Vísir - 16.11.1963, Page 3
'v
V1SIR . Laugardagur 16. nóvember 1963.
í gærkvöldi efndi verzl-
unin Eygló til fyrstu
tízkusýningar sinnar á
þessu hausti, og fór hún
fram í Klúbbnum. Gaf
þar að líta fjölbreytt úr-
val af hvers kyns vetrar
klæðum: kápum og
drögtum og kjólum,
bæði dagkjólum og sam-
kvæmiskjólum, og mörg
um tegundum hatta. Er
Guðrún Dóra í svörtum samkvæmiskjól. Takið eftir krossinum á
bakinu. Hann er úr svörtu atlassilki.
Þorbjörg í skólastúlkudragt. Undir sláinu er hún i samlitu vestl
og undir vestinu í peysu.
Falleg og hentug vetrarkápa úr uli — og hattur eftir nýjustu tízku.
fatnaðurinn bæði inn-
lendur og erlendur og
fyrst og fremst valinn
með það fyrir augum, að
hann sé hentugur í ís-
lenzkri veðráttu og við
sem.flestra hæfi.
Þarna sjást ýmsir
gamlir vinir, sem aftur
eru komnir í tízku, t. d.
múffan og sláið, og eins
eru sýndar nýjungar,
svo sem leðurskokkar,
há stígvél o. fl. Sýningar
stúlkurnar — Lilja Norð-
fjörð, Ingunn Benedikts
son, Auður Guðjónsdótt-
ir, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Guðrún
Dóra Erlendsdóttir og
Þorbjörg Bernhard — eru
allar úr Tízkuskóla
Andreu, en fyrir sýning-
unni stendur frú Svava
Þorbjarnardóttir, verzl-
unarstjóri.