Vísir - 22.07.1963, Side 4
4
VÍSIR . Mánudagur 22. júlí 1963.
y///áMLZ&/áMiZ7////£
fTn1 n T
r/. y////MZ////////'2M/y//////z
m
=3®
Akureyringar tapa
enn á heimavelli
Akranes — ÍBA 3:1
I rigningarsudda og leiðinda veðri mættu til leiks
á Akureyri Í.B.A. og Akumesingar. Trú manna á það
að Akureyringar vinni ætíð á heimavelli er nú farin
að dofna, því enn töpuðu Akureyringar. Akumesingar
héldu heim með bæði stigin og skoruðu alls 3 mörk,
en boltinn lá aðeins einu sinni í marki Skagamanna.
Mikill áhugi virtist vera fyrir
leiknum á Akureyri. Síminn á
íþróttavellinum þagnaði ekki með-
an á leiknum stóð og sagði frétta-
ritari Vísis, að hringt hafi verið
úr öllum landshornum.
Akurnesingar hófu leikinn með
sókn, en fljótlega svöruðu norðan-
Nýtt heinas-
met í hó-
stökki
í gær lauk í Moskvu lands-1
I keppni milli Rússa og Banda-
I ríkjamanna í frjálsum íþróttum.
Keppt var bæði f karla- og'
kvennagreinum. Keppninni lauk |
1 með sigri Rússa. AIls hlutu þeir j
189 stig, en Bandaríkjamenn
hlutu 146 stig. í landskeppninni'
settl rússneski hástökkvarinn I
1 Brumel heimsmet, stökk 2,28. Er j
I það einuni cm. hærra en hans ,
I fyrra heimsmet.
í karlagreinum báru Banda-I
1 ríkjamenn sigur af hólmi, fengu |
alls 119 stig, en Rússar 114. 1/
i kvennagreinum var hins vegar :
um að ræða yfirburðasigur'
Rússa, hlutu 75 stig á móti 28 |
stigum Bandarikjamanna.
menn og á 10. mínútu kemst mark
Skagamanna í hættu, en hægri út-
herja ÍBA mistókst. Síðan rekur
hvert upphlaupið annað. Það er
sótt og varizt á víxl. Það var á 21.
mínútu leiksins, sem gamla knatt-
spyrnukempan Þórður Þórðarson
skoraði fyrsta mark leiksins, sem
kom upp úr þvögu. Stuttu síðar á
Skúli skot á markið. Tveimur mín-
útum síðar fá Skagamenn horn.
Tómas fær boltann, þar sem hann
er staðsettur á marklínu, en ekki
virtist Tómas ætla að skora, því
hann skaut beint upp í loftið, en
heppnin var með og boltinn fór í
slá og inn, 2:0.
Eftir markið færðist fjör í leik-
inn og stuttu síðar á 'SkÚli Ágústs-
son hörkuskot á mark Skagamanna,
en Helga Dan. tókst naumlega að
bjarga og stuttu síðar ver Helgi
aftur glæsilega. En Skagamenn
voru ekki hættir, og á 39. mín.
bættu þeir marki við.
Akureyringar voru mun ákveðn-
ari, er þeir mættu til leiks f síðari
hálfleik. En spil þeirra var of
þröngt. Of mikið var reynt að
brjótast upp miðjuna og útherjarnir
lítið notaðir. Þrátt fyrir það tekst
þeim Skúla og Steingrími að brjót-
ast upp miðjuna og í gegn kemst
Steingrímur með boltann og skor-'
ar laglega, 2:1. Ekki löngu síðar fá
Akurnesingar fjórar hornspyrnur í
röð, en engin þeirra ber tilætlaðan
árangur. Eftir það var leikurinn lé-
legur. Völlurinn var orðinn þungur
og leikmennirnir flestir þreyttir.
Á 30. mín. á Ríkarður gott skot
og rétt á eftir skorar Skúli Hákon-
arson glæsilegt mark fyrir Skaga-
menn. Skúli stóð 6—8 m'. fyrir utan
vítateig og skaut föstum jarðar-
bolta, sem fór í gegnum vörn Ak-
ureyringa og hafnaði f netinu —
laglega gert hjá Skúla.
Áberandi bezti maður f liði Ak-
urnesinga og ef til vill á vellinum
var Skúli Hákonarson. í liði ÍBA
voru einna beztir bræðurnir Guð-
mundur og Ævar.
Dómari í leiknum var Hannes
Sigurðsson, og dæmdi hann ágæt-
lega.
Leikurinn f gær átti að byrja kl.
4. Síðan var honum frestað til kl.
8 um kvöldið, en þrátt fyrir það
byrjaði leikurinn ekki fyrr en kl.
8,45. Frestunin stafaði af því að
dómari og línuverðir úr Reykjavík
komu ekki fyrr, vegna þess að ekki
var hægt að fljúga til Akureyrar í
gærmorgun. Akurnesingar komu
hins vegar norður á laugardags-
kvöld. Hefði því vel mátt senda
dómarann og lfnuverði með bifreið
snemma um morgunin, en ekki kl.
2, og vonandi á sama sagan ekki
eftir að endurtaka sig.
Þrátt fyrir það, að þjarmað var að Birgi Bjömss. tekst honum að skora.
Handknattleiksniótið á HörðuvölBum:
13:9
4 Beikir um heð-iina
Handknattleiksmót ís-
lands, utan húss, í meist-
araflokki karla og kvenna
hófst á Hörðuvöllum í
Hafnarfirði á laugardag-
inn. Hallsteinn Hinriksson
setti mótið með stuttu á-
varpi í fjarveru form. Fim-
leikafélags Hafnarfjarðar.
Aðeins fjórir leikir voru
Ieiknir á mótinu yfir helg-
ina, vegna þess að Ármenn
ingar hættu við þátttöku.
Leikimir buðu ekki upp á
mikið, en einna mesta at-
hygli vakti markvörður
K.R. á laugardaginn, ekki
fyrir sérstaklega góðan
Keflavík sigraði
Keflavík — Fram 2:0
í gær fór fram á gras-
vellinum í Njarðvík leik-
ur í 1. deild á milli Fram
og Keflvíkinga. Veður
var allgott, norðan kaldi
en sólfar. — Keflvíking-
ar unnu hlutkestið og
kusu að leika undan
vindi.
Strax og leikur hófst má segja
að Keflvíkingar tækju leikinn f
sínar hendur og héldu uppi lát-
Iausri sókn á Fram. En vörn
Fram varðist vel og tvfvegis
bjargaði Geir með góðum út-
hlaupum. Að öðru leyti er ekki
hægt að segja að mark Fram
kæmist f mikla hættu.
Á 20. mfnútu kom fyrra mark
Keflavíkur. Högni Gunnlaugs-
son, sem lék miðvörð í þessum
leik, sendi langa sendingu fram
miðjan völlinn til Jóns mið-
herja, sem lyfti lagléga yfir Hall
dór Lúðvíksson miðvörð og
skaut í hornið fjær, óverjandi
fyrir Geir markvörð. Tveimur
mínútum síðar var dæmd víta-
spyrna á Fram, og skoraði
Högni örugglega úr henni.
í seinni hálfleik snerist taflið
við. Þá voru það Framarar sem
sóttu og skapaðist oft mikil
hætta við mark Keflvíkinga, en
Kjartan markvörður var vel á
verði og sýndi oft frábæra
markvörzlu. Áhorfendur vörpuðu
öndinni léttilega þegar dómar-
inn, Haukur Öskarsson, flautaði
leikinn af og sigur Keflvíkinga
var orðinn staðreynd.
LIÐIN:
Lið Keflvíkinga var litillega
breytt frá fyrri leikjum. Högni
lék nú miðvörð og Sigurvin bak
vörð og Magnús Torfason fram-
vörð. Styrkti þetta vörnina mjög
mikið. En undarleg ráðstöfun
var að láta Jón Ólaf, sem verið
hefur hættulegasti maður fram-
línunnar f undanförnum leikjum,
verma varamannabekkina. Vörn
in var sterkari hluti liðsins með
Kjartan markvörð og Högna
sem beztu menn.
I framlínunni voru virkastir
Jón miðherji og Einar Magnús-
son.
Lið Fram var nokkuð mis-
jafnt. I framlínunni var aðeins
einn maður, sem barðist, Bald-
ur Scheving. Framverðirnir
Björn Helgason og Ragnar voru
beztu menn liðsins. Björn ó-
þreytandi við að reyna að
byggja upp og fá spil í gang.
Einnig áttu bakverðirnir Birgir
og Sigurður góðan leik.
Áhorfendur voru allmargir.
A.
leik, heldur fyrir það að
missa nokkrum sinnum
niður um sig buxurnar.
Eftir að Hallsteinn Hinriksson
hafði sett mótið lék F. H. við K.R.
Ekki bar leikurinn þess merki að
menn hefðu æft mikið. F.H. tók
strax yfirhöndina og bilið breikk-
aði jafnt og þétt. Er leiknum lauk
stóð markatalan 20:42 F.H. í vil.
Bæði Iiðin höfðu á að skipa flestum
þeim leikmönnum sem leikið hafa
með liðunum undanfarið.
Á eftir leik F.H. og K.R. kepptu
í kvennaflokki Þróttur og F.H. og
Iauk þeim leik með yfirburðarsigri
F.H. Þriðja leikinn á laugardaginn
áttu að leika í karlaflokki Ármann
og Í.R. Ármenningar mættu ekki til
leiks og sama gerðu þeir í gær er
þeir áttu að leika á móti F.H. svo
sennilega vejða þeir ekki með í
mótinu.
Á sunnudag fóru einnig tveir
Ieikir fram. Fyrri leikurinn var í
kvennaflokki milli Breiðabliks og
Víkings. Lauk þeim leik með ör-
uggum sigri Víkings 15:9, en í hálf-
leik stóð 3:6. í karlaflokknum átt-
ust við K.R. og Víkingur. Sem
kunnugt er, eru Víkingar nýkomnir
úr keppnisferðalagi frá Tékkósló-
vakíu og bjuggust margir við sér-
staklega góðri frammistöðu þeirra.
En K.R.-ingar voru ekki á þeim
buxunum að láta Víkingana vinna
leikinn. Að vísu var ekki eins mik-
ið markaregn í leiknum eins og
hjá F.H. og K.R., í hálfleik stóð
6:3 K.R. í vil. Framan af var leik-
urinn nokkuð vel leikinn, en í
seinni hálfleik færðist i hann meiri
harka og var mikið um „víti“. K.R.-
ingum tókst að sigra 13:9.