Vísir - 28.10.1963, Blaðsíða 1
53. árg. — Mánudagur 28. október 1963. — 139. tbl.
Lögregluþjónar með áfengi, sem þeir gerðu upptækt hjá ungling-
um í Þjórsárdal s. I. vor.
VISIR
Hvar eru upptökin—hvað
á að taka til bragðs?
inni störfuðu Sigurjón Sigurðs-
son lögreglustjóri, dr. Slmon
Jóh. Ágústsson, prófessor og
Ólafur Jónsson lögreglufulltrúi.
Til að fá sem gleggsta mynd
af atburðunum um hvítasunnu-
helgina fóru nefndarmenn upp I
Þjóarsárdal, kynntu sér aðstæð-
ur þar og áttu viðtöl við bænd-
Framh. á bls. 5.
Tillögur Þjórsórdulsnefndur
Öllum eru í fersku minni at-
burðir þeir sem gerðust austur í
Þjórsárdal um hvítasunnuhelg-
ina í sumar, oftur-ölvun fjölda
ungmenna og hryggilegur ófarn
aSur í því sambandi. Vegna þess
ara atburða skipaði menntamála
ráðherra, i sambandi við dóms
málaráðherra, rannsóknanefnd
til þess að kafa til botns i því,
sem þarna gerðist og aðdrag-
anda þess, svo og til að gera til-
lögur til úrbóta. Nefnd þessi hef
ir nú skilað skýrslu sinni, og
tillögum, og verður hér birtur
úrdráttu úr skýrslunni. í nefnd
sóttur að Hlégarði
Lögreglan í Reykjavík hafði
ærið að gera í sambandi við
dansleik að Hlégarði í Mosfells-
sveit s.l. Iaugardagskvöld.
Varð lögreglan að flytja nokkra
bílfarma af drukknum ungling-
um þaðan í fangageymslur sín-
ar í Reykjavík. Höfðu sumir
þessir unglingar það eitt til saka
unnið að vera drukknir innan
lögaldurs, en aðrir voru með
ólæti og barsmíðar. Auk þessa
tók lögreglan áfengi af mörgum
unglingum, jafnt stúlkum sem
piltum, sem ætluðu að fara með
vínföng inn í húsið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurlögreglunni í morg-
un var óvenjuerilsöm helgi hjá
henni, margar kærur og kvart-
anir og fangageymslurnar yfir-
fullar. Drykkjuskapur var með
mesta móti sem hann hefur
gerzt í haust og samfara því
alls konar læti og erjur, slags-
mál á götum og í húsum inni og
þar fram eftir götunum.
Hörmuleg uðkomo — Atvikoiýsing
Skýrsla Þjórsárdalsnefnd
ar er nú að koma fyrir al-
menningssjónir. — Menn
vissu margt um þá hryggi-
legu atburði, sem urðu í
Þjórsárdal í sumar, en við
nánari rannsókn hefur
margt orðið ljósara. Hér
birtist orðréttur sá kafli úr
skýrslunni, þar sem nefnd-
in lýsir atvikum öllum í
Þjórsárdal og aðdraganda
þeirra, en á öðrum stað hér
í blaðinu er efniságrip af
skýrslunni í heild og nokkr
ar tillögur nefndarinnar til
Varpa Lifeguards
var á sínum stað
úrbóta á vandamálum
ungs fólks.
II. Atvikalýsing og aðdragandi.
1
Ungmenni, flest á aldrinum 15 —
20 ára, fóru að leggja leiðir sínar
úr Reykjavík til þjóðgarðsins I
Þjórsárdal eftir hádegi á föstudag
31. maí s.l. Með þeim fyrstu, sem
lögðu af stað þangað var langferða-
bifreið með unglingahóp úr Reykja-
vík. Hún var stöðvuð á Selfossi
kl. 18.30 að tilmælum lögreglunn-
ar i Reykjavík, og Ieit hafin að
áfengi I henni. í farangri unglinga
þessara fundust 49 flöskur af sterku
áfengi, og voru sumar þeirra ekki
með merki Áfengisverzlunar ríkis-
ins. Var sumt áfengið sameign nokk
urra hópa, en sumt einstaklinga.
Þó munu unglingar þessir hafa kom
ið um 10 flöskum undan, svo að
um tværflöskur hafa komið á hvern
þeirra til jafnaðar. 1 bifreiðinni
voru 31 unglingur, 15 stúlkur og
16 drengir, á aldrinum 14—18 ára.
Fararstjórinn var unglingspiltur, f.
1945, til heimilis í Reykjavík. Ekki
sást vín nema á fáeinum ungling-
um, og höguðu þeir sér prúðmann-
lega. Var hóp þessum leyft að halda
áfram leið sinni um kvöldið inn i
Þjórsárdal, eftir að lögreglan á Sel-
fossi hafði haft samband við lög-
regluna í Reykjavík.
Fyrsti hópurinn kom inn í Þjórs-
Framh. á bls. 5.
NOKKUR SILÐ
VEIÐI í Nún
Bátum á síldveiðum fer nú fjölg
andi. Undangengnar tvær nætur
hefir veiðiveður verið skaplegt á
miðunum.
Síldarbátar voru að veiðum I
nótt um 40 mílur út af Jökli. Afl-
ast þar yfirleitt góð síld þegar gef-
ur. í nótt var veður dágott, einkum
eftir miðnætti. Blaðinu er kunnugt
um afla eftirtalinna skipa í morg-
i un:
Kópur 750 tn. Hilmir II. 500,
Hrafn Sveinbjarnarson 150, Hólma
nes 500, Lómur 400, Sigurpáll 450,
Hamravík 300, Eldey og Jón Finns
son um 40 tn. hvor bátur, Haraldur
120, Höfrungur 120, Skírnir 350 og
Anna SE (leggur upp á Akranesi)
600 tunnur. AIls fengu 18 skip
6500 tunnur.
Seint á sunnudagskvöld kom
varðskipið Óðinn inn til ísafjarðar
með botnvörpuna af togaranum
Blaðið J dtig
31s. 2 fþróttir.
— 3 Hver er Van Dyke?
— Myndsjá.
— 9 Heimsókn í Hjúkrun
arskóla íslands.
Lifeguard sem hann hjó af sér að
næturlagi, þegar varðskipið kom að
honum við landhelgisbrot.
Staðurinn þar sem varpan var
slædd upp sýnir það glöggt, að
framburður Olesen skipstjóra um
að hann hafi ekki verið að veiðum
á umræddum stað var fyrirsláttur
einn og undanbrögð.
Óðinn slæddi vörpuna upp nær
því nákvæmlega á þeim stað þar
sem hann kom að togaranum. Á
ísafirði hófust í morgun framhalds
réttarhöld, þar sem dómkvaddir
menn voru kvaddir til að skoða
vörpuna og bera strengjaendana
saman við strengi þá sem fundust
um borð í togaaranum. Nákvæmar
staðarákvarðanir voru gerðar þar
sem varpan var dregin inn og var
það rétt fyrir utan bauju þá sem
Óðinn hafði kastað út í mynni
Dýrafjarðar.
Fundur Flokksráðs Sjáll-
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins
kom saman til fundar s.I. laugar-
dag, 26. október, í Sjálfstæðis-
húsinu í Reykjavík. Fundurinn
hófst kl. 10 f. h. og voru mættir
flokksráðsmenn viðsvegar að af
landinu.
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
Bjarni Benediktsson dómsmála-
ráðherra, setti fundinn.
Ólafur Thors forsætisráðherra
flutti ýtarlega ræðu um efna-
hagsástandið. Lýsti hann þróun
sfðustu mánaða f launamálum,
peningamálum og fjármálum og
skýrði eðli þeirra vandamála,
sem rfkisstjórnin á við að etja
um þessar mundir.
Síðan fóru fram allmiklar um-
ræður um þessi mál.
Að umræðum loknum var
samþyklct með samhljóða at-
kvæðum fundarmanna eftirfar-
andi tiliaga:
Flokksráðsfundur Sjálfstæðis-
manna telur að gera beri nauð-
synlegar ráðstafanir til að
tryggja gengi krónunnar og
heitir á alla Iandsmenn að
veita atbeina sinn til að þær
ráðstafanir megi takast.