Vísir - 28.10.1963, Blaðsíða 16
Mánudagur 28. október 1963.
Slys ■ m.s.
Fjallffossi
Klukkan langtgengin sex í gær-
dag varð slys um borð I m.s. Fjall-
f.ossi í Reykjavíkurhöfn.
Maður að nafni Einar Einarsson,
til heimilis að Miðtúni 78, var að
koma upp úr lest skipsins og bar
verkfæri í höndunum. En I stig-
anum missti hann fótanna, féll um
fjóra metra niður og meiddist á
fæti. Hann var fluttur í slysavarð-
stofuna.
VILL TIÓBY6SDUM
Ungur maður frá Reykjavik
lenti í miklum hrakningum um
helgina, er hann varð viðskila
við félaga sína á rjúpnaveiðum
á svokölluðum Skersli í Miðdals
fjalli, en hann kom fram sjálfur
eftir 13 tíma að Efstadal í Laug
ardal og varð ekki meint af en
var að vonum allgöngumóður
og þreyttur, en þakka má mikið
hve vel Einar var klæddur, svo
og því að ágætisveður var þrátt
fyrir þoku.
Maðurinn Einar Már Magnús-
son, hafði ásamt félögum sinum
haldið til veiða um morguninn,
en kl. 2 um daginn var skollin á
þá niðaþoka og fór svo að Ieið-
ir þeirra skildust. Félagarnir 2
komust niður til bæja en Einar
varð rammvilltur. Bændur á
efstu bæjunum í Laugardal
brugðu þegar við og hófu leit að
Einari og 9 menn Iögðu af stað
frá Reykjavik um miðnættið frá
Flugbjörgunarsveitinni búnir
góðum kastljósum og öðrum út
búnaði. Ekki kom þó til kasta
sveitarinnar, því Einar kom fram
um það leyti er leit skyldi hefj-
ast. Fundu leitarmenn fljótlega
spor Einars í snjónum og röktu
þau frá Gullkistu að Rauðafelli
sem er um það bil 2*4 klst gang
ur frá Efstadal. Við Rauðafell
hurfu sporin vegna snjóleysis.
Það er af Einari að segja að
er hann kom að Brúará tók
hann það ráð að ganga niður
með ánni og á þann hátt komst
hann til bæja og kom að Efsta-
dal til Sigurðar bónda Sigurðs-
sonar, sem var með mönnum
við Ieitina, er hann bar að garði.
Var Einari veitt bezta aðhlynn-
ing, en fór fljótlega með félög-
uih sfnum til Rvíkur. Leitarmenn
komu ofan úr fjöllunum frá kl.
6—8 um morguninn og sagði
Sigurður Sigurðsson okkur að
menn hafi verið orðnir þreyttir
þó þeir hafi ekki verið nema
helming þess tfma sem Einar
hélt til uppi f óbyggðum.
Eins og sjá má á myndinni, urðu miklar skemmdlr á vörulager Spörtu. Þórður Þórðarson, húsvörður, vlrðlr fyrlr sér skemmdirnar.
(Ljósm. Vísis: B. G.)
I®-------------------------
Vörubirgðir Spörtu brunnu
Leitað að
annarri
skyttu
Hjálparsveitir skáta í Reykjavfk
og Hafnarfirði voru boðaðar út
til leitar um klukkan 20,00 í gær
kveldi. Farið var að óttast um
rjúpnaskyttu úr Kópavogi, er
farið hafði á rjúpnaveiðar f
Lönguhlfð, norðan við Kleifar-
vatn.
Það er af manninum að segja
að hann kom helm til sfn heill
á húfi um miðnætti og var þá
leitinni að sjálfsögðu hætt.
Vörubirgðir Spörtu
eyðilögðust í eldsvoða
aðfaranótt sunnudags.
Einnig urðu skemmdir á
skrifstofuhúsnæði Sand-
vers h.f. og það miklar.
Það var um klukkan 2.20
aðfaranótt sunnudags,
sem slökkviiið Reykja-
víkur var kvatt að Borg-
artúni 25. Er slökkviliðið
kom á staðinn, þar tals-
verður eldur á 3. hæð
hússins, en þar eru til
húsa Sparta, Sandver og
Byggingarfélagið Brú.
Eldurinn virðist hafa komið
upp í eða við trétexþil, er var
á milli skrifstofu Sandvers og
birgðageymslu Spörtu. Um 40
slökkviliðsmenn voru kallaðir
út og 3 dælubílar voru f gangi
Framh. á bls. 5.
Fjölsótt ráðstefna
VARÐBERGS
Ráðstefna Varðbergs um al-
þjóðlegt samstarf, sem haldin
var um helgina, var fjölsótt og
vel heppnuð. Sérstaka athygii
vakti erindi Stephan G. Thomas
sérfræðings vestur-þýzku stjórn-
arinnar í alþjóðamálum en hann
ræddi um þróún mála í Evrópu
frá 1945.
MIKLAR SA TTATILRA UHIR
Miklar sáttatilraunir standa nú
yfir f vinnudeilunum og er þessa
dagana verið að gera úrslitatilraun
ir til þess að ná samkomulagi. Eru
stöðugar viðræður hjá sáttasemj-
ara. I kvöld verður sáttafundur í
deilunni um kjör verzlunarfólks, en
vlðræður standa einnig yfir milli
landsnefndar fjölmargra verkalýðs-
félaga og vinnuveitenda.
Allmörg verkalýðsfélög hafa nú
í morgun snemma fór mannlaus
bifreið f sjóinn f krikanum austan
við Loftsbryggju. Enginn veit hvern
ig óhapp þetta hefur borið að hönd-
um og í fyrstu var óttazt að bíln-
um hefði verið stolið og ekið í
sjóinn, en enginn fannst f hon-
um þegar að var komið.
myndað með sér landsnefnd til þess
að ræða sameiginlega við vinnu-
veitendur um kjaramálin. Var fyrsti
fundur fulltrúa vinnuveitenda með
landsnefndinni sl föstudag og næsti
fundur er boðaður á miðvikudag.
Verkalýðsfélögin, sem aðild eiga
að landsnefndinni eru verkamanna-
félög svo sem Verkamannafélagið
Dagsbrún í Reykjavík, Verkam.fél.
Hlff í Hafnarfirði, Eining á Akur-
Það var rétt fyrir kl. 7 í morgun
að maður kom f lögreglustöðina
og tilkynnti að bíll, sem hann hafði
verið með, hefði runnið í sjóinn.
Þetta var stór yfirbyggður bíll, sem
Landsíminn átti.
Maðurinn skýrði svo frá, að hann
Framh á bls. 5.
eyri, Verkalýðsfél. Akraness, Verka
lýðsfél. Árnessýslu og Verkam.fél.
Þróttur á Siglufirði, Þá er búizt við
því að verkalýðsfélögin á Austfjörð
um verði aðilar að landsnefndinni.
Hins vegar munu verkalýðsfélögin
á Vestfjörðum ekki verða aðilar,
heídur mun Alþýðusamband Vest-
fjarða semja sér og Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur er held-
ur ekki með og verkakvennafélögin
eru einnig utan við landsnefndina.
En öll þessi félög eru með lausa
samninga sfðan 15. okt..
VERKFALL PRENTARA
OG BÓKBINDARA.
Eins og Vísir hefur áður skýrt
frá hefur Hið íslenzka prentarafél-
ag boðað verkfall 1. nóv. Mun það
koma til framkvæmda á miðnætti
aðfaranótt n.k. föstudags, verði
ekki komið á samkomulag fyrir
þann tfma. Tveir samningafundir
hafa verið haldnir með deiluaðilum
en án árangurs. Bókbindarar hafa
nú boðað verkfall 1-2 dögum síðar
en prentarar.
VERKFALL 4. NÓV.?
Verzlunarm.fél. Rvíkur hefur boð
að verkfall 4. nóv. hafi samkomu-
lag ekkí náðst fyrir þann tíma og
Landssamband ísl. verzlunarmanna
hefur boðað verkfall á sama tíma
hjá allmörgum verzlunarmannafél.
úti á landi, eða á þessum stöðum:
Hafnarfirði, Borgarnesi, Snæfells-
nesi, Bolungavík, Isafirði, Húna-
vatnssýslu, Skagafirði, Siglufirði,
Norður-Þingeyjarsýslu, V-Skafta-
fellssýslu og Rangárvallasýslu, Ak-
ureyri, á Suðumesjum og í Árnes-
sýslu. Einnig er búizt við að verk
fall verði boðað hjá verzlunarfólki
á Eskifirði, Reyðarfirði, Vestmanna
eyjum og Patreksfirði.
Ráðstefnan hófst á laugardag
með hádegisverði í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Björgvin Vilmund-
arson, form. Varðbergs, setti
ráðstefnuna. Síðan voru flutt 2
erindi: Ellert Schram, form. Stúd
entaráðs, flutti erindi er nefndist
„Alþjóðlegt samstarf“'og Tómas
Kadsson, blaðamaður flutti er-
indið „Stjórnmálalegt samstarf“.
Að erindum loknum voru frjáls-
ar umræður, er Einar Benedikts
son hagfræðingur stjórnaði.
Á sunnudag hélt ráðstefnan á
fram og voru þá flutt 3 erindi:
Gunnar G. Schram ritstjóri tal-
aði um varnarsamstarf, Björgvin
Guðmundsson, viðskiptafræðing-
ur, talaði um efnahagslegt sam-
starf og Stephan G. Thomas tal-
aði um „Europe since 1945“. Að
erindunum loknum voru fyrir-
spurnir og frjálsar umræður. —
Beindu þátttakendur mörgum
fyrirspurnum til Stephan G.
Thomas en hann Ieysti greiðlega
úr þeim og þótti mönnum hann
hafa varpað mjög skýru ijósi á
stjórnmálaþróun Evrópu eftir
stríð.
BÍLL í HÖFNINA