt-
ingu á líðan hans ,sem benti í
þá átt að hann væri smám sam
an að vakna til meðvitundar á
nýjan Ieik.
Lokið er að mestu yfirheyrzl-
um yfir árásarmanninum og
eins yfir konunni, sem hann
réðist á. Hins vegar verður beð
ið eftir að breyting verði á
líðan Kristófers og á meðan
verður árásarmaðurinn hafður
í gæzluvarðhaldi.
Einsfaklingar —
Framhald af bls. 16.
ræsum og rennum. Einnig verða
lögð ræsi og vatnslagnir inn á
hverja lóð.
Allar áætlanir og teikningar
eru gerðar af verkfræðingunum
Hauki Péturssyni og Sigurhirti
Pálssyni.
Hér er óneitanlega um merka
nýjung að ræða þar sem gengið
er frá allri gatnagerð, ásamt
vatnsleiðslum og holræsum áður
en nokkrar byggingarfram-
kvæmdir hefjast. Og önnur ný-
lunda f þessu er — eins og áður
er tekið fram — að hér er það
ekki viðkomandi bæjar- eða
hreppsfélag sem að framkvæmd
unum stendur — heldur hlutað-
eigandi íbúar, sem ætla sér í
framtíðinni að eiga heima á
þessum skemmtilega stað.
Erlent f jármagn —
Framhald af bls. 16.
magns yfir þjóðina. Sé það höf-
uðglæpur.
Ar En þingtíðindin koma upp
um Eystein. Hann var sjálfur
skeleggasti talsmaður erlends
fjármagns á íslandi. Og ekki ein
ungis eftir „lánsleiðinni“ 1 þeim
orðum liggur að bein f járfesting,
eign, erlendra aðila á íslandi
komi fullvel til greina að hans
dómi.
■Ar Ljósara getur það ekki verið
hve formaður Framsóknarflokks
ins Icikur tveimur skjöldum í
umræðunum um erlent fjár-
magn. Þar situr falsið í hásæti.
Eitt er sagt í dag, annað á
morgun, allt eftir því hvernig
Eysteinn telur hentugast að
reyna að blekkja kjósendur
flokksins.
Sgimardagurinn—
Framhald af bls. 16.
stúlkur finna hjá sér köllun til
þess að stunda þar nám og taka
upp fóstrustarf.
Þörfin fyrir fleiri slíkar stofn-
' anir er mikil í vaxandi bæ og
hefir nýlega verið gerð grein fyrir
s því hér í blaðinu, að mikið átak
j er framundan:
Að verja 42 milljónum króna á
næstu fimm árum til nýrra heim-
ila handa börnunum og er hér um
að ræða framlag bæjarfélagsins og
verður Sumargjöf falið að annast
reksturinn.
Nú eru starfræktir 7 leikskólar
og 4 dagheimili og er ráðgert að
tvöfalda þessa tölu.
Sagt var frá því á fundinum, að
nýbyrjað væri á nýju barnaheimili
við Grænuhlíð og er ráðgert að
það taki til starfa á þessu ári. Það
dagheimili er utan 5 ára áætlun-
arinnar.
Dagheimilin, sem Sumargjöf
rekur, eru Hagaborg, Laufásborg,
Steinahlíð og Vesturborg.
Leikskólar: Austurborg, Baróns-
borg, Brákarborg, Drafnarborg,
Grænaborg, Hlíðaborg, Tjarnar-
borg.
Hátiðahöld dagsins.
Sérstök athygli lesenda blaðsins
er vakin á auglýsingu í blaðinu i
dag um hátíðahöld dagsins, skrúð-
göngur, úti- og inniskemmtanir.
(Aðgöngumiðar að þeim eru seldir
í Listamannaskálanum kl. 4—6 í
dag). í auglýsingunni er gerð
nákvæm grein fyrir öllum atriðum
hátiðahaldanna.
Sólskin 1963.
Jónas Jósteinsson sá um útgáf-
Una eins og í fyrra. Þetta er 34.
árg. Sumargjafar. Henni mun tek-
ib fegins hendi seip' ævinlega.
Dagur barnanna.
Sumargjöf gerði sumardaginn
fyrsta að sérstökum hátíðisdegi
barnanna og fjáröflunardegi til
starfsemi sinnar en á síðari árum
hefur hann fengið æ meira á sig
einkenni hátíðardags barnanna, en
minna borið á því að hann væri
fjáröflunardagur, og áherzla lögð
á þetta af Sumargjöf sjálfri, en
vel má enn minna á, að hún er á-
vallt verð alls stuðnings allra
góðra borgara og bæjarfélagsins.
Sumardagurinn fyrsti er ekki að
eins hátíðisdagur barnanna, hann
er hátíðisdagur — sérstæður og
þjóðlegur, — allra landsmanna.
Og vel fer á, að börnin séu í
fremstu röð, er þjóðin fagnar komu
sumars.
| -------------------
Hlauf höfuð-
| högg
í í fyrradag verð umferðarslys á
mótuin Espimels og Grenimels,
er árekstur varð milli bifreiðar og
skellinöðru.
Áreksturinn varð um kl. 1 e. h.
og var 15 ára piltur, Hannes Ragn-
arsson, Kaplaskjólsvegi 62, á
skellinöðrunni. Hann kastaðist i
götuna við áreksturinn, hlaut höf-
uðhögg og áverka á andlit. Hann
I var fluttur í slysavarðstofuna og
látinn dveljast þar fram eftir degi
j til athugunar og eins og jafnan er
I gert þegar um höfuðhögg ér að
ræða. Blaðinu er að öðru leyti
ekki kunnugt um líðan piltsins.
Við þökkum innilega þá vináttu og samúð, er okkur
var sýnd við andlát föður okkar,
JÓNS JÓNSSONAR,
Stóra-Skipholti.
Börn hins látna.
Verkfallsverðir og Iögregla við Kassagerðina í verkfallinu 1961.
Kassagerðin vann-
Framhald al bls. 1
ið fram með bifreiðum milli
verksmiðjustaða stefnanda
Kom til einhverra átaka í
þessu sambandi, og tókst
„verkfallsvörðunum" að hindra
flutninga að einhverju leyti.
Hinn 21. júnf s. á. fékk stefn-
andi sett á Iögbann við þessum
aðgerðum „verkfallsvarðanna",
og er mál þetta höfðað til stað-
festingar á því lögbanni, svo
og til greiðslu skaðabóta vegna
þesk -,tjóns, !-er stefnandi telur
' sig hafa ofðið fyrir vegna að-
gerðanna.
Stefanandi styður kröfu
sína þeim rökum, að þessar að-
gerðir „verkfallsvarðanna"
gegn sér hafi verið algjörlega
ólögmætar og refsiverðar.
Stefnandi hafi ekki verið aðili
að verkfalli því, er félag stefnda
hafi verið í, og þvf hafi sér ver-
ið heimilt að halda áfram starf-
rækslu sinni með aðstoð starfs-
manna sinna, sem ekki hafi
verið í verkfalli. „Verkfalls-
verðirnir", sem hafi haft
frammi aðgerðir sinar f nafni
hins stefnda félags, hafi hindr-
að stefnanda í að starfrækja
iðnfyrirtæki sitt á eðlilegan
hátt. Hafi þeir haft f frammi
ofbeldi, meðal annars ruðzt inn
í verksmiðjuastað sinn og knú-
ið það fram, að efnivörur, seni
þegar voru fluttar þangað, hafi
verið settar á bifreiðina aftur,
og hún flutt út fyrir verk-
smiðjustaðinn og eins hindrað
það, að vörubifreið með efni-
vöru hafi komizt inn á verk-
smiðjustaðinn af götu. Einnig
hafi „verkfallsverðirnir“ haft í
frammi hótanir um ofbeldi, og
þapnig haft fram stöðvun á
notkun vörubifreiðanna.
RÖK DAGSBRÚNAR.
Stefndu, verkamannafélagið
Dagsbrún, héldu þvf fram að
aðgerðir verkfallsvarða hefðu
verið Iögmætar. Stefnandi hafi
haft með í þjónustu sinni fé-
lagsmenn í Dagsbrún sem hafi
haft með höndum akstur vöru-
bifreiða hans, en til þeirra hafi
verkfall félagsins tekið. Lög
nr. 50 frá 1940 um lögreglu-
menn, banni lögreglumönnum
að hafa afskipti af verkföllum,
en af því ákvæði leiði að það
sé hlutverk þeirra aðila sjálfra
sem í verkfallinu standi að hafa
á hendi réttarvörzlu að því
leyti sem hér hafi átt sér stað.
■ Dómurinn segir: „í þessu
máli ér það atriði ekki til úr-
lausnar, hvort stefnandi hafi
brotið gegn ákvæðum laga nr.
80/1938 um stéttarfélög og
vinnudeilur, heldur það hvort
«.„verkfallsverðimir“ hafi haft
lagaheimildir til þess að 1 hafa
réttarvörzlu í ' því efni. Eigi
verður séð að 18. gr. laga nr.
80/1938, né heldur 4. gr. Iaga
nr. 50/1940, um lögreglumenn,
veiti aðilum að vinnustöðvun
rétt til þess að taka í sínar eig-
in hendur réttarvörzlu .......
Framangreindar aðgérðir „verk-
fallsvarðanna" voru því ólög-
mæt réttarvarzla af þeirra
hálfu.“
Lögmaður Kassagerðar
Reykjavíkur f máli þessu var
Páll S. Pálsson hrl.
•Lögmaður Dagsbrúnar var
Egill Sigurgeirsson hrl.
Emil Ágústsson borgardómari
kvað upp dóminn.
1000 tunaur
Framhald af bls. 1.
hann hafði fengið dágóðan afla
og kom Sigurpáll til Reykjavík-
ur í morgun méð 1000 tunnur.
Var verið að landa þeim hér í
Reykjavíkurhöfn fyrir hádegi.
Fór aflinn til vinnslu i frysti-
húsi Júpiters og Marz á Kirkju-
sandi, ýmist til frystingar eða
flökunar. Hve mikið verður
flakað af aflanum veltur á því
að mannskapur fáist til vinn-
unnar, en mannekla er mikil í
frystihúsinu, ekki síður en í
öðrum frystihúsum, þrátt fyrir
mikla vinnu og möguleika á
háum tekjum.
TVmtun P
prcntsmiðja í. gúmmístimplagcrð
Einholti 2 - Slmi 20?60
Sjálfstæðiskonur !
FULLTRÚAR á þingi Landssambands Sjálfstæðiskvenna, ;
mæti í Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 25. apríl kl. 3 síð-
degis. — Aðrar konur á Landsfundi Sjálfstæðiflokksins eru >
velkomnar að sitja þingið, sem áheryrnarfulltrúar. \
Stjórnin. ’