Vísir - 28.10.1963, Blaðsíða 5
VJ-SIK , Mánudagur 28. október 1963.
5
Skyrslan —
Framh. af bls. 1.
árdal á föstudagskvöld. Var þar allt
meö'friði og spekt það kvöld, næstu
nótt og fram yfir hádegi á laugar-
dag 1. júnf, enda tiltölulega fá-
mennt. Fólk þetta, og flest það,
sem sfðar kom, tjaidaði og hafðist
við í landi Skógræktar ríkisins á
svokölluðu Nesi niður undan Skriðu
felli, miUi Sandár og Fossár. Er
land þar kjarri vaxið, en slétt rjóð-
ur á milli. Þarna eru ákjósanleg
tjaldstæði, enda er staðurinn mikið
sóttur á sumrin af ferðafólki, sem
hefst þar víð í tjöldum, einkum um
helgar. Hefur ferðafólk þetta, að
sögn bænda í nágrenninu, ávallt
hagað sér prúðmannlega og gengið
vel um, en aldrei hefur verið þar
um mikinn mannsöfnuð að ræða,
eða neitt í líkingu við það, sem
nú átti sér stað.
Seinni hluta laugardags fyrir
hvítasunnu var svo látlaus straum-
ur bifreiða úr Reykjavfk austur í
Þjórsárdal. A. m. k. 5 — 6 lang-
1 ferðabifreiðir, sem taka hver um
40 manns, fluttu þangað fólk, auk
þess leigubifreiðir og loks fjöldi
einkabifreiða, sem ungmenni þessi
höfðu umráð yfir. Akstur margra
ungmennanna var hraður og ógæti-
legur. Var mannfjöldinn mestur á
laugardagskvöld og fram yfir há-
degi á hvítasunnudag. Má gizka á,
að þarna hafi verið 600 — 700 manns
þegar flest var, og hafðist megin-
þorri þessa mannfjölda við á til-
tölulega litlu svæði, skammt fyrir
innan hlið þjóðgarðsins á nesi því,
sem áður er nefnt, milli Sandár og
Fossár. Langferðabifreiðir og leigu-
bifreiðir höfðu þarna stutta við-
dvöl, enda margir unglingahópar
samið um að láta sækja sig aftur
á ákveðnum tíma.
Mjög fór að bera á ölvun og
ólátum seinni hluta laugardags og
þá einkum um kvöldið og aðfara-
nótt hvítasunnu. Illvíg slagsmál
munu þó ekki hafa átt sér stað, en
hrindingar og ryskingar, flöskum
hent beint af augum og þær brotnar
Ýmsir óðu út í Sandá, ösluðu þar í
öllum fötum, aðrir voru fáklæddir
eða i sundbol, einn karlmaður bað-
aði sig nakinn í ánni. Ýtti það und-
ir þessi tiltæki, að mjög heitt var
og logn á laugardag og sunnudag.
Óp, háreysti og troðningur var mik-
iil. Þyrptist fólkið að mjög stórum
söluvagni úr Reykjavík, þar sem
seldir voru gosdrykkir og pylsur.
Sumir unglinganna voru nestislaus-
ir eða nestislitlir og höfðu hvorki
með sér tjald né svefnpoka. Mikili
meirihluti þeirra virðist þó hafa
haft með sér tjöld og annan við-
legubúnað. Lítill friður var f mörg-
um tjöldunum um nóttina fyrir þá,
sem sofa vildu. Voru sum þeirra
felld eða rifin niður og urðu ýms-
ir, sem höfðu hægt um sig og voru
ekki undir áfengisáhrifum, að færa
tjöld sín lengra burtu til þess að
geta verið í friði. Urðu margir ung-
lingar brátt illa til reika, blautir,
svangir, skrámaðir, vanklæddir og
ofurölva. Sumir voru á stjái alla
nóttina og fram á hvítasunnudag,
aðrir sváfu í bifreiðum sínum eða
undir berum himni. Um laugardags-
kvöld og sunnudagsnótt leituðu
margir heim að Ásólfsstöðum og
Skriðufelli vegna þess, að þá van-
hagaði um eitthvað og einnig vegna
bleytu og svengdar, og reyndu
•bændur að bæta úr þörfum þeirra
eftir beztu getu. Að Skriðufelli
kom t. d. á laugardagskvöld piltur
einn, mjög illa til reika, drukkinn,
svangur og blautur. Var honum
veitt aðhlynning, hann.háttaður of-
an f rúm og var hann þar um nótt-
ina.
Bifreiðum var ekið mikið fram og
aftur um svæðið, svo og um ár-
kvíslarnar. Festust þar margar bif-
reiðir og dró Björn Jóhannesson
bóndi á Skriðufelli, upp 15—20
þeirra, sem sátu fastar I ánum og
sandeyrum, er myndast við þær.
Auk þess var að akstrinum hin
mesta slysahætta, þar sem hemlar
bifreiða höfðu blotnað og voru 6-
virkir, og fólkið sinnti því litt að
víkja fyrir bifreiðum. Bifreið með
óvirka hemla var ekið yfir mann,
Gísla Guðmundsson, Selvogsgötu
12, Hafnarfirði, um miðnætti eða
laust fyrir miðnætti á hvítasunnu-
dag, og slasaðist hann mikið. —
Seinna um nóttina slasaðist einnig
Steingrímur Steingrímsson, Ásvalla
götu 49, Reykjavík, og fluttu lög-
reglumenn hann á slysavarðstofuna
í Reykjavik.
Um kl. 2 á aðfaranótt hvítasunnu
fóru þeir Guðmundur Guðnason,
Háholti, Aðalsteinn Seinþórsson,
Hæli, og Erlingur Loftsson, Sand-
læk, inn f Þjórsárdal til þess að
grennslast fyrir um ástandið þar,
sem þeir höfðu grun um, að væri
ekki gott. Þegar þeir höfðu verið
þar nokkra stund, kom þeim saman
um, að Erlingur skyldi hringja til
lögreglunnar á Selfossi vegna ölv
unar unglinganna og slysahættu af
framferði þeirra, ógætilegs aksturs,
vasli í ánni, ryskinga og flösku-
brota. Hafði lögreglan á Selfossi
samband við lögregluna f Reykja
vfk um kl. 2,45 aðfaranótt hvíta-
sunnudags. Um kl. 3,50 fóru 7 lög
reglumenn undir stjórn Hjartar
Elíassonar af stað úr Reykjavík og
komu þeir f Þjórsárdal um kl. 6 á
hvítasunnumorgun f fólksflutninga
bifreiðinni P-90. Var þá margt
manna á stjái, flestir ölvaðir. Þétt
ast var fólkið við söluvagn þann
sem áður er um getið, og opinn
var. Lokuðu lögreglumenn sölu-
vagninum og hvarf hann brátt af
vettvangi. Þá unglinga, sem verst
létu, færðu lögreglumenn f bifreið
sína. Suma þeirra varð að færa í
handjárn. Höfðu lögregiuþjónarnir
ærið að starfa við að koma á
reglu og liðsinna fólki. Allt áfengi, |
sem fannst, en á þvf virtist enginn :
hörgull tóku þeir í sína vörzlu.
Þegar lögreglumennirnir höfðu ver
ið þarna nokkra stund, söluvagninn
var farinn, verstu ólátaseggirnir
teknir í geymslu og áfengi, sem
til náðist, hgfði verið tekið af þeim,
kom meiri kyrrð á hópinn. Enginn
meiri háttar slys urðu meðan þeir
voru þar.
Um kl. 15 á hvitasunnudag
komu 8 lögreglumenn úr Reykja-
vfk undir stjórn Guðmundar Her-
mannssonar, varðstjóra, og leystu
fyrri hópinn af. Voru þá drykkju-
læti í rénun og áfengi á þrotum.
Fór ástandið batnandi, eftir þvf
sem á daginn leið. Tvo pilta tóku
lögreglumenn ölvaða við akstur.
Margir unglinganna voru orðnir
Ieiðir á dvölinni og fengu lögreglu
mennirnir langferðabifreið, sem
þarna var, til þess að flytja eins
marga og hún tók til Reykjavíkur.
Um kvöldið var komin kyrrð á og
fóru lögreglumennimir þá af staðn
um. Komu þeir að Selfossi laust
fyrir miðnætti. Á meðan þeir stönz
uðu þar, barst þangað tilkynning
um, að ekið hefði verið yfir mann
f Þjórsárdalnum og hann stórslas-
azt. Fóru tveir lögreglumenn aust
ur til þess að annast flutning slas
aða mannsins. Nokkru sfðar bárust
fréttir um, að ólæti og drykkju-
skapur hefði enn á ný blossað upp
í Þjórsárdal og ákvað varðstjóri þá,
að allur flokkurinn færi austur.
Æsingin reyndist eiga að mestu ræt
ur sínar að rekja til slyssins og
komu lögreglumennirnir fljótt
kyrrð á fólkið. Héldu þeir heim
leiðis um kl. 3 um nóttina og
komu til Reykjavíkur um kl. 6 ár-
degis á annan f hvítasunnu.
Alls kærði lögreglan 23 menn fyr
ir ölvun og óspektir í Þjórsárdal.
Af þeim áttu 19 heimá f Reykjavík,
3 í Hafnarfirði og 1 á Álftanesi.
13 þeirra voru innan við 21 árs
aldur, en hinir flestir á aldrinum
21—24 ára. Marga þar að auki
höfðu lögreglumenn f geymslu í
bifreiðum sínum og komu þeim síð
an til Reykjavíkur. Rétt eftir mið-
nætti 2. júní (hvítasunnudag) bað
bifreiðarstjóri lögregluþjón frá Sel-
fossi að taka ofurölva 17 ára stúlku
úr bifreið sinni. Hafði hann tekið
hana upp f bifreiðina við Gauks-
höfða. Var hún á varðstofunni á Sel
fossi og svaf þar til kl. 5 um morg-
uninn. Símað var til föður hennar
og vildi hann ekkert liðsinna henrii \
né kaupa bifreið með hana til i
Reykjavfkur.
Á annan dag hvítasunnu hafði
fólki mjög fækkað f Þjórsárdal, á-
fengi þrotið og það orðið leitt á
dvölinni þar. Var þá allt með kyrr-
um kjörum. Síðdegis þann dag eða
um kvöldið fóru síðustu gestirnir
þaðan.
Brunmn —
Framh. af bls. 16.
ásamt 3 stigabflum. Samkvæmt
upplýsingum frá Gunnari Sig-1
urðssyni, varaslökkviliðsstjóraj1
var nokkuð erfitt fyrir slökkvi- j
liðsmenn að athafna sig, vegna i
þess að reykurinn var mjög
sterkur, og þurftu slökkviliðs-
menn að nota svokallaðar loft-
grímur.
Á vörulager Spörtu var mikið
af tilbúnum fatnaði og skemmd
ist allt. Sparta hafði einnig
skrifstofur á þessari hæð og |
urðu miklar skemmdir þar, svo í
og í tveimur skrifstofuherbergj-1
um, sem Sandver hefur á sömu
hæð.
í höfnina —
Fnunh. af bls. 16.
hefði í morgun komið á bílnum nið-
ur að Hafnarhvoli og lagt honum
þar á stæðið fyrir vestan húsið.
Að því búnu skrapp hann frá til að
fá sér kaffi í Hafnarbúðum, en þeg-
ar hann kom til baka um það bil
stundarfjórðungi sfðar var bíllinn á
bak og burt. Hann tók þá að svip-
ast um eftir honum og kom bráð-
lega auga á hann þar sem hann
maraði í sjónum austan við Lofts-
bryggju. Hafði bíllinn þá með ein-
hverjum hætti runnið af stað, en
þarna hallar lítillega til sjávar, og
hafði runnið fram af hafnarbakk-
anum austan við Loftbryggju.
Lögreglumenn voru sendir á stað
inn og einn þeirra fór niður í bíl-
inn til að athuga hvort nokkur mað
ur væri f honum, en það reyndist
ekki vera. Að þvf búnu fór frosk-
maður niður og kom festum á bflinn
en kranabfll frá togaraafgreiðslunni
dró hann á þurrt.
Tillögur —
Framh. af bls. 1.
ur og aðra, sem fylgdust með
atburðunum. Ennfremur aflaði
nefndin ýtarlegra skýrslna frá
Iögreglunni, bílstjórum á iang-
ferðabílum, sem önnuðust fólks-
flutninga f Þjórsárdal þessa
helgi, og kvaddi til viðtals hóp
unglinga. Auk þessa ritaði nefnd
in mörgum félagssamtökum og
óskaði eftir áliti þeirra og á-
bendingum um það hvað gera
mætti tii þess að koma f veg
fyrir að atburðir sem þeir, er
gerðust í Þjórsárdal, endur-
tækju sig. Að lokum ræddi
nefndin við ýmsa embættis-
menn svo sem saksóknara, toll-
gæzlustjóra, formann skipu-
lagsnefndar fólksflutninga og
lækna.
í skýrslunni segir að ekki sé
vitað um skipuleg samtök ungl
inga, til að fjölmenna í Þjðrsár
dal um hvítasunnuhelgina, nema
hvað unglingahópur, sem oft
komi á Hressingarskálann, hafi
komið sér saman um að fara.
Aðalforsprakkinn var 18 ára pilt
ur, sem var með áskriftalista
upp á vasann. Væntaniegir þátt
takendur skráðu sig á þennan
lista, en ekki lá hann frammi á
Hressingarskálanum. „1 þessum
hópi eru ýmsir, serti lögregian
kannast við úr kvöldlífi borgar-
innar“, segir f skýrslunni.
Ungmennin höfðu meðferðis
„ótrúlega mikil vínföng" og ein
vörðungu sterk vín. „Algengt
virðist að piltar hafi haft með
sér 2 flöskur af sterku víni en
stúlkur munu ekki hafa haft
með sér vín heldur veittu piltar
þeim það“. Vínið fengu ungling
arnir með þeim hætti að þeir
fengu eldri félaga sína, eða
menn sem þeir hittu utan við
áfengisverzlanimar, til þess að
kaupa fyrir sig. En sjaldan
munu unglingamir hafa hætt á
gð fá sig afgreidda með vln.
Hjá allmörgum fannst svokallað
sjómannavín, segir í skýrslunni.
Tekið er fram að Iftil leynivín
sala virðist hafa átt sér stað f
Þjórsárdal. 17 ára piltur keypti
fyrir sig og félaga sína 8 flöskur
af vodka af öðrum 17 ára pilti,
„sem seldi það fyrir fóstra sinn,
en hann er sjómaður", segir í
skýrslunni.
Þjórsárdalsnefndin gerir ýms
ar og ýtarlegar tillögur er
msqttu verða til þess að atburð
ir eins og þeir, sem hér um ræð
ir, endurtaki sig ekki. Nefndin
tekur þó fram að aðeins beri að
líta á tillögur hennar, sem
byggðar eru m. a. á tillögum frá
15 félagasamtökum, sem bráða
birgðaúrræði, og rannsaka verði
frá grunni vandamál ungmenna
og gera tillögur um frambúðar-
lausn þeirra. Nokkur atriði má
nefna út tillögum nefndarinnar:
Lagt er til að áfengislöggjöf-
in f heild, og fleiri lög og reglu
gerðir, verði endurskoðuð með
sérstöku tilliti til þess að komið
verði í veg fyrir áfengisneyzlu
ungmenna. Skipuleggja þurfi
fræðslu handa foreldrum og öðr
um uppalendum. Eðlilegt virðist
að skólakerfi landsins verði end
urskoðað með breytt þjóðfélags
leg viðhorf f huga. Athuga þurfi
endurskipulagningu á starfi
barnaverndarnefnda og fá þeim
aukið starfslið sérfróðra manna.
— Styðja þurfi starfsemi
æskulýðsfélaga af opinberri
hálfu og gera uppeldis- og félags
fræðilegar rannsóknir á breið-
um grundvelli til þess að komast
til botns í að ráða fram úr
vandamálum æskunnar. Bent er
á að auka þurfi löggæzlu á
skemmtunum og samkomustöð
um, svo og löggæzlu á þjóð
vegum verulega, og hert verði
eftiriit með því að ungmenni
fái ekki afgreitt áfengi f áfeng
isútsölum eða vínveitingastöö-
um. Sé hafin f því sambandi út
gáfa persónuskilríkja til ung-
menna á aldrinum 12 — 22 ára.
Sérleyfishafar og hópferða-
leyfishafar verði gerðir ábyrgari
en verið hefir um flutning ung
menna á skemmtistaði og sam
komustaði. Æskulýðsstarfsemi
verði aukin á vegum bæja- og
sveitafélaga og aukin félagsleg
fræðsla f skólunum. Bætt verði
aðstaða til ódýrra og hag-
kvæmra ferðalaga og sumar-
dvalar ungmenna, m. a. fái
æskulýðsfélög aðgang að heima
vistarskólum til gistingar. Leit-
ast verði við að nýta betur
félagsheimilin, er byggð hafa
verið á undanförnum árum, til
menningarstarfsemi fyrir æsku-
fólk og ráðinn verði til reynslu
æskulýðsfulltrúi við mennta-
málaráðuneytið. Skilyrðislaust
verði gert upptækt áfengi, sem
borið er ólöglega inn á veitinga
staði, eða reynt að bera þangað
inn. Sömuleiðis áfengi í fórum
manna, sem teknir eru ölvaðir
Mjáifstæðístelaganna í Reykjavík verður
þriðjudaginn 29. okt. kl. 20,30 í Sjálfstæðis-
húsinu.
Sætamiðar afhentir á skrifstofu Sjálfstæðisf,'',rtc-
ins í Sjálfstæðishúsinu í dag kl. 5—o.
Húsið opnað kl. 20.00 - Lokað kl. 20.30.
Heimdallur — Óðinn
KVÖLD
DA GS KRÁ:
1. SPILUÐ FÉLAGSVIST
2. Ávarp: Baldvin Tryggvason, framkv.stj.
3. Spilaverðlaun afhent.
4. Dregið í happdrætti.
5. Kvikmynd: Sumarferð Landsmálafélagsins
Varðar 1963.