Vísir - 16.11.1963, Síða 1
VISIR
53. árg. — Laugardagur 16. nóvember 1963. — 149. tbl.
EKKERT LÁT Á GOSINU:
UKIST NU MtlRA
ÍLD60S! ILANDI
Mynd þessi var tekin i gær frá Heimaey af gosinu við Vestmannaeyj ar. Nær sjást eyjamar Suöurey, Brandur og Alfsey, en út til hafsins
sést hiS mikia náttúruundur, gosstrókurinn upp af hafflctinum.
Veður var bjart og fagurt f
gær, er Reykvíkingar flugu yfir
gosstaðinn skammt frá Vest-
mannaeyjum. V,oru aliir, er áttu
þess kost aS sjá gosið sammála
um, að það hefði verið stór-
fengleg sýn að sjá gosstrókinn
stíga 8 km. í Ioft upp.
Ekki hafði gosið breytzt mikið
í gærkveldi frá þvi í gærmorg-
un. Þó sagði Sigurður Þórarins-
son jarðfræðingur, að gosið væri
nú líkara eldgosi á landi. Eyjan,
sem myndaðist i gærmorgun,
stækkaði lítið f gær. Hún er
talin vera um 10 metra há og
200 metra löng.
Unnsteinn Stefánsson haffræð
ingu framkvæmdi mælingar á
sjónum í námunda við gosstað-
inn í gær. Mældi hann næst í
0,2 sjómílu fjarlægð frá gos-
inu. Ekki reyndist sjór hafa
hitnað mikið af völdum gossins
þar. Einnig hugðist hann mæla
sjávarhitann' í allt að 12 sjó
mílna fjarlægð frá gosinu en
hann hafði ekki lokið því verki,
er Vísir hafði samband við hann
í gærkvöldi.
Búizt var við austan átt í dag
og mun gosmökkurinn þá breyta
nokkuð um stefnu en hann hefur
undanfarið lagt til hafs vegna
norðanáttar.
Vatnsból Vestmannaeyinga
/ hættu viS öskufall
Vestmannaeyingar eru hinir ró-
legustu þrátt fyrir eldsumbrotin
hér skammt frá, sagði Guðlaugur
Gfslason, bæjarstjóri Vestmanna-
eyja f viðtali við Vísi f gærkveldi.
Að vísu gera þeir sér það vel ljóst
að mikil hætta er á ferðum, ef
vindátt breytlst og öskufall verð-
ur hér, þar eð við fáum mest
allt okkar neyzluvatn af húsaþök-
um.
Guðlaugur sagði, að fylgzt yrði
vel með þvf hvort hætta yrði á
öskufalli í Eyjum. Flestir gætu
tekið rennur undan svo vatn rynni
ekki f vatnsbólin, ef það mengaðist
ösku.
Guðlaugur sagði, að ekki væri
hætta á neyðarástandi í Eyjum, ef
svo illa tækist til, að regnvatn
yrði óhæft til neyzlu. Vatnsveita
væri einnig í Eyjum og fengju Eyja
búar jarðvatn úr henni er næmi
um það bil '/i þess neyzluvatns, er
þeir þyrftu á að halda. Með sparn-
aði á vatni mætti komast af með
Framh. á bls. 6.
Forsetinn heimsækir há-
skóiana iLeeds og Edinborg
31s. 2 Verðlaunakrossgáta
— 3 íslenzk vetrartfzka
Myndsjá
— 7 Flogið yfir gos-
svæðið.
— 8 Gunnar Myrdal lýsir
efnahagslifi USA
— 9 Viðtal við Matthias
A Mathiesen um
þingfund NATO.
Forseti Islands, herra Asgeir
Asgeirsson, og forsetafrúin,
leggja af stað í hina opinberu
heimsókn til Bretlands, ásamt
fylgdarliði sfnu, snemma á
mánudagsmorgunlnn og mun
forsætisráðherra Breta, Sir Alec
Douglas Home, taka á móti ]
þeim við komuna til London
Framh. á bls. 6.
Vetrartízkan úr leðri
Vetrartfzkan er nú komin i
fullt gildi síðustu' dagana síðan
kólnaði í veðri. Enn sem fyrr
er það París sem ræður stefn-
unni. Og boð tjzkuborgarinnar
herma að ' leðrið muni mjög
verða í tfzku í vetur. Nýlega
hafði Feldurinn tízkusýningu í
Klúbbnum og þar var þessi
myp.d tekin af Ingunni Bene-
diktsdóttur, þar sem hún sýnir
brúnan Ieðurskokk, græna
peysu, sérlokk hólms húfu og
auðvitað há leðurstígvél. Fleiri
myndir af vetrartízkunni eru 1
Myndsjánni á bls. 3.