Vísir - 24.04.1963, Qupperneq 9
VISIR • Miðvikudagur 24. apríl 1963.
9
WWK3
’ ’ag'aarra
Gunnar Thoroddsen:
Við lok
kjörtímabils
Þegar kjörtlmabil Alþingis er
nú senn á enda runnið er rétt
að leiða hugann að ýmsu því,
sem markverðast hefur gerzt f
stjómmálum landsins á þessum
nær fjórum árum.
1) Stjómarsamstarf Sjálf-
stæðis- og Alþýðuflokksins hef-
ur haldizt heilt kjörtimabil. Það
hefur ekki áður gerzt sfðustu
30 ár, að sama rfkisstjórn hafi
setið heilt kjörtímabil.
2) Traust Iandsins út á við
hefur verið endurvakið. í tfð
vinstri stjðmarinnar var það
allt í molum. Vinaþjóðir okkar
vissu ekki hvort við stæðum
heilhuga með vestrænni sam-
vinnu. Það var heldur ekki
von, þvf að vinstri stjómin
vissi það ekki sjálf, enda sjálfri
sér sundurþykk og kommúnist-
um hafði verið falin forsjá
viövæmasta utanrfkismálsins.
3) Landhelgisdellan við Breta
var leyst með mjög hagkvæmri
lausn fyrir ísland.
4) Viðrelsnarlöggjöfin frá
febrúar 1960 er merkasta
■ Iöggjöfin frá þessu kjörtfma-
bilj og færði sjúku efnahags-
lífi bata.
5) Atvinnuleysi var aðalhrak-
spá stjómarandstæðinga. Því
fer svo fjarri, að hún hafi rætzt,
að aldrei í sögu landsins hefur
atvinna verið meirl en á þessu
kjörtfmabili.
Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra.
6) Þjóðhags- og framkvæmda-
áætlun hefur verið samin og
birt, sem verður þjóðinni allri,
Alþingi, rfkisstjórn og einstakl-
ingum leiðarvísir um það, hvern
ig hyggilegast verði unnið á
næstu árum að framkvæmdum
og framförum í landinu.
7) Almannatryggingar hafa
verið efldar svo, að nú stöndum
við íslendingar jafnfætis þeim
þjóðum, er fremstar standa.
Barnafjölskyldur, aldrað fólk og
öryrkjar hafa fengið auknar
bætur og öryggi.
8) í stað stöðugs gjaldeyris-
hungurs og hafta, hefur mynd-
ast gjaldeyrlssjóður meirí en
milljarður, greiðslujöfnuður
gagnvárt útlöndum orðið hag-
stæður tvö ár í röð, stóraukið
viðskiptafrelsi og vömúrval til
hagsbóta öllum almenningi.
9) Ríkisbúskapurinn hefur
skilað tekjuafgangi öll ár kjör-
tímabilsins, fjárlög verið af-
greidd 3 ár í röð án nýrra
skatta eða tolla og skatta og
tollalög endurskoðuð frá
grunni.
10) Lánstraust landsins endur
reist og hagkvæm framkvæmda-
lán til langs tfma tekin með
eðlilegum hætti á alþjóðlegum
vettvangi.
11) Stofnlánasjóðir atvinnu-
veganna: fiskveiðasjóður, stofn-
lánadeild sjávarútvegsins, og
iðnlánasjóður efldir og treystir,
og búnaðarsjóðunum lyft úr
lægð gjaldþrots og eymdar upp
f trausta og vaxandi lánsstofnun
fyrir landbúnaðinn.
12) 1 lok þessa kjörtfma-
bils veit þjóðin hvað við tek-
ur eftir kosningar, ef stjórn-
arflokkarnir fá meiri hluta
saman. Þeir hafa báðir lýst
þvf yfir, að þeir muni þá
halda áfram stjómarsam-
starfi næsta kjörtfmabil.
Ferðir Ferðafélagsins í sumar
Ferðaáætlun Ferðafélags fs-
lands fyrir n.k. sumar er komin
út og samkvæmt henni em fleiri
ferðir fyrlrhugaðar heldur en á
nokkm einu sumri til þessa, eða
samtals á 2. hundrað.
Áætluninni er flokkað niður f
páskaferðir, hvítasunnuferðir,
sumarleyfisferðir, ferðir um verzl-
unarmannahelgina, fastar helgar-
Eitt af ungu leikritaskáldunum
er Oddur Bjömsson. Hann er að-
eins þrftugur að aldri, en er þegar
orðinn kunnur sem leikritahöf-
undur, vann ásamt þremur öðrum
verðlaun f leikritasamkeppni Menn
ingarsjóðs í fyrra og í vetur var
flutt í útvarp leikrit hans, „Ein-
kennilegur maðúr". Fyrir nokkmm
dögum er svo komin út hjá Isa-
fold bókin „Fjórir leikþættir"
eftir Odd.
ferðir frá 1. júní til 1. september,
aðrar helgarferðir og loks ferðir
á skfðanámskeið f Kerlingarfjöll-
um 1963. Samtals eru þetta 107
ferðir.
Veigamesti liðurinn á áætluninni
er eins og áður sumarleyfisferð-
irnar, sem hver um sig varir frá
4 og allt að 12 dögum. Sú fyrsta,
sem er 6 daga ferð er vestur um
í kvöld klukkan níu fmm-
sýnir leikklúbburinn Gríma þrjá
einþáttunga eftir Odd: „Við lestur
framhaldssögunnar" og „Köngu-
Ióin“ sem Helgi Skúlason stjórnar
og „Partf“ sem Gfsli Alfreðsson
stjórnar. Þessir þættir eru allir í
hinni nýútkomnu bók.
Sýningar munu fara fram í
Tjarnarbæ og hefur Steinþór Sig-
urðsson gert leiktjöld.
Barðastrandarsýslu og norður í
Arnarfjörð. Hún hefst 22. júnf n.k.
Aðrar sumarleyfisferðir eru 7—8
daga ferð á Hornstrandir, 9 daga
ferð í Herðubreiðarlindir og öskju,
8 daga ferð f öræfi og Hornafjörð,
4 daga ferð um Snæfellsnes og
Dali, 9 daga ferð norður um Mel-
rakkasléttu og Vopnafjörð, 4 daga
ferð um Vestur-Skaftafellssýslu að
Lómagnúp, 9 daga ferð um VdSt-
urland, nokkurra daga ferð á hest-
um f Arnarfell hið mikla, 13 daga
ferð um Norður- og Austurland,
6 daga ferð um Kjalarsvæðið, 9
daga ferð um Landmannaleið og
austur f Núþstaðaskóg, 10 daga
ferð um Ödáðahraun og Sprengi-
sand með viðkomu í Öskju, 5 daga
ferð um Kjöl til Skagafjarðar, 6
daga ferð um Fjallabaksveg syðra,
12 daga ferð um miðlandsöræfin,
9 daga ferð um Norðurland til
Herðubreiðarlinda og öskju, síðast
á þessum lið áætlunarinnar er svo
ráðgerð 4 daga ferð til Veiðivatna
seint í ágústmánuði.
Um hvítasunnuna eru þrjár 2>/2
dags ferðir áætlaðar, á Snæfells-
nes, í Þórsmörk og Landmanna-
laugar. Um verzlunarmannahelgina
eru aftur á móti 5 ferðir á dag-
^krá, þ.e. á Kjöl, til Breiðafjarðar-
eyja, í Landmannalaugar, Þórs-
Gríma sýnir ís-
lenzka leikþætti
Veðurblíðan í marz og fyrri
hluta aþríl hafði þau áhrif á
fólk, að það fór að klæðast
sumarfötum og hætti alveg að
hugsa um frost og snjóa. Eins
var með gróðurinn. Hann
klæddist sínum sumarfötum,
grös og tré fóru að grænka og
í görðum máttl sjá útspnmgna
krókusa og páskaliljur.
En páskahretið brást ekki að
þessu sinni, það kom í öllu sínu
veldi með rok, snjóa og frost.
Það æddi yfir, felldi gróður og
frysti. Hv$ hættulegt var páska-
hretið gróðrinum spyrja nú
menn?
Hafliði Jónsson, garðyrkju-
ráðunautur tjáði Vísi að gróð-
urinn hefði farið illa, en hversu
illa væri ekki unnt að segja
enn sem komið er. Allur gróð-
ur sem eitthvað var kominn af
stað verður að byrja að nýju,
eigi hann að ná sér á strik. Sáð
flatir frá þvl í fyrra t.d. við
Suðurlandsbrautina, voru orðn-
ar grænar. Þær kól víða og má
gera ráð fyrir að langan tíma
geti tekið fyrir þær að ná sér
aftur, og jafnvel þurfi að sá
aftur i stór svæði.
Annars fer allt eftir því
h’^rnig vorið verðuv, sagði
Hafliði. Ef veðrið verður rakt
og hlýtt getur gróðurinn náð
sér furðu fljótt.
Vísir kom við í gróðrarstöð-
inni Alaska fyrir skömmu og í
vermireitum mátti sjá fallegar
blómstrandi stúpmæður. Jón R.
Björgvinsson verkstjóri tjáði
okkur, að þær hefðu verið orðn
ar svo sterkar þegar frostin
komu, að þau hefðu engin var-
anleg áhrif haft á þær, blómin
hefðu að vlsu fallið en nú væru
þær farnar að blómstra af full-
um krafti aftur. Annars yrðu
blómlaukar llklega yfirleitt að
einhverju leyti misheppnaðir.
Síberíska lerkið úti fyrir stöð-
inni (það er sérlega fallegt og
beinvaxið) var orðið grænt en
féll alveg á tveimur til fjór-
um tímum og má gera ráð fyr-
ir að það verði ekki búið að ná
sér fyrr en eftir 1-2 ár. íslenzk
ar trjátegundir hafa llklega
ekki orðið fyrir varanlegu tjóni
en kuldarni* hafa seinkað öll-
um trjágróðri um 3-4 vikur,
sagði Jón að lokum.
Jón R. Björgvúisson í Alaska sýndi okkur fallegar stjúpmæður, sem
féllu alveg í frostunum en eru nú farnar að blómstra aftur af fullum
krafti.
mörk og Hvanngil.
Frá og með 1. júní hefjast fastar
vikulegar ferðir um helgar I Þórs-
mörk og Landmannalaugar, en til
Kerlingarfjalla byrja fastar helgar-
ferðir 6. júlí. Þetta eru ll/2 dags
ferðir nema um verzlunarmanna-
helgina.
Aðrar helgarferðir 1 sumar eru
37 að tölu. Er þegar búið að efna
til þeirrar fyrstu, 31. marz s.l., en
sú næsta verður á sunnudaginn
kemur upp á Hengil og á sumar-
daginn fyrsta upp á Esju. Ur því
verður farið f eina eða fleiri ferðir
um hverja helgi, allt fram f sept-
embermánuð.
I Kerlingarfjöllum er ráðgert að
efna til sex skíðanámskeiða í sum-
ar í samvinnu við þá Eirík Har-
aldsson og Valdimar Örnólfsson
skíðakennara. Hvert þeirra stendur
yfir eina viku og hefst það fyrsta
7. júlf, en það síðasta 11. ágúst.
Ferðafélagið á nú 8 sæluhús og
verður gist f sumum þeirra vel-
flestar nætur yfir hásumarið. Tals-
vert á þriðja hundrað manns get-
ur gist samtímis f sæluhúsunum
þegar gólfpláss, auk rúmstæða, er
notað.