Vísir - 28.10.1963, Síða 3

Vísir - 28.10.1963, Síða 3
V1SIR . Mánudagur 28. október 1963, 3 „Taktu upp hnífinn“ — „Ó- þokka hrakmennið þitt — snertu mig ekki“. Við erum stödd í stúdíói núm er tvö á 6. hæð í Ríkisútvarp- inu. Verið er að æfa og taka upp síðasta þátt sakamálaleik- ritsins „Ráðgátan Van Dyke“ — „Flett ofam af Van Dyke“. Leikararnir standa við hljóð- nemann, í annarri hendinni halda þeir á handriti Ieikritsins, en með hinni sýna þeir að nokkru leyti geðbrigðin. Þeir sveifla henni, kreppa hnefann og við og við strjúka þeir svit- ann af enninu, því að það tekur á taugarnar að vera annað hvort forhertur glæpamaður eða leyni- lögreglumaður. Á stólnum til hliðar sitja þeir, sem eru ekki með í bill, þar á meðal aðal kvenhetja leiksins — Steve. Steve, sem öðru nafni heitir Guðbjörg Þorbjarnardótt- ir, situr samanhnipruð og hálf skjálfandi og á andliti hennar er skelfingarsvipur. Er þetta virkilega Steve, þessi örugga, rólega kona? „Vertu róleg Gugga mfn“, segja meðleikendumir hug- hreystandi. „Hún fær alltaf gæsahúð, þegar atriðin, sem mest taka á taugarnar, eru leik- in, og skömmin hann Flosi, sem er effektameistarinn, skýtur af Skyldi hinn dularfulli Van Dyke vera meðal þeirra. Hér eru þær aðalpersónur leiksins, sem enn eru á lífi: Frá vinstri: Terry Palmer, frú Steve Temple, Sir Graham, Paul Temple, Charlie, Roger Shelly, Droste og Mc Call. Á borðinu fyrir framan aðalpersónurnar hefur hnífn- um, sem hlustendur hafa svo oft heyrt í, verið stungið gegnum handritið. byssunni í tíma og ótima til að strfða henni — og reyndar okk- ur hinum Iíka“. „Við erum ekkert öðru vfsi en annað fólk”, segir Guðbjörg og brosir vlð, „þetta tekur á okkar taugar engu sfður en hlustenda“. Það er áreiðanlegt að það er erfitt að leika sakamálaleikrit fyrir útvarpsupptöku, því að þar verður röddin að Iýsa mannin- um — en til þess að ná rödd- inni eins og hún á að vera þurfa leikararnir að nokkru leyti að leika frammi fyrir hljóðneman- um ,ei'ns og þeir myndu gera væru þeir á sviði. Leiknum er haldið áfram, Ijós kviknar á veggnum og effekta- meistarinn Flosi rennir stórri spýtu eftir borðbrún — það er verið að opna dyr á járnbrautar lest. Hvað er að gerast? — það má ekki segjast. Eigum við ekki heldur að athuga hvað hefur gerzt? Paul Temple er rithöfundur og áhugaleynilögreglumaður, er oft hefur orðið Scotland Vard að liði. Yfirmaður Scotland Yard leitar nú til hans og biður hann um aðstoð, því að barni Mary Desmond hefur verið rænt. Temple hefst þegar handa og hann kemst brátt að því að hér er um umfangsmikið eiturlyfja- mál að ræða. En þegar hann er að komast á sporið „er fólkið drepið fyrir niér á síðustu stundu“, segir Ævar Kvaran, sem tekið hefur sér gerfi Temple. „Ailt leikritið er ég að stika yfir lík“. En Temple er ekki einn á báti þar sem hann hefur eiginkonu sína Steve. Hún fylgir honum hvert sem hann fer og með kænsku sinni getur hún oft orð- ið honum að góðu liði. Ilættan vofir ávallt yfir þeim. Reynt er að sprengja Paul í loft upp, gerð er tilraun til að skjóta hann og í 7. þætti átti að gefa Steve inn eitur, en hún sá við því á síðustu stundu — og lék á Van Dyke. En hver er Van Dyke? Áheyrendur gruna marga, t. d. Terry Palmer, Droste, Roger Shelley, Charlie, Mc Call og sumir segja að það geti alveg eins verið sjálf Temple hjó'nin og Jónas Jónasson Ieikstjóri seg ir okkur að farið sé að bera það upp á harrn og magnaravörðinn að þeir séu Van Dyke. Við þykjumst nú heldur vel sett að hafa alla aðalskúrkana við hendina og biðjuni þá að segja okkur dálítið frá sjálfum sér — ef það mætti verða til einhverrar skýringar. Droste (Lárus Pálsson): Ég er milljónamæringur, næturklúbbs og hóteleeigandl, mesti „sjentil maður“ í alla staði. Konan mín sem var eiturlyf janeytandi er ný lega látin. Þcir segja mig grun- samlegan, m.a. vegna þess að ég á armband með nafnspjaldi. Mc Call (Haraldur Björnsson); Ég elti Droste en veit eiginlega Frh. á bls. 7. Hlustendur ku jefnvel gruna þá. Leikstjórinn Jónas Jónasson og magnaravörðurinn Magnús Hjálm- arsson sltja I klefa sfnum og þaðan stjðrna þeir öllu, leik ,stormi ,regni, sfrenuvæli, járnbrautar- skrölti og mætti þannig lengi telja. — Jafnvel magnara- vörðurinn er grunaður

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.