Vísir


Vísir - 01.08.1963, Qupperneq 3

Vísir - 01.08.1963, Qupperneq 3
V I S I R . Fimmtudagur 1. ágúst 1963. 3 Fréttaritari Vísis á Akureyri er um þessar mundir staddur á handfæraveiðum norður við Grímsey. Hefir hann tekið myndir þær sem við birtum hér I Myndsjánni í dag og sendir LANDLEGA I GRIMSEY hann okkur stutta frásögn um myndirnar í fréttabréfi. Efsta myndin er tekin fyrir nokkrum dögum í lúkar mótor- bátsins Björg frá Hrísey, sem stundar veiðar við Grímsey, en þar er fréttaritarinn skipsmað- ur. Báturinn er 9 tonn að stærð og eru eigendur hans Tryggvi Ingimarsson skipstj. og • • Guð- laugur Jóhannesscm. Miðmyndin sýnir þrjá skip- verj.a Bjargar að snæðingi í lúk- arnum, áður en næsta lota hefst. Neðsta myndin sýnir landlegu færabáta við hafnargarðinn f Grímsey í 7—8 vindstigum. Innan við garðinn er ákjósan- legt skjól fyrir minni báta. Rétt sunnan við eyna lá mikili floti sfldarskipa og togara, bæði inn- lendra og erlendra. Myndin er tekin á iaugardegi og var að sjálfsögðu slegið upp balli í samkomuhúsi eyjarskeggja og var það hinn bezti gleðskapur. Á minni myndinni hér fyrir neðan gerir Guðlaugur að fyrsta dags aflanum en það voru 11 þorskar og einn ufsi. Norð- austan bræla var og fljótlega leitað lands I Grímsey.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.