Vísir - 11.06.1963, Page 3

Vísir - 11.06.1963, Page 3
VÍSIR . Þriðjudagur 11. júní 1963, 3 ÞAR SEM > VETUR < V í i ? RIKIR ENN Þó komið sé fram á sumar er það rétt nýlega sem Siglu- fjarðarskarð var opnað. Fyrri hlutl vetrarins og ailt fram f apríl var sá snjóléttasti sem menn muna og er það almennt mál manna, að hægt verði með tiltöluiega litlum tilkostnaði að halda skarðinu opnu mikinn hluta vetrar. En svo urðu umskipti um páska og skall þá yfir mikið fárviðra- og hríðartímabil, sem hélzt síð- an í nokkrar vikur. Þó var snjór nú nokkru minni í skarðinu en venjulega er á þessum tima árs og tókst að ryðja skarðið um hvítasunnuna. Myndsjáin birtir í dag nokkr ar myndir frá snjóruðningi þessum. Þær sýna, að þá var enn vetrarlegt um að litast í Siglufjarðarskarði einum hæsta fjallvegi á íslandi. En snjórinn varð að láta undan afli hinna þungu og stóru jarðýta. Þær grófu skörð í gegnum skaflana og fundu jafnvel inni í einum skaflinum jappabil, sem festst hafði þar f áhiaupinu mikla. Var þriggja metra fönn yfir jeppan- um. Og nú er Siglufjarðarskarð opið og síldarvertíðin að hefj- ast, sem menn vona að verði eins góð og sú síðasta. Þá myndi allt ieika f iyndi á Siglufirði f sumar. yfir Siglufjarðarskarð. Myndin var tekin af einni ýtunni, er hún var að opna siðasta haftið. Þessi jeppabíll ,fannst“ undir snjónum. Hann var skiiinn þar eftir f stórhrið f páskavikunni, en þá hafði skarðið verið opnað. Það hélzt opið f háifan dag, siðan skall bylurinn yfir. Bflfær leið hefur verið rudd gegnum skaflinn. Myndin tekin í háskarðinu. Jeppabifreið ekur um snjótröðina.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.