Vísir - 02.10.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 02.10.1963, Blaðsíða 4
4 V í S I R . Miðvikudagur 2. október 1963. Bækur eftir Olaf Tryggvason hug iækni og Margréti frá Öxnafelli Bókautgáfan Fróði í Reykja- vík hefur síðustu árin færzt mjög í aukana með útgáfu- starfsemi sína og i haust kem- ur nokkuð á annan tug bóka á markaðinn frá fyrirtækinu. Porvaldur Sigurðsson for- stjóri Fróða hefur gefið Vísi upplýsingar í stuttu máli um helztu útkomubækur í ár. Tvær eru þegar komnar á markaðinn, annars vegar „Dagblað“, skáld- saga eftir Baldur Óskarsson, 125 blaðsíðna bók — sem er önnur í röðinni frá hendi þessa höfundar Hins vegar er „Al- þýðuheimilið“, skáldsaga, 133 bls. að stærð eftir Guðrúnu Jakobsen. Hún hefur mynd- skreytt bókina sjálf. Annars má Iíklegt telja að þær bækur, sem mesta forvitni lesenda vekja, séu bækur þær sem Fróði gefur út um dulræn efni. Þar má fyrst og fremst nefna nýja bók eftir Ólaf Tryggvason huglækni á Akur- evri. í fyrra kom út bók eftir Ólaf „Huglækningar", sem seld- ist upp á skammri stundu og er nú með öllu ófáanleg. í haust kemur á markaðinn stór bók eftir hann, 230 — 40 bls. að stærð og fjallar um dulræn fyr- irbæri eins og hin fyrri bók hans. Hún heitir „Tveggja heima sýn“. I öðru lagi má nefna bók um dulræna reynslu Margrétar frá Öxnafelli sem er 2. bindið af „Skyggnu konunni", en fyrra bindið kom út 1960. Þetta er 290 bls. bók og verður í henni sérstakur þáttur eftir Árna Óla blaðamann, sem fjall- ar um dulrænar lækningar í Bretlandi. Veigamesta og fallegasta út- gáfubók Fróða í ár verður án efa bók um Beethoven, ævi- saga hans eftir Valentinus, en Jón Þórarinsson tónskáld ís- lenzkar hana. Bókin verður með fjölda ágætra mynda sem prentaðar hafa verið í Mtinchen í Þýzkalandi, en textinn verður prentaður hér á landi. Bók þessi verður í stóru broti og mjög til hennar vandað í hvívetna. Af Islenzkum skáldsögum hefur hér að framan verið getið tveggja bóka sem þegar eru komnar á markaðinn. Auk þeirra er gert ráð fyrir skáld- sögum þriggja annarra höfunda íslenzkra. I þeirra hópi er nýr höfundur, Már Kristjánsson, sem sendir nú frá sér fyrstu bókina, langa skáldsögu, sem gerist í erlendri höfn. Hún heit- ir „Saklausa dúfan" og verður um 320 bls. að stærð. Ásgeir Jónsson skrifar skáld- sögu, sem gerist í Reykjavík á vorum dögum og fjallar um okurstarfsemi og bygginga- brask eins og sögur fara af því nú til dags. Sagan hefur hlotið nafnið „Þræll hússins“ og er rúmlega 200 síður að stærð. Loks eru líkur fyrir því, að ný skáldsaga komi á markaðinn í haust eftir Friðjón Stefánsson rithöfund, Þá gefur Fróði út stóra og veigamikla skáldsögu eftir júgó- slavneska Nóbelsverðlaunahöf- undinn Ivo Andric um Brúna á Drinu. Það er sígilt skáldrit og hrífandi og jafnframt þjóðlífs- lýsing. Síra Sveinn Víkingur hefur íslenzkað bókina. Hún er nær 350 þéttprentaðar síður í stóru broti. Loks skal getið tveggja bóka eftir danska höfunda. Önnur þeirra „Hinn fullkomni eigin- maður“ er eftir Willy Brein- holst. í fyrra gaf Fróði út eftir hann „Vandinn að vera pabbi“, sem seldist upp fyrir jól og er nú gjörsamlega ófáanleg á bóka markaðinum. Þessi nýja bók er skrifuð í sama létta gaman- stílnum. Hin bókin er eftir danskan blaðamann, Jens Kruse. „Við ókum suður“ heitir hún og er ferðasaga suður um Evrópu, en með í þeirri ferð var íslending- ur, Einar Sigfússon (Einarsson- ar tónskálds). Skrifar Einar sér- stakan eftirmála að bókinni. Andrés Kristjánsson blaðamað- ur íslenzkaði bókina. Fróði gefur út nokkrar barna bækur þ. á m. smákrakkabók eftir Kára Tryggvason sem hann nefnir „Palli og Pési“. Hún verður með teikningum. Þá má og geta tveggja barna- bóka eftir Astrid Lindgren „Strokudrengurinn" og „Lísa litla í Ólátagarði". Ólafur Tryggvason. líugiom fróðleik frá Iðunnarútgáfunni Hjá Iðunni koma út nú í haust m. a. eftirtaldar bækur: Ný skáldsaga eftir Indriða G. Þorsteinsson. Saga þessi gerist norðanlands rétt fyrir heims- styrjöldina síðari. Vonglaðir veiðimenn, gaman- saga eftir Óskar Aðalstein, myndskreytt af Halldóri Péturs- syni. Frá Djúpi og Ströndum, þætt ir frá ísafjarðardjúpi og úr Strandasýslu, eftir Jóhann Hjaltason fræðimann. Fyrir tuttugu og fimm árum kom út bók eftir Jóhann undir þessu sama nafni, en hér er um nýtt safn að ræða. Heimdragi, þjóðlegur fróð- leikur af ýmsu tagi víðsvegar að af landinu og frá ýmsum tímum, ritað af mörgum höf- undum. Ritstjóri er Kristmund- ur Bjarnason rithöfundur. Á síðasta ári hóf Iðunn út- gáfu skáldsagnaflokks undir nafninu Sígildar sögur Iðunnar. er ætlunin að birta einvörðungu Ferðabók og barnabæk- ur f rá Snæf ellsútgáfunni Bókaútgáfan Snæfell í Hafn- arfirði sendir nokkrar bækur á markaðinn í haust. Veigamest Snæfellsbóka verður ferðabók eftir Arne Salk Rönne, sem heitir á íslenzku „Frumskógar og demantar". Að lesmáli verður hún 11 — 12 ark- ir að stærð en auk þess með 32 heilsíðu litmyndum, sem prentaðar hafa verið í Dan- mörku. Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri hefur þýtt bókina. Aðrar útgáfubækur Snæfells í haust eru yfirleitt ætlaðar unglingum og krökkum. Meðal þeirra má nefna Ævintýri Tom Swift eftir Victor Attleton, en ævintýrabækur hans hafa verið í röð metsölubóka á undanförn- um árum. í haust sendir Snæ- fell eina nýja bók eftir hann á markaðinn og endurprentun á annar. 1 bókaflokknum um ævintýri Sjónvarps-Sigga kemur 2. bókin í þeim flokki þar sem Sjón- varps-Siggi er á slóðum þræla- sala. Af bókum fyrir yngstu les- endurna gefur Snæfell út end- urútgáfu á „Tíu litlir hvuttar" með litmyndum, „Valur fer á veiðar“, saga með myndum fyrir jmgstu lesendur og loks er barnasaga „Bakka-Knútur“ eftir Jón ísfeld í þeim flokki víðkunnar úrvals- sögur, sem um áratuga skeið hafa verið eitt vinsælasta lestr- arefni fólks á öllum aldri. Fyrir síðustu jól kom út Ben Húr, og nú í haust koma út þrjár bæk- ur: Kofi Tómasar frænda eftir Harriet Beecher Stowe, ívar hlújárn eftir Walter Scott og Skytturnar eftir Alexandre Dumas, fyrra bindi af þremur. Þá kemur út ný bók eftir Alistair MacLean, höfund bók- arinnar „Byssurnar í Nava- rone“, en hið íslenzka nafn þessarar nýju bókar hefur enn ekki verið ákveðið. Nokkrar bækur handa börn- um og unglingum koma einnig út á vegum Iðunnar, þar á með- al tvær bækur eftir Enid Blyton, höfund „Ævintýrabók- anna“ Auk þess koma út í nýjum útgáfum 2 — 3 af eldri útgáfu- bókum Iðunnar. Indriði G. Þorsteinsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.