Vísir - 01.06.1963, Síða 2
T
V í SIR . Laugardagur 1. júní 1963.
*
Verð-
iauna
kross-
gáta
VÍSIS
500 kr.
verðlaun
B>
M
8
e
3
8
«©
b
•§
o
ÍIh
tn
j
t—4
s
w
-o
c
4)
on
50
.9
c
*o
S
| Bridgeþáttur VÍSIS |
t _ #
Ritsti Stefán Guðjohnsen """""
Enska blaðið Sunday Times
hefur ákveðið að halda árlega tví-
menningskeppni, sem er eingöngu
skipuð úrvalsspilurum. Ráðgert er
að bjóða hverju sinni einu eða
tveimur erlendum pörum.
Fyrstu keppninni er nýlokið, en
tveimur frœgum erlendum pörum
var boðið. Voru það heimsmeist-
ararnir í tvímenning, Frakkarnir
Jais og Trezel, og Bandaríkja-
mennirnir Stayman og Mitchell.
Sigurvegararnir voru Jais og
Trezel, og sýndu þeir þar með að
það er engin tilvljun, að þeir skipa
æðsta sessinn í tvímenning. I
öðru sæti voru jafnir Swinnerton-
Dyer og Barbour, og snillingarnir
Reese og Shapiro. Það er í frásög-
ur færandi að þeir síðarnefndu
spiluðu hið nýja sagnkerfi Reese,
The little Major. Kerfi þetta er
byggt upp á eintómum gervisögn-
um, og að sögn Reese sjálfs, bein-
línis sett til höfuðs hinum flóknu
sagnkerfum Frakka og Itala. Ef
tii vill verður nánar skýrt frá
þessu sagnkerfi slðar.
Hér er spil frá keppninni, þar
sem Reese—Shapiro og Jais—
Trezel áttust við. Austur gefur og
n-s eru á hættu.
Shapiro spilaði þrjú grönd í
austur og útspil Jais, spaðaásinn,
var það bezta sem vörnin átti völ
á. Norður kallaði og sagnhafi drap
í þriðju umferð, meðan suður gaf
af sér tígul. Tveir hæstu í hjarta
hjálpuðu við talningu og suður
gaf af sér annan tígul. Nú kom
tígulkóngur og tígulgosi, sem var
svínað. Siðan var tígulásinn tek-
inn og laufaníunni spilað út. Norð-
ur var á verði og lét gosann, til
þess að láta sagnhafa halda að
hann ætti G-10, en Shapiro lét
ekki blekkjast. Kóngur suðurs
Trezel
4 D-G-8-4-2
V G-9-6-4-2
♦ 3
J. G-5
Reese
4 K-10-5
V K-D-5-3
4 Á-10-5
* Á-9-8
Shapiro
4 9-7-3
V Á-10-8
<> K-G-7
* D-6-4-3
4 Á-6
V7
❖ D-9-8-6-4-2
4» K-10-7-2
Jais
drap drottningu Shapiros og hann
tók tíguldrottninguna. Síðan spil-
aði hann laufi, en Shapiro var trúr
sinni köllun og svínaði áttunni.
Enginn annar vann þrjú grönd á
spilið.
Mér hefur borizt tilkynning frá
pólska Bridgesambandinu um al-
þjóðabridgemót, sem haldið verður
dagana 4. ágúst—11. ágúst 1963 í
borginni Sopot. Er öllum bridge-
mönnum heimil þátttaka og skal
þátttaka tilkynnt fyrir 15. júlí. Há
peningaverðlaun eru veitt, en
keppt er í einmennings-, tvímenn-
ings- og sveitakeppnum. Þátttöku-
tilkynningar skulu stílaðar til The
Polish Bridge Union, Warszawa,
ul. Senatorska 29/31.
HJÁLPARBEIÐNI
Maður heitir Torfi Guðbjörnsson.
Hann hefur verið sjúkur í tiu ár.
Er veiki hans næsta sjaldgæf og
stafar af rangri kirtlastarfsemi.
Veldur það miklu magnleysi, en
með meðaiagjöf er unnt að halda
við nokkurri starfsorku, og þó að-
eins skamman tíma í senn.
Fullkomnastar rannsóknir á sýki
þessari hafa verið gerðar í Amer-
íku og á stundum hefur tekizt að
lækna hana með uppskurði. Eitt
dæmi er þess að íslenzk kona hef-
ur fengið bata á þann hátt.
Nú er afráðið að Torfi leiti sér
lækninga vestan hafs. Hefur læknir
hans búið í haginn fyrir hann á
sjúkrahúsi í New York og fengið
kunnan sérfræðing þar til að taka
Torfa til rannsóknar og uppskurð-
ar, ef það telst fært.
Þótt Torfi hljóti nokkurn farar-
styrk og lögákveðna aðstoð sjúkra-
samlags síns, hrekkur það aðeins
fyrir broti af kostnaðinum, sem
áætlaður er um 100 þúsund krónur.
Nú á sjúklingurinn fyrir 5 börnum
að sjá og var það elzta fermt á
þessu vori. Þótt konan vinni utan
heimilis, munu allir sjá að hér er
um þungan róður að ræða.
Ég er þess fullviss — og hef
þegar orðið þess var — að margir
munu vilja létta hann með ein-
hverju fjárframlagi. Blaðið mun
veita gjöfum manna móttöku og
einnig undirritaður.
Með fyrirfram þökk til allra, sem
greiða hér eitthvað götuna.
Gunnar Árnason,
sóknarprestur.