Vísir - 24.04.1963, Blaðsíða 10

Vísir - 24.04.1963, Blaðsíða 10
eða ófærir sök- bleytu áður en varir. Landrover ’62, benzín — Opel Capitan ’59. Taunus Station ’58 — og Taunus St. ’55. Chevrolet ’58, original — Renault Daulphin ’61 — Dodge ’53, — Reo ’54, vörubíll. Höfum kaupendur að Willis jeppa ’55 eða yngri, staðgreiðsla — og höfum kaupendur á biðlista að flestum árgerðum og tegund um bifreiða. Vinsamlegast hafið strax sam- band við okkur. V í S I R . Miðvikudagui 24. apr.S iSíiS Bilið breikkar aftur milli Spánar og lýðræðislandanna Frægí fólk Sú skoðun kemur víða fram, að vegna aftöku Grirnao muni bilið breikka á ný milli Spánar og Vestur-Evrópu. Áframhald var á því um helgina, að til uppþota kæmi fyrir utan spönsk sendi- ráð í álfunni út af aftöku kommúnistaforsprakkans Juli- ans Garcia Grimao í s.l.. viku, en hann var að undangengnum líflátsdómi herréttar leiddur upp að vegg með bundið fyrir augun og þar næst skotinn af aftökuflokki úr hernum. I Lundúnum söfnuðust menn í hundraða tali fyrir utan sendi- ráðið og þótti lögreglunni svo alvarlega horfa, að hún setti mannfjöldanum úrsiitakosti, og lét hann fá nokkurra mínútna frest til þess að hafa sig á burt. Flestir hlýddu, en 10 menn voru handteknir, og verða þeir leiddir fyrir rétt í dag. Meðal þeirra, sem báðu Grimao griða voru Elisabet fyrrverandi Belgíudrottning og Nikita Krúsév forsætisráðherra Sovétríkjanna. í svari sínu til Krúsév sagði Franco hershöfð- ingi, einræðisherra Spánar, að ekki væri hægt að verða við beiðninni um að breyta dómin- um, vegna „hroðalegra af- brota“ Grimao í borgarstyrjöld- inni (sem háð var fyrir aldar- fjórðungi) og undirróðus- og skemmdarverkastarfsemi alla tíð síðan. En þessum skoðunum er al- mennt vísað á bug með öllum lýðræðisþjóðum álfunnar, og kemur víða fram sú skoðun, að Spánn hafi á ný fjarlægzt lýð- ræðislöndin. Yfirleitt eru skoðanirnar svipaðar þeini, sem Jens Otto Krag forsætisráðherra Dan- merkur iætur í ljós í AKTU- ELT að — frá mannúðar- og siðferðis sjónarhóli skoðað sé aftak- an „forkastanleg'1 og frá stjómmálalegum sjónahóli skoðað hið niesta glappaskot. Hafi spanska stjórnin haft þann tilgang með aftökunni, að gefa lýðræðisþjóðunum fordæmi um það, hvernig reka eigi and- VIKUKAUP 3000 til 4000 kr. möguleikar á 3 til 4000 kr. vikukaupi, það fer þó eftir því hvað mikil vinna er á hverjum tíma. Starfsmenn eru keyrðir til og frá vinnu- stað. — Upplýsingar gefur verkstjórinn. Sími 15532. HR AÐFRY STISTÖÐIN í REYKJAVÍK H.F. FATABREYTINGAR OG VIÐGERÐIR. Við önnumst allar breytingar og lag- færingar á herrafatnaði. Saumum einn- ig úr tillögðum efnum. FATABREYTINGAR Traðarkotssund 3 (á móti Þjóðleikhúsinu) Þvottavél ÞVÆR OG ÞURRKAR Gleðilegt sumar LJÓS & HITI Garðarstræti 2 v/Vesturgötu Hoover matic kommúnistiska stjórnmálastarf- semi, mun hún komast að raun um, að í Vestur-Evrópu eru menn á annari skoðun. Nú hafi Spánn á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina reynt að sann- færa umheiminn um, að tekin hafi verið upp frjálsl. stefna og miðað að auknu félagsmála- legu frelsi og bættum kjörum, en með aftökunni hafi verið brotið í bág við þessa stefnu, með þeim afleiðingum að bilið milli V.-Evrópu og Spánar muni nú breikka á ný. Nefnd, sem vinnur að náðun pólitískra fanga á Spáni, hefir hvatt til þess, að menn snið- Fjallvegir ruddir Akureyri Allir vegir í Eyjafirði og nær- liggjandi fjallvegir eru snjólausir orðnir og sem stendur er fært öll- um bilum milli Reykjavíkur og Húsavíkur. Öxnadalsheiðin var rudd fyrir helgi og lokið við það á laugar- dag. Vaðlaheiðin var rudd á laug- ardag og sunnudag, þannig að leiðin er greiðfær öllum bílum allt til Húsavíkur. Aftur á móti er enn- þá þungfært þegar austur fyrir Húsavík kemur. Síðustu dagana hafa verið hlý- indi norðanlands, blíðskaparveður og sólbráð. Fyrir bragðið hefur víða safnazt vatn á vegina, eink- um þar sem snjór hefur áður legið á þeim, eða snjótraðir hafa mynd- azt. Er óttazt að þetta verði til þess að slörk myndizt í vegina og að þeir verði ill- um gangi spönsku menningarvik- una £ Khöfn 15.—21. maí. Ávarp í þessa átt er undirritað af 36 rithöfundum, Iistamönn- um o. fl. Veitt lyfsöluleyfi í Laugavegsapóteki Lyfsöluleyfið í Laugavegsapóteki var veitt s. 1. laugardag Oddi Thor- arensen, lyfjafræðingi. Sex sóttu um leyfið. Oddur Thorarensen er fæddur 26. apríl 1925. Hann varð lyfja- fræðingur árið 1954. Hefur hann starfað við Laugavegsapótek síðan, og veitt apótekinu forstöðu £ for- föllum eigandans, Stefáns Thoraren sen, apötekara, sem er faðir Odds. Höfum kaup- endur af amer- ískum 6 manna bílum — oft staðgreiðsla Ennfremur hundruð ann- arra bifreiða með ýmis- konar greiðsluskilmálum. Nú er Gina Lollobrigida orti in meðeigandi í hinu stóra italska útgáfufyrirtæki Salani. í þvi sambandi var hún spurð hvort hún hefði svo mikinn á- huga á bókmenntum, og því svaraði hún brosandi: — Nei, en ég verð að hugsa fyrir þeim tima, þegar Sophia Loren hefur alveg rutt mér út úr kvikmyndaheiminum. Sem meðeigandi í fyrirtæk- SKÚLAGATA 55 — SÍMI15512 Gina Lollobrigida inu er Gina í dómnefndinni, sem árlega úthlutar hlnum mjög svo eftirsóttu Salani verðlaunum. Má þvf búast við að aðdáendahópur hennar með al andans manna ítala aukist stórum á næstunni. Jacqueline Kennedy á tvi- fara í TyrkL, hina ungu dans- mær Aysel Gilda. Gilda er „ná kvæm eftirlíking“ af forseta- frúnni og hún notar sér það óspart. Næturklúbbarnir kepp ast um að ráða til sín „Jackie Tyrklands“ sem til ársins 1961 var venjuieg klúbbdansmær Jacqueline Kennedy sem enginn gaf gaum. missa sér einkenni sín. Hún les En nú er Gilda alveg að missa sérebikenni sín. Hún les allt um forsetafrúna og reynir að stæla hana í öllu, klæða- burði, svipbrigðum, snyrtmgu og framkomu. Meðan prentaraverkfailið í New York stóð yfir fékk kvik- myndaleikkonan Bette Davis, sem hefur orðið svo vinsæl fyrnr leik sinn í myndinni „What ever happened to Baby Jane“, skeyti frá lögfræðing sínum: — „Sá orðrómur gengur að þér hafið látizt í bílslysi. Hvað á að gera?“ — „Gefið opinbera yfirlýs- ingu um að mér dytti aldrei í hug að deyja á meðan prent- araverkfali stæði yflr.“

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.